Tíminn - 19.04.1986, Side 1
LAUGARDAGUR 19. APRÍL 1986 - 88. TBL. 70. ÁRG.
«*
LÁNSKJARAVÍSITALAN
hefur aöeins hækkað um 0,49% frá því í
síðasta mánuði og mun vísitalan 1432
gilda fyrir maí-mánuð. i spá Seðlabank-
ans eftir kjarasamningana var reiknað
með 0,8% hækkun á maí-vísitölu og að
hún yrði þá komin í 1437 stig.
Umreiknað til árshækkunar jafngildir
hækkun síðasta mánaðar 6,1% verð-
bólgu á heilu ári og 2,8% hækkun síðustu
3 mánuði 10,7% verðbólgu á ári.
SAMKOMULAG VIÐ
NORÐMENN , um skiptingu loðnu-
kvótans hefur náðst. Frá því var gengið í
gærmorgun. Alls ertalið leyfilegt að veiða
um 800 þúsund lestir á komandi vertíð. Af
þeim afla fengu íslendingar 650 þúsund
lestir og Norðmenn um 150 þúsund lestir.
Norðmenn eiga rétt á 15% af heildarkvóta
en áttu inneign frá síðustu vertíð og fengu
því meira sem því nam.
ÍSRAELSKUR leyniþjónustu-
maður spáði því f gær að Bandaríkjaher
myndi á næstunni gera aðra árás á Líbýu
og yrðu landqönguliðar meðal þátttak-
enda í þeirri áogerð. Ftaphael Eitan, sem
nýlega var látinn víkja úr starfi sínu sem
yfirmaður ísraelsku leyniþjónustunnar,
sagðist telja líklegt að Bandaríkjamenn
vildu binda enda á líf Khadafys Líbýuleið-
toga og því væri árás landgönguliða
nauðsynleg.
INDVERJI einn og ferðafélagi hans
komust ekki inn í Ástralíu á fölsuðum
vegabréfum sínum í gær. Mennirnir tveir
gátu ekki lesið ensku en keyptu samt
vegabréf með nöfnum er hljóðuðu ensku-
lega. Þurftu kapparnir að punga út sem
samsvarar um 120 þúsundum íslenskra
króna fyrir vegabréfin. Ástralskir innflytj-
endaverðir létu þó ekki gabba sig. Þeir
handtóku mennina tvo þegar annar þeirra
sagðist heita Susan Wallace.
SÉRLEYFISHAFAR og lang
ferðabílstjórar hjá Sleipni funduðu i gær
hjá sáttasemjara ríkisins. Fundurinn hófst
klukkan 17 í gær og stóð í tvo tíma. Hann
reyndist vera árangurslítill. Landleiðabíl-
stjórar hafa vísað máli sínu til sátta-
semjara, en fundur hefur enn ekki verið
boðaður í deilu þeirra.
FINNBOGI JÓNSSON verkf
ræðingur hefur verið ráðinn fram-
kvæmdastjóri Síldarvinnslunnar hf. í
Neskaupstað frá 1. júlí næst komandi.
Síldarvinnslan hf. er næststærsta sjáv-
arútvegsfyrirtæki á landinu. Samanlögð
velta fyrirtækisins var 990 milljónir króna
á síðasta ári. 450 manns vinna hjá
fyrirtækinu.
ALÞINGI kemur saman til funda í
dag og fundir voru þar í báðum deildum í
gær. Meðal mála sem voru afgreidd sem
lög frá þinginu í gær má nefna stjórnar-
frumvarp um talnagetraunir og stjórnar-
frumvarp um sakadóm í ávana- og fíkni-
efnamálum. Þá var samkomulag með
stjórnarflokkunum að hraða sem mest
afgteiðslu á frumvarpi ríkisstjórnarinnar
um Húsnæðisstofnunina.
TILBOÐ í Stálvíkurskipið, fjórða
raðsmíðaskipið, voru opnuð í gær og átti
Suðurvör í Þorlákshöfn hæsta tilboðið,
191,5 milljón krónur. Fjölmörg tilboð
bárust, þar af fimm yfir 180 milljónum.
KRUMMI
„Það er kannski
ekki skrýtið þó menn
hafi efni á þessum
skipum...
Neöanjarðarhagkerfið um 5-7% af landsframleiðslu:
Missti hið opinbera um
3.500 millj. skatttekjur?
- samsvarar nær 15 þús. á hvern landsmann
tapaður söluskattur hafi verið um
l, 3 milljarðar, eða um 11% af
þeim söluskatti sem skilaði sér.
Samkvæmt því ætti að vera hægt að
lækka söluskattsprósentuna niður
í a.m.k. 22,5% ef hann skilaði sér
allur.
Þeir sem að könnuninni stóðu
tóku skýrt fram að afar erfitt væri
að mæla starfsemi sem hvergi er til
og engar skýringar eru til um.
Vandinn við dulda atvinnustarf-
semi og skattsvik sé sá að hvorugt
sé nokkurs staðar skráð og allt gert
til að hylja verksummerki hjá þeim
sem taki þátt í þessum leik.
Að sögn hópsins rakst hann á -
fjölskrúðugan garð þegar að því
kom að skilgreina allar tegundir
duldrar efnahagsstarfsemi. Þar er
m. a. nefnt til: Vinna sem ekki er
gefin upp - greiðsla fyrir margvís-
lega þjónustu sem ekki er gefin
upp - nótulaus viðskipti - óuppgef-
in heimilisframleiðsla seld einstakl-
ingum eða kaupmönnum - óupp-
gefin húsaleiga - tekjur af okur-
starfsemi - smygl á hátollavörum
og sala á fíkniefnum. Auk þessa
komi svo margvíslegur undandrátt-
ur frá tekjustofnum.
Hvað varðar leiðir til úrbóta
leggur hópurinn m.a. til aðeinfalda
þurfi skattalögin með fækkun
undanþága og afnámi margs konar
frádráttarliða. Þá er lagt til að
herða þurfi ákvæði um refsingu
vegna skattsvika, þannig að stór-
felld skattsvik gætu þýtt allt að 6
ára fangelsisvist.
Jafnframt er lagt til að embætti
ríkisskattsstjóra verði breytt í
stofnun sem fari með heildarstjórn-
un skattamála bæði faglega og
verkstjórnarlega, þannig að öll úr-
vinnsla og erftirlit með framtölum
færi m.a. fram á einum stað. Þá
þurfi að gera átak í menntunarmál-
um starfsfólks og koma á fót „vík-
ingasveit" sérhæfðra skattrann-
sóknarmanna sem geri skyndi-
kannanir á bókhaldi fyrirtækja og
taki flókin og erfið framtöl til
rannsókna. Einnig þurfi að endur-
skoða skattalega meðferð hlunn-
indagreiðslna.
Þá telur nefndin nauðsynlegt að
herða bókhaldseftirlit og viðurlög
við bókhaldsbrotum. Lagt er til að
sekta fyrir slík brot og jafnvel
svipta menn starfsréttindum.
-HEI
Að velta íslenska neðanjarðar-
hagkerfisins sé um 5-7% af vergri
landsframleiðslu, eða um 5,5 til 7,5
milljarðar króna árið 1985 er sú
niðurstaða. sem komist var að í
starfshópi, sem undanfarið ár hefur
unnið að úttekt á umfangi skatt-
svika, á vegum fjármálaráðuneytis-
ins. Þar er um svipað hlutfall að
ræða og menn áætla í nágranna-
löndum okkar.
Skatttekjur sem ríkissjóður og
bæjarfélög urðu af vegna þessa eru
taldarum 2,5 til 3,5 milljarðar kr.
árið 1985, sem er um 7-9% af
heildarskatttekjum hins opinbera
það ár. Til samanburðar má nefna
að innheimta allra beinna skatta
ríkissjóðs var rúmlega 3,3 milljarð-
ar króna í fyrra. Talið er að
Mikinn reyk lagði upp af eldinum í Skipholti í gær kvöldi.
Tímamumd: Ámi Bjarna.
Stórbruna
forðað
Litlu munaði að stórbruni yrði
í Skipholtinu í Reykjavík í gær-
kvöldi þegar cldur kom upp í
skúr sem var áfastur húsi Vöru-
kaupaaðSkipholti 15. Slökkviliði
Reykjavíkur tóksi þó að koma í
veg fyrir að eldurinn bærist í
húsin við hliðina, þarsem m.a. er
trésmíðaverkstæði, en tjón varð
þó talsvert í brunanum þar sem
skúrinn var vörulager Vöru-
kaupa.
Skúrinn var alelda þegar
slökkviliðið kom á staðinn, en í
honum voru m.a. plastvörur og
hálmur, svo mikinn reykjarmökk
lagði upp af eldinum, og sást
hann langt að. Eriftt var að ciga
við slökkvistarf vegna reyksins
en samt tókst að ljúka því á uni
40 mínútum.
Vakt var höfð við húsið eftir að
slökkvistarfi lauk þar sem glæður
leyndust víða í brunarústum. Ekki
var vitað í gærkvöldi hver elds-
upptök voru en Rannsóknarlög-
regla ríkisins hafði málið til rann-
sóknar.
GSH
Oddeyri kaupir raðsmíðaskip
- Kópaskersmenn gagnrýna málsmeðferð
Slippstöðin á Akureyri seldi í
gær Oddeyrinni hf. á Akureyri
annað raðsmíðaskipið sem þar hef-
ur verið í smíðum. Kaupverð var
1683 milljón krónur, miðað við
verðlag í janúar 1986.
Þessi viðskipti hafa ekki gengið
gagnrýnislaust fyrir sig, en sam-
kvæmt tillögum nefndar sem mat
tilboðin í raðsmíðaskipin ^rir
hönd Ríkisábyrgðarsjóðs á sínum
tíma átti Slippstöðin að selja skipið
Útgerðarfélagi Kópaskers.
Talað var um að Útgerðarfélagið
þyrfti að uppfylla ákveðin skilyrði
til að fá skipið, en eftir að þeim hafði
verið gefinn ákveðinn frestur til að
uppfylla þessi skilyrði og ekki tek-
ist það, var gengið til viðræðna við
næstbjóðanda, Oddeyrina hf. á
Akureyri en það er fyrirtæki í eigu
Akureyrarbæjar, Samherja hf. og
K. Jónsson & Co.
Skilyrðin sem þeim Kópaskers-
mönnum var gert að uppfylla
snertu breytingu á bankaábyrgð
frá Samvinnubankanum á staðnum
og tryggingu fyrir því að þeir gætu
veitt 4-5 milljónum inn í fyrirtækið
á ári næstu 4-5 árin til þess að
standa undir greiðslu á afborgun-
um og vöxtum stofnlána. Til þess
að uppfylla þessi skilyrði var á
sínum tíma veittur ákveðinn frest-
ur og var sá frestur sá sami fyrir alla
þá aðila sem hugðust kaupa skip
eða til hádegis sl. miðvikudag, að
sögn Sigurðar Þórðarsonar sem er •
formaður nefndarinnar sem mat
tilboðin í raðsmíðaskipin fyrir
hönd Ríkisábyrgðarsjóðs. Kristján
Ármannsson oddviti á Kópaskeri,
sagði hins vegar að aðstandendum
Útgerðarfélagsins hafi fyrst borist
tilkynning um þennan frest á
mánudagskvöld í skeyti frá Slipp-
stöðinni á Akureyrí. Einn og hálfur
dagur væri fjarri því að vera nóg til
þess að þeir gætu gengið frá sínum
málum, það tæki heilan dag bara
að komast til Reykjavíkur. Gunnar
Ragnars forstjóri Slippstöðvarinn-
ar á Akureyri sagði í samtali við
Tímann í gærkvöld, að það væri
rétt að líklega hefði ekki verið
tiltekinn ákveðinn frestur í þessu
sambandi en hins vegar hefðu þeir
verið beðnir um að flýta því að
ganga frá sínum málum og þeir
hefðu haft til þess 9 daga án þess
að gera það.
Ljóst var á þriðjudagskvöld að
Kópaskersmenn myndu ekki geta
uppfyllt skilyrði matsnefndar
Bjargráðasjóðs á tilsettum tíma
því þá um kvöldið var þeim synjað
um lán frá Byggðastofnun. Þá
sóttu þeir um að fresturinn yrði
framlengdur til nk. mánudags, en
fengu ekki. Skipið var því selt
Oddeyrinni hf. á Akureyri, og sú
sala háð samþykki Bjargráðasjóðs.