Fréttablaðið - 12.02.2009, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 12.02.2009, Blaðsíða 16
16 12. febrúar 2009 FIMMTUDAGUR Margir líta á sviptingar efnahags-hrunsins sem tækifæri til nauð-synlegra grundvallarbreytinga á Íslandi. Er þar ekkert undan- skilið; ekki einu sinni lýðræðið sjálft. Radd- ir úr öllum áttum fullyrða að nauðsynlegt sé að innleiða nýja starfshætti í stjórnmál- um. Búsáhaldabyltingin knúði fram ríkis- stjórnarskipti. Ný ríkisstjórn, undir forystu Jóhönnu Sigurðardóttur, hyggur á endur- skoðun stjórnarskrárinnar og undirbúning að stjórnlagaþingi sem haldið verði síðar á árinu. Afgreiðslustofnunin Alþingi Stoð stjórnskipunar á Íslandi er þrískipting ríkisvaldsins; löggjafarvald, framkvæmdar- vald og dómsvald. Innan þessarar skiptingar er Alþingi valdamesta stofnunin og fer með fjárveitingar- og löggjafarvaldið. Alþingis- menn sækja umboð sitt til þjóðarinnar í lýð- ræðislegum kosningum. Framkvæmdarvald- ið starfar svo í skjóli meirihluta þingsins sem grundvallast af svokallaðri þingræðisreglu; sem þýðir að ríkisstjórnin verður að njóta trausts þingheims. Segja má að með þing- ræðisreglunni yfirtaki meirihluti á Alþingi framkvæmdarvaldið þar sem þingheimur hefur gert með sér samkomulag um hvern- ig ríkisstjórn er skipuð á hverjum tíma. Löggjafarvaldið og framkvæmdarvaldið er þannig samtvinnað í gegnum ríkisstjórnina. Ráðherrar eru í senn hluti af framkvæmdar- valdinu sem æðstu yfirmenn stjórnsýslunn- ar í sínum málaflokki, og löggjafarvaldinu sem þingmenn. Þó deilt sé um valdahlutföll framkvæmdar- valds og löggjafarvalds hníga flest rök að því að mjög halli á það síðarnefnda. Styrkur framkvæmdarvaldsins felst í því að meiri- hlutinn sem styður ríkisstjórnina á hverjum tíma unir því að framkvæmdarvaldið hafi undirtökin á þingi. Það er því stjórnarand- staðan á hverjum tíma sem ber hitann og þungann af því að verja stöðu löggjafans en hefur farið hallloka í þeirri baráttu. Það er framkvæmdarvaldið sem hefur frumkvæði að og undirbýr stóran meirihluta allra þeirra lagafrumvarpa sem þingið hefur til meðferð- ar. Aðkomu þingsins að lagasetningunni hafa gagnrýnendur því sagt vera litla sem enga; þingið sé afgreiðslustofnun. Þetta er þó ein- földun og gefur ekki raunsanna mynd af störfum þingsins. Fá frumvörp fara óbreytt í gegnum þingið. Löggjafarvinnan fer að stórum hluta fram á fundum þingflokka og í fagnefndum. Ráðherrana út fyrir vegginn Á undanförnum árum, og síðast í janúar síðastliðnum, hafa verið flutt frumvörp á Alþingi um breytingar á stjórnskipaninni. Inntak þeirra er einfaldlega að ráðherrar gegni ekki þingmennsku sem tekur fyrir þann möguleika að einstaklingur sitji beggja vegna borðsins. Hugmyndin er að löggjafar- störfin færist til Alþingis. Í því felst að ráð- herra kemur ekki í þingsal nema til að mæla fyrir sínum málum eða til að svara fyrir- spurnum. Hann hefur ekki afskipti af því hvaða mál eru á dagskrá þingsins; er ekki hluti af þinginu og hefur því ekki atkvæðis- rétt. Ráðherrar hafi ekki afskipti af því hvað fastanefndir þingsins ákveða að taka fyrir og hafa ekki áhrif á afgreiðslu mála innan nefndanna að neinu leyti. Í hnotskurn: Þeir gera það sem þingið segir þeim að gera en ekki öfugt. Það má spyrja sig hvort þetta breyti eins miklu og það virðist gera við fyrstu sýn. Vegna þingræðisreglunnar þyrftu þeir flokk- ar sem saman mynda ríkisstjórn að njóta stuðnings eða hlutleysis Alþingis. Lagafrum- vörp ríkisstjórnarinnar gætu því með króka- leiðum verið í meirihluta og notið forgangs. Flokkshollusta þingmanna, sem vart þarf að vefengja að er til staðar, myndi tryggja að svo færi. Eins er erfitt að sjá fyrir sér hvern- ig skilja ætti að ráðherra og þingmenn sama flokks í nefndarstörfum. Hins vegar eru for- dæmin til staðar og þarf ekki að fara lengra en til Noregs. Þar í landi getur ráðherra ekki jafnframt verið þingmaður og tekur vara- maður hans sæti á Alþingi á meðan hann gegnir ráðherraembætti. Væri því fordæmi fylgt má enn spyrja sig hvort mikið hefði breyst við að ráðherra gengi úr húsi. Hlut- föll þingheims á milli stjórnarliða og stjórn- arandstöðu yrðu þau sömu. Einhver myndi segja að það eina sem áþreifanlega hefði breyst væri að kostnaður við stjórnsýsluna hefði aukist að mun. Hins vegar er sú breyt- ing eftirtektarverðari að með fráhvarfi ráð- herra af þingi og innkomu varaþingmanna þeirra hefði stjórnarliðum í raun fjölgað sem því næmi. Þannig myndi enn frekar halla á stjórnarandstöðuna en með gildandi fyrir- komulagi. Gömul saga og ný Bjarni Benediktsson, síðar forsætisráðherra, hefur að öðrum ólöstuðum lagt hvað mest til umræðunnar um stjórnskipun landsins. Sumarið 1940, þegar breskur her var nýst- iginn af skipsfjöl í Reykjavík, sat hann og velti vöngum yfir því sem þá var öllum ljóst. Ísland myndi segja sig úr sambandi við kon- ung og lýðveldi yrði stofnað. Ný stjórnarskrá, grundvallarlög til nýrrar framtíðar, var við- fangsefni hans eins og oft síðar. Hann skrif- ar: „Dönum getur eigi fremur en oss dulizt, að sagan hefir kveðið upp sinn dóm, og að bezt er í vináttu að jarðsetja það, sem þegar er dautt.“ En nýtt upphaf sá Bjarni fyrir sér að þyrfti ekki að grundvallast á þeim arfi sem Danir höfðu fært þjóðinni með stjórn- arskránni 1874. Hann sá að líklegt væri að byggt væri á því sem fyrir var, enda myndi annað tefja fyrir lýðveldisstofnuninni. En hann spyr hvort það sé sjálfsagt að halda í þingræðisfyrirkomulagið, sem honum er til efs að sé heppilegt. Hann horfir til Banda- ríkjanna sem voldugasta lýðræðisríkis heims. „Þar er forsetinn kosinn af þjóðinni og hann útnefnir ráðherrana, sem eru þinginu óháð- ir. (...) Þingræðið í sömu mynd og hér, hefir ekki heldur verið tekið upp hjá einni elztu lýð- ræðisþjóð Norðurálfunnar, Svisslendingum. Hefir þeim þó lengi verið viðbrugðið fyrir frelsisást sína og viturlega stjórnarháttu.“ Bjarni sá fyrir sér að með afnámi þingræð- isins og beinni kosningu forsætisráðherra væri hið erfiða úrlausnarefni um forseta og samhengi í meðferð hins æðsta valds leyst fyrirhafnarlaust. Gylfi Þ. Gíslason, síðar ráðherra og þing- maður Alþýðuflokksins, skrifaði árið eftir lýðveldisstofnun um sama efni. Hann aðhyllt- ist afnám þingræðis, rétt eins og Bjarni fyrr. Höfuðeinkenni þingræðisins væri náin tengsl valdþáttanna og á þau þyrfti að skera. Hann vildi forsetaræði að bandarískri fyr- irmynd, tveggja flokka kerfi sem yki skil- virkni. Helstu kosti taldi hann vera að farið væri með framkvæmdarvaldið af meiri heið- arleika og því ekki misbeitt í þágu einstakl- inga eða flokka. Til verka myndu veljast hæf- ari menn því stjórnin væri engum háð nema forseta. Vilmundur Róttækari hugmyndir en þær sem nú eru uppi um aðskilnað valdsins komu til kasta þingsins þegar Vilmundur Gylfason, þing- maður Alþýðuflokks og Bandalags jafnaðar- manna og ráðherra, lagði fram þingsályktun- artillögu árið 1982. Hugmynd Vilmundar var að forsætisráðherra yrði kosinn beinni kosn- ingu. Hann skipaði ríkisstjórn, utan þings eða innan, sem færi með framkvæmdarvald- ið. Þingið hins vegar væri kosið sérstaklega í aðskildum kosningum. Þingið færi eitt með fjárveitingar- og löggjafarvaldið. Þingmanni væri því óheimilt að gegna ráðherradómi og viki af þingi fyrir varamanni sínum veldist hann til starfans. Hér er rétt að staldra við. Í upphafsorð- um Vilmundar í greinargerð hans með frum- varpinu má merkja vissa samfellu við daginn í dag. „Íslenskt efnahagslíf og íslenskt stjórn- kerfi eru í upplausn. Erlendar skuldir á hvert mannsbarn í landinu nema um 4000 banda- ríkjadölum. Verðþensla nemur nálægt 70 af hundraði á ári. Atvinnuleysi gæti blasað við, þrátt fyrir margháttað góðæri.“ Þessi leið Vilmundar stefnir að því að framkvæmdarvaldið fái umboð sitt beint frá þjóðinni, líkt og Alþingi gerir í dag. Mjög er kallað eftir róttækri kerfisbreytingu af þjóð- inni og má til sanns vegar færa að þessi leið myndi uppfylla þá nauðsyn að byggja upp traust á milli þings og þjóðar. Framgangur mála ræðst af samkomulagi á milli þingsins og ríkisstjórnarinnar sem felur í sér vald- dreifingu. Gegnsæi, sem mjög er kallað eftir, hlyti að nást þegar einstök mál væru ekki á valdi einstakra ráðherra heldur væru rædd fyrir opnum tjöldum á Alþingi. Ráðherrarnir út fyrir vegginn Umrót síðustu mánaða hefur vakið upp spurninguna um stöðu Alþingis gagnvart framkvæmdarvaldinu. Hvernig má skilja frekar á milli handhafa ríkisvaldsins, lýðræðinu til framdráttar? Þessari spurningu hafa menn velt upp allan lýðveldistímann. FRÉTTASKÝRING: Endurskoðun stjórnarskrárinnar 1. hluti Framkvæmdarvald Forseti Ríkisstjórn Löggjafarvald 435 í fulltrúadeild 100 í öldungadeild Framkvæmdarvald Forseti Ríkisstjórn Dómsvald Hæstiréttur Fylkisdómstólar Héraðsdómstólar Kjósendur Kjósendur Kjósendur Dómsvald Hæstiréttur Héraðsdómstólar Forseti Stjórnkerfi Bandaríkjanna Stjórnkerfi Íslands Forseti getur beitt þingið neitunarvaldi. Fo rs et i t iln ef ni r d óm ar a. H æ st iré ttu r g et ur lý st y fir a ð að ge rð ir fo rs et a sa m ræ m ist e kk i s tjó rn ar sk rá . Þingið staðfestir val dóm ara, Þingið getur vísað dóm urum frá. H æ stiréttur getur lýst lög andstæ ð stjórnarskrá. Eftirlit (þingnefndir), þingið staðfestir emb- ættisveitingar, fer með fjárveitingarvaldið. Kjósendur Löggjafarvald 63 þingmenn Ráðherrar sitja á þingi Þingræði (ákveður forystu framkvæmdar- valdsins, eftirlit með framkvæmdarvaldinu.) Undirbýr lagasetningu. Áhrif á stjórnar- myndanir. (Takmarkast af þingræðisreglu). Hlutverk Alþingis: Fulltrúa- og umræðu- hlutverk: Að sjónarmið í samfélaginu hafi rödd. Löggjafarhlutverkið: Þingið er aðalhandhafi löggjafar- valdsins. Eftirlitshlutverkið: Vakta framkvæmdarvaldið og veita því aðhald. Fjárveitingarvald. Löggjafarvaldið: Fulltrúadeild: fjöldi fulltrúa eftir hlutfalli íbúa í ríkjum. Kjör- tímabil 2 ár. Öldungadeild: Tveir frá hverju ríki. Kjörtímabil 6 ár. Framkvæmdavaldið: Forseti er æðsti maður framkvæmdavaldsins og þjóðhöfðingi í senn. Forsetinn er yfirmaður bandaríska hersins. Undir forsetann heyra ráðuneyti og stofnanir með fjórar milljónir starfsmanna. Ráðherrar oftast 15. Helstu ráðgjafar forseta og sitja utan þings. Dómsvaldið: Skipan hæstaréttardómara er eitt mikilvægasta hlutverk forseta. Hæstiréttur er sá valdamesti í heimi og hefur mikil áhrif á lagasetningu. KOSTIR ■ Þingmenn hafa mikil tækifæri til að beita sér í þinginu. Minni möguleikar á fjölmennum þingum. ■ Hlutfallskosningar og líklegra að ólíkir hugmyndastraumar fái rödd. ■ Þingræðið er skilvirkt. Lagasetning einföld. ■ Valddreifing meiri en í forsetaræði. GALLAR ■ Misræmi í atkvæðavægi. Fyrir- greiðslupólitík. ■ Stjórnmálaflokkar mjög valda- miklir. ■ Valdheimildir forseta óskýrar. ■ Afskipti framvæmdarvalds af embættisveitingum. ■ Oddviti framkvæmdarvaldsins ekki kjörinn beinni kosningu. KOSTIR ■ Þingmenn sjálfstæðir, flokksræði ekki jafn sterkt og víða annars staðar. ■ Einfalt að bregðast við atburðum eða aðstæðum. ■ Stöðugra kerfi en þingræði. ■ Reglulegri kosningar. ■ Aðhald dómsvaldsins með laga- setningu. GALLAR ■ Frambjóðendur lítilla flokka eiga erfitt uppdráttar. ■ Kosið í fulltrúadeild á tveggja ára fresti sem gerir störf þeirra óskil- virk; eru alltaf í kosningabaráttu. ■ Tveggja flokka kerfi leiðir til eins- leitni. Takmarkar valkosti fjöldans. ■ Nær útilokað að koma forseta frá völdum. Getur vísað lögum til þjóðaratkvæða- greiðslu. Setur lög. Handhafar fram- kvæmdarvalds sjá um að framkvæma þá stefnu sem sett er af löggjafar- valdi og úrskurðað um af dómsvaldi. Á Íslandi er forseti æðsti handhafi framkvæmdar- valdsins. Hann framselur valdið til forsætisráðherra. Umboðskeðjan. Kjósendur fram- selja vald til þings, þing til forsætis- ráðherra eða ríkisstjórnar, stjórn til ráðherra, ráðherrar til ráðuneytis, ráðuneyti til stofnana og síðan til almennra starfsmanna í opinbera geiranum. D æ m ir um e m bæ tti s- ta km ör k yf irv al da FRÉTTASKÝRING SVAVAR HÁVARÐSSON svavar@frettabladid.is Fyrsti hluti af fjórum Á morgun: Saga stjórnarskrárinnar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.