Fréttablaðið - 12.02.2009, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 12.02.2009, Blaðsíða 8
8 12. febrúar 2009 FIMMTUDAGUR 1 Hvaða hljómsveit lék á mótmælafundi fyrir utan Seðlabankann á þriðjudag og heimtaði Davíð burt? 2 Hvað heitir íslenski fiðluleik- arinn í kvartettinum Pacifica sem nýverið fékk Grammy-verð- laun? 3 Hvaða lið lagði KR að velli í körfunni, fyrst liða á leiktíð- inni? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 46 AFGANISTAN, AP Átta menn vopn- aðir sprengjuvestum gerðu árás- ir á þrjár opinberar byggingar í Kabúl, höfuðborg Afganistans, í gær. Árásirnar kostuðu alls 28 manns lífið, að meðtöldum árásasarmönnunum átta. Árásirnar voru gerðar rétt áður en Richard Holbrooke, nýskipaður erindreki Banda- ríkjaforseta í þessum heims- hluta, var væntanlegur í heim- sókn til borgarinnar. Zabiullah Mujaheed, talsmað- ur talibana, sagði í símtali við AP fréttastofuna að árásirnar væru viðbrögð við illri meðferð sem talibanar eru sagðir fá í fangels- um landsins. - gb Sprengjuárás talibana: Tuttugu manns fórust í Kabúl UMSÁTUR VIÐ DÓMSMÁLARÁÐUNEYTIÐ Afganskar öryggissveitir við dómsmála- ráðuneytið í Kabúl, þar sem árásarmenn höfðu hreiðrað um sig. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Brotist inn í söngskóla Lögregla hefur til rannsóknar tvö innbrot sem framin voru í fyrrinótt. Brotist inn í fyrrverandi verslunarhús- næði við Laugaveg. Þar hafði þjófur- inn ekkert upp úr krafsinu. Einnig var brotist inn í söngskóla við Snorrabraut og peningum stolið. Skemmdir urðu á báðum stöðum. LÖGREGLUFRÉTTIR SAMFÉLAGSMÁL Um 1.900 pör slíta sambúð á hverju ári hér á landi, óháð sambúðarformi. Þetta kemur fram í skýrslu sem Stefanía Katrín Karlsdóttir tók saman. Á hverju ári upplifa um 1.600 börn sambúðarslit. Hin síðari ár er algengast að foreldrar deili forræði og er for- ræðið sameiginlegt í tæplega 75 prósentum tilfella. Móðir hefur forsjá í um fjórðungi tilfella en faðir aðeins í 2 prósentum. Í skýrslunni segir að rannsóknir sýni að sameiginleg forsjá skipti börn miklu máli. Skilnaðarbörn sem búa við hana hafi almennt betri tengsl við báða foreldra. - kóp Um 1.900 skilnaðir á ári: Fjöldi skilnað- arbarna mikill ALÞINGI Ragnheiður Ólafsdótt- ir, varaþingmaður Frjálslynda flokksins, vakti athygli á áhrif- um sólgosa og skógarelda á jörðina í þing- umræðu um uppbyggingu álvers í Helgu- vík í gær. Ragnheiður sagði að sífellt væri talað um mengun frá verksmiðjum en ekkert væri rætt um sólgos og skógarelda í því sambandi. Yrði málið rannsakað kæmi í ljós að áhrif þeirra þátta væru alvarlegri en frá álveri og járn- blendinu. Ragnheiður sem er teiknimiðill býr á Akranesi og sagði að verk- smiðjurnar tvær á Grundartanga hefðu haft jákvæð áhrif á Vest- urlandi. Hún lauk máli sínu á að segja að ekki væri bara hægt að lifa á grasi og káli. - bþs Varaþingmaður frjálslyndra: Áhrif sólgosa á jörðina mikil RAGNHEIÐUR ÓLAFSDÓTTIR Grétar formaður Grétar Mar Jónsson er nýr formaður þingflokks Frjálslynda flokksins og Guðjón A. Kristjánsson varaformaður. Birgir spyr um stjórnarskrá Birgir Ármannsson Sjálfstæðisflokki hefur lagt fram fyrirspurn til forsætis- ráðherra um áform ríkisstjórnarinnar um breytingar á stjórnarskrá. Spyr hann meðal annars hvernig áformin samrýmist hugmyndum um stjórn- lagaþing. Efnahagsmál utan dagskrár Utandagskrár umræða um efna- hagsmál fer fram í þinginu í dag. Málshefjandi verður Geir H. Haarde formaður Sjálfstæðisflokksins og for- sætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, til andsvara. ALÞINGI ÍSRAEL, AP Búast má við erfiðum stjórnarmyndunarviðræðum í Ísra- el, sem gætu staðið vikum saman. Hálfgerð pattstaða kom upp í þing- kosningunum á þriðjudag, þar sem tveir stærstu flokkarnir, Kadima og Likud, fengu álíka marga þing- menn. Bæði Tzipi Livni, leiðtogi Kad- ima og utanríkisráðherra í frá- farandi stjórn Ehuds Olmert, og Benjamin Netanyahu, leiðtogi Likud og fyrrverandi forsætisráð- herra, gera því tilkall til stjórnar- myndunarumboðs. Hægrimaðurinn Netanyahu ætti þó væntanlega auðveldara með að mynda stjórn en miðjumanneskj- an Livni, því flokkar hægrimanna, þjóðernissinna og rétttrúaðra gyð- inga unnu mjög á í kosningunum og eru nú með samtals 65 þingsæti á móti þeim 55 þingsætum sem féllu í hlut miðju-, vinstri- og araba- flokka. Harðlínustjórn hægriflokk- anna þýðir væntanlega að þær litlu vonir sem enn eru gerðar til friðarviðræðna við Palestínumenn verða nánast að engu. Litlu flokk- arnir yst til hægri hafa ekki sýnt minnsta vilja til samninga, auk þess sem Netanyahu sjálfur hefur ítrekað lýst andstöðu við nokkra eftirgjöf í erfiðustu deilumálun- um. Yisrael Beiteinu, flokkur Avig- dors Lieberman, vann mikinn sigur í kosningunum, varð þriðji stærsti flokkurinn og gæti ráðið úrslitum um stjórnarmyndun. Lík- legast þykir að Lieberman, sem höfðar ekki síst til hins fjölmenna hóps rússneskra innflytjenda og vill sýna arabískum íbúum Ísraels mikla hörku, fari í stjórn með Net- anyahu, en Livni biðlar nú til hans og virðist vona að hann gangi í lið með Kadima um stjórnarmyndun. „Við viljum hægristjórn,“ segir Lieberman sjálfur, en heldur þó öðrum möguleikum opnum: „Við útilokum samt engan.“ Þriðji möguleikinn væri sá að Netanyahu og Livni kæmu sér saman um miðjustjórn, væntan- lega með tilstilli annaðhvort Verka- mannaflokksins eða Liebermans, en jafnvel þótt slíkt tækist er lík- legt að allar viðræður við Palest- ínumenn yrðu enn erfiðari en þær hafa þó verið til þessa. Til dæmis verður vart séð að Hamashreyfingin á Gasasvæð- inu fáist auðveldlega til að skrifa undir vopnahléssamkomulag við stjórn, sem Palestínumenn myndu ekki treysta til að standa við neina slíka samninga. Óvissan um framtíð friðarsamn- inga er svo enn meiri vegna þess að kosningar eru á dagskrá hjá Palest- ínumönnum á næstunni. Forseta- kosningar hefðu átt að fara fram í janúar síðastliðnum og þingkosn- ingar á næsta ári, en þau áform eru í uppnámi vegna harðvítugra deilna tveggja helstu fylkinga Pal- estínumanna, Hamas og Fatah. Takist að leysa úr þeim deilum verður væntanlega boðað til sam- eiginlegra forseta- og þingkosn- inga, þar sem Hamas gæti sem hægast endurtekið sigurgöngu sína frá síðustu kosningum. gudsteinn@frettabladid.is VEISTU SVARIÐ? Livni og Netanyahu vilja bæði stjórna Stjórnarkreppa virðist í uppsiglingu í Ísrael þar sem tveir stærstu flokkarn- ir keppast um að fá stjórnarmyndunarumboð. Rússneski þjóðernissinninn Avigdor Lieberman er í lykilhlutverki. Palestínumenn bíða upp á von og óvon. EFNAHAGSMÁL Samkvæmt tilmæl- um fjármálaráðuneytisins var álag vegna skila á virðisaukaskatti fellt niður til 13. febrúar. Það þýðir í raun að frestur til að skila vaskin- um inn rennur út á morgun en ekki 5. febrúar, líkt og reglur gera ráð fyrir. Samkvæmt reglum leggst eitt prósent ofan á vaskinn fyrir hvern dag umfram skiladag í tíu daga og eftir það dráttarvextir. Tilmæli fjármálaráðuneytis- ins voru sett fram vegna „áfram- haldandi truflana sem orðið hafa á bankastarfsemi hér á landi og áhrifa þess á atvinnulífið“ líkt og segir í tilkynningunni. Ljóst er að einhver fyrirtæki munu lenda í vandræðum með að greiða vaskinn á morgun og því er þetta ákveðinn prófsteinn á raunverulegt ástand efnahagslífsins. Nokkrir atvinnurekendur hafa rekið augun í að skuldin kemur fram í heimabanka, þrátt fyrir til- mæli ráðuneytisins. Þetta á við um þá sem skiluðu virðisaukaskatts- skýrslu á tímabilinu 1. til 30 janúar með rafrænum hætti, um 12.000 skýrslur. Á þær hefur lagst skuld frá og með 6. febrúar, en hún verð- ur felld niður 15. febrúar. Það er því mikilvægt að þeir sem þannig er ástatt um greiði ekki skuldina, þar sem þeir eru með réttu skuld- lausir. - kóp Frestur til niðurfellingar álags á virðisaukaskatt að renna út: Vaskurinn greiddur á morgun FÓLK Fyrirtæki þurfa að standa skil á virðisaukaskatti á morgun, þegar frestur til niðurfellingar álags á virðisaukaskatt verður felldur niður. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Léttöl PILSNER Drukkinn í 92 ár G ot t fó lk Það er ekki að ástæðulausu að sumt stenst tímans tönn. Íslendingar hafa haldið tryggð við Egils Pilsner í blíðu jafnt sem stríðu í tæpa öld, þökk sé hressandi bragði og hagstæðu verði. Endurnýjaðu kynnin við ölið sem Íslendingar hafa drukkið allar götur síðan 1917. © GRAPHIC NEWS Tveir flokkar lýsa yfir sigri Miðju-, vinstri- og arabaflokkar: 55 Hægri- og rétttrúnaðarflokkar: 65 Araba- flokkar: 11 Maretz- Yahad: 3 Verkamanna- flokkurinn: 13 Kadima: 28 Likud: 27 Ísrael Beiteinu: 15 Shas: 11 Lögmálið- Gyðing- dómur: 5 Þjóðernis- bandalag: 4Heimkynni gyðinga: 3 Knesset 120 þingmenn Kosningaþátttaka: 65,2 prósent Heimildir: Yfirkjörnefnd Ísraels og Haaretz
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.