Fréttablaðið - 12.02.2009, Blaðsíða 30
12. FEBRÚAR 2009 FIMMTUDAGUR2 ● fréttablaðið ● vetrarlíf
Sigurður Ó. Sigurðsson veit
hvernig á að vera útbúinn fyrir
vetrarferðir á hálendi Íslands.
Sigurður Ó. Sigurðsson hjálpar-
sveitarmaður hefur tekið þátt í
leit að fólki og farið á fjöll sér til
dægradvalar. Svo er hann aðstoð-
arskólastjóri Björgunarskólans
og leiðbeinir á námskeiðum fyrir
fjallafólk. Til hans leituðum við
til að fræðast um hvernig bæri
að grafa sig í fönn ef til kæmi af
illri nauðsyn. Hann var fús til að
svara, en benti á að í skólanum
væri fólki kennt að vera rétt búið
og velja verkefni við hæfi svo það
lenti ekki í ógöngum. „Viss búnað-
ur á að vera með í öllum ferðalög-
um í fjalllendi að vetri til; þar á
meðal skófla sem er öryggistæki
lendi einhver í snjóflóði og eins ef
maður þarf að láta einhvers staðar
fyrirberast. Snjóflóðaýla er æski-
leg og mikið veltur á hlýjum og
góðum klæðnaði. Vist í snjóhúsi
þarf ekki að vera slæm ef menn
eru rétt búnir,“ segir hann.
„Þegar fólk grefur sig í fönn
þarf að varast hlíðar sem snjó-
flóðahætta gæti verið í og finna
skorninga á flatlendi. Stundum
má nota eitthvað sem maður er
með til að búa til skjól fyrir vindi
og hægt að setja bakpoka í gatið.
Síðan þarf að stilla klukku svo hún
hringi á klukkutíma fresti, fara á
stjá og koma blóðinu á hreyfingu.
Málið er að halda sér virkum en
detta ekki í mók sem býður hætt-
unni heim.“
Sjálfur hefur Sigurður grafið
sig í fönn í aftakaveðri á Vatna-
jökli 1996. „Smá næturstund varð
að þremur sólarhringum í litlu
snjóhúsi með átta manns. Við
vorum á leið úr Snæfelli í Goða-
hnjúka og nokkrir kílómetrar
eftir. Vatnajökull getur verið óút-
reiknanlegt veðravíti með mik-
illi ofankomu. Við vorum aldrei
í lífshættu. Það fór bara illa um
okkur. Þetta er alltaf spurning
um að geta beðið þar til óveðrinu
lýkur.“ - gun
Björgvin Björgvinsson, skíða-
kappi frá Dalvík, fékk fyrstu
skíðin sín þriggja ára. „Bróð-
ir minn keypti fyrstu skíðin
handa mér á flóamarkaði á Dal-
vík,“ segir Björgvin en þar með
fékk hann skíðabakteríuna og
keppti á sínu fyrsta móti sex
ára.
„Ég byrjaði nú bara á að
labba upp litlar brekkur bak
við húsið heima en um fjögurra
ára aldur byrjaði fjörið. Þá fór
ég að æfa og fimm ára byrjaði
ég í alvöru keppnisþjálfun. Ég
keppti fyrst á Andrésar andar
leikunum sex ára og keppti upp
fyrir mig í aldri því keppendur
þurftu að vera orðnir sjö ára.“
Afrekaskrá Björgvins í
skíðaíþróttinni er löng en þegar
blaðamaður náði af honum tali
var hann staddur í Austurríki
við æfingar fyrir heimsmeist-
aramót sem fram fer í Frakk-
landi 15. febrúar. Hann segir
ekki til betri tilfinningu en þá
að þeytast niður brekkurnar í
sól og góðu veðri og viðurkenn-
ir að sækja í spennu.
„Ég hef stokkið stærsta
teygjustökk í Evrópu sem er
um 200 metrar. Það var ágæt-
isstökk en ef ég frétti af ein-
hverju stærra þá er ég spennt-
ur fyrir því,“ segir hann hlæj-
andi. „Tilfinningin er ekki sú
sama og í bröttustu brekkum
en þó eitthvert kikk sem mér
finnst gaman að fá. En svo hef
ég stundað smávegis golf á
sumrin og þar slaka ég á.“ - rat
Sækir í hraða og spennu
Björgvin Björgvinsson skíðakappi
hefur stundað skíði frá unga aldri en
hann fékk fyrstu skíðin sín þriggja
ára. MYND/GUÐMUNDUR JAKOBSSON
Skíða- og brettaskóli barna í
Hlíðarfjalli er fyrir fimm til
tólf ára börn. Þar öðlast byrj-
endur öryggi í brekkunum og
læra undirstöðuatriði eins og að
stoppa í plóg, eða pitsu eins og
það er stundum kallað, beygja,
stjórna hraðanum og að nota
barnalyftuna.
Börn sem eru lengra komin
læra á stólalyftuna. Þeim er
kennt að komast úr plógnum og
að taka samsíða beygjur. Þegar
börnin hafa náð góðum tökum
á íþróttinni geta þau svo fengið
að kanna nýjar hliðar á fjallinu,
kynnast Strýtunni og ævintýra-
leiðum undir leiðsögn kennara.
Í skólanum er blandað saman
leik og kennslu. Þá er lögð
áhersla á að börnin læri reglur
og umgengni á skíðasvæðunum.
Nánari upplýsingar má finna á
www.akureyri.is. - ve
Læra svig, brun og að
fara í plóg eða pitsu
Byrjendur læra undirstöðuatriði eins og að beygja og stjórna hraðanum hvort
sem er á skíðum eða snjóbrettum.
Þversnið af snjóhúsi.
Skófla er mikilvægt öryggistæki að sögn Sigurðar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Þrír dagar í snjóhúsi
HJÁTRÚARSÝNING Á TORGI
Kl. 19:00
Barnaleiðsögn um grunnsýninguna um hjátrú
Kl. 19:30
Leiðsögn um sýninguna Endurfundi
Kl. 20:00
Spilmenn Ríkínís leika og syngja þjóðlega
tónlist
Kl. 20:30
Stuttur fyrirlestur um hjátrú
Kl. 20:30
Barnaleiðsögn um grunnsýninguna um hjátrú
Kl. 21:00
Leiðsögn um sýninguna Endurfundi
Kl. 21:30
Stuttur fyrirlestur um hjátrú
Kl. 22:00
Spilmenn Ríkínís leika og syngja þjóðlega
tónlist
Opið 11-24
Suðurgata 41 · 101 Reykjavík · sími 530 2200 · www.thjodminjasafn.is · Opið alla daga vikunnar nema mánudaga kl. 11–17
Föstudaginn 13. febrúar verður fjölbreytt dagskrá
á Þjóðminjasafni Íslands í tengslum við Safnanótt.
Aðgangur ókeypis 17-24
HJÁTRÚ Á ÞJÓÐMINJASAFNINU Á SAFNANÓTT 7 9 13