Tíminn - 19.04.1986, Síða 2
2 Tíminn
Laugardagur 19. apríl 1986
Um 90% allra 30 ára karla og eldri nú íbúðareigendur:
HUSNÆDISEIGN STORLEGA
JAFNAST MILLI STÉTTA
Þriðjungur með meira en 40 ferm. á mann
Efnaleg afkoma ungra íslendinga,
þ.e. 30-44 ára karlmanna - mæld í
húsnæðis- og bíláeign - er mun betri
og þó sérstaklega miklu jafnari milli
starfsstétta heldur en hjá jafnöldrum
þeirra fyrir tæpum tveim áratugum
(1967-1968) að því er ráða má af
víðtækri könnun sem gerð hefur
verið á vegum Hjartaverndar. Að-
eins 'iumi 10% hafa ekki eignast íbúð
af þessum aldursflokki nú en var
20% áður. Aðeins um 7% eru bíllaus
á móti 18% jafnaldra þeirra fyrir.
tæpum 20 árum.
Ófaglærðir efnast mest
Langsamlega mest hefur breyting-
in orðið í hópi ófaglærðra, erfið-
isvinnumanna og bílstjóra, sem nú
skera sig orðið lítið úr öðrum þjóð-
félagshópum hvað íbúða- og
bílaeign snertir. Aðeins um 14%
þessara stétta á aldrinum 30-44 ára
hefur ekki eignast íbúð nú á móti
38% stéttarbræðra þeirra og jafn-
aldra áður. fbúðaeign þeirra er nú
orðin litlu minni en meðaltoppanna,
iðnaðarmanna og atvinnurekenda.
Fáir búa orðið þröngt
Athyglivert er einnig, að stærðar-
munur húsnæðis milli einstakra
stétta virðist heldur ekki eins mikill
og ætla mætti. Aðeins um 8% allra
á þessum aldri búa við þrengra
húsnæði en 20 ferm. fyrir hvern
fjölskyldumeðlim. Fæstir - um 5% -
eru þeir í hópi atvinnurekenda, sem
einnig mætti ætla að væru að meðal-
tali eldri en hópurinn í heild. En það
er heldur ekki nema 12-13% þeirra
ófaglærðu sem ekki eiga íbúð. í
þeirri stöðu voru hins vegar um 42%
ófaglærðra áður, og um fjórðungur
iðnaðarmanna, háskólamanna og at-
vinnurekenda á þessum aldri. Með
öðrum orðum - verkamenn búa nú
almennt mun rýmra en best settu
stéttir þjóðfélagsins fyrir aðeins 18-
19 árum.
Sé svo litið á þá sem hafa 40
fermetra eða meira til ráðstöfunar á
mann kemur í ljós að um þriðjungur
allra karla á þessum aldri hefur svo
rúmt um sig og fjölskyldur sínar.
Hér er þó um þann aldurshóp manna
að ræða að ætla má að hann hafi
þegar eignast flest börn sín, en að fá
þeirra séu enn farinn að heiman.
Hæst er hlutfallið þarna um 40%
meðal atvinnurekenda og háskóla-
manna, en 23-26% verka- og iðnað-
armanna búa einnig svo rúmt. Að-
eins um 10% allra karla á þessum
aldri bjó svo rúmt 1967-68, þannig
að stækkun húsrýmis hefur verið
mjög mikil meðal allra stétta.
Flestir orðnir
húseigendur þrítugir
Mjög athyglivert er einnig að nær
enginn munur er nú á íbúðaeign
30-44 ára karla annars vegar og
41-61 árs karla hins vegar - og er það
þó sá hópur sem ætla mætti að hvað
kjörnast tækifæri hafi haft til að nota
sér ódýrt lánsfé á óðaverðbólguárun-
um á 8. áratugnum sem margir hafa
talað um. Þetta virðist jafnframt
benda til, að menn séu almennt
komnir í eigið húsnæði um þrítugt,
ella hefðu yngri mennirnir í 30-44
ára hópnum dregið meðaltalið
niður. Sú virðist einnig raunin á í
einu undantekningunni, þ.e. há-
skólamennimir sem álíka margir eru
íbúðarlausir í yngri hópnum og þeir
ófaglærðu, enda stutt frá námslok-
um margra þeirra um 30 ára aldur-
inn, hvort sem það er svo eina
skýringin.
Einnig þeir ólofuðu
Karlar á aldrinum 30-44 ára eru
um 24.500 í landinu þar af er vel yfir
fjórðungurinn enn ógiftur, eða
skilinn, hlutfallslega flestir meðal
þeirra yngstu í hópnum. Um 90%
íbúðareign bendir því til að íbúða-
kaup séu einnig mjög algeng meðal
ungra manna og ólofaðra.
Hvað bílana snertir eru það nú
aðeins 7% manna á þessum aldri
sem voru bíllausir þegar könnunin
var gerð á móti 18% jafnaldra þeirra
áður. Segja má að bílaeignin hafi
aukist hlutfallslega svipað meðal
manna í öllum starfsgreinum.
Framangreindar upplýsingar hef-
ur landlæknir unnið úr gögnum
Hjartaverndar eftir hópskoðanir yfir
1 þús. karla í nefndum aldursflokk-
um á Stór-Reykjavíkursvæðinu á
árunum 1967-1968 og síðan 1983-
1985. Verið er að vinna nánar úr
þeim gögnum m.a. samsvarandi
upplýsingar um kvenþjóðina. Fram-
angreind íbúða- og bílaeign er þó
auðvitað sameign giftu karlanna og
eiginkvenna þeirra. -HEI
IHfon-U ít'ílnri
50 4
1)
P) 3)
4)
□ tnr,7_r,n
□ 19R3-nr,
i 6f»í»l-irðlr, erflðlnvinn.u-.
i okrlfnt.-, vorolpúit-
i lðnnðnnnenn
1 hAnkólnnenntnðlr
i atvlnnurekendur
i »ðrlr
Hér má glöggt sjá hve íbúðareign
hinna ýmsu stétta þjóðfélagsins á
aldrinum 30-44 ára hefur jafnast
mikið á tæpum tveim áratugum,
og jafnframt aukist í heild úr 80%
í 90% meðal allra karla á þessum
aldri á Reykjavíkursvæðinu, (aft-
asti dálkurinn). Árin 1967-68 áttu
aðeins rúmlega 60% ófaglærðra
á þessum aldri íbúð á móti yfir
90% í hópi atvinnurekenda - nú
er munurinn aðeins orðinn um
5%.
0LJ
□ Bílaeignin hefur eins og íbúðirnar
□ jafnast mjög á síðustu 18-19 árum
og jafnframt aukist úr um 82% í
93% meðal allra 30-44 ára karla.
Hlutfallslega mest hefur hún auk-
ist meðal ófaglærðra og há-
skólamanna.
) hAnkólfvaonnt.iðt-
) ntvlnnu'-eken-l'i--
I nflrlr
*C
1) 6f«í5l-*rðlr, erfiðlivlnnunenn, bílnt.Jórnr
2) skrlfst.-, rersl.-, pést- oc lbcrerl'inenn
3) lflnnflnmonn
4) hÍ3''6.',.«.iionntaðir
fi) nðrlr
Á efri hluta töflunnar má sjá að
nú býr um þriðjungur allra;30-44
ára karla í 40 fermetra íbúðar-
húsnæði eða stærra á hvern fjöl-
skyldumeðlim, þrátt fyrir að ætla
mætti fátítt að börn séu farin að
heiman frá fjölskyldum á þessum
aldri. Á neðri hluta töflunnar sést
m.a. að aðeins um 7% alls hóps-
ins býr nú við undir 20 fermetra
húsrými á mann samanborið við
þriðjung áður og jafnframt að
hlutfallslega helmingi færri ófag-
lærðir búa nú svo þröngt heldur
en það hlutfall forstjóra var 1967-
68. (
í dag verður opnuð í Norræna húsinu sýning sem kallast „Straumur í norrænni byggingarlist“. Það er Arkitekturgalieriet SKALA í Kaupmannahöfn
sem stendur að uppsetningunni. sýningin stendur frá 19. til 28. apríl. Á myndinni sjást íslensku þátttakendurnir.
Framsóknarmenn í Kópavogi:
Listinn tilbúinn
Mið-Evrópa:
Ódýrari gistingar
. Framboðshsti Framsóknarflokksins við
bæjarstjórnarkosningarnar 31. maí 1986.
1. Skúli Sigurgrímsson, bæjartulltrúi
Kársnesbraut 99
2. Guðrún Einarsdóttir, skrifstofum.
Víðihvammi 29
3. Elín Jóhannsdóttir, kennari,
Þinghólsbraut 41
4. Einar Bollason, kennarí,
Hlíðavegi 38
5. Guðleifur Guðmundsson, kennarí
Þinghólsbraut 39
6. Þorsteinn Kr. Björnsson, tæknifr.
Álfhólsvegi 103.
7. Ásta Hannesdóttir, kennari,
Hjallabrekku 13.
8. Brynhildur Jónsd., skrifstofum.
Engihjalla 9.
9. Hrafn Harðarson, bæjarbókav.
Meðalbraut 2.
10. Þórlaug Stefánsdóttir, nemi,
Digranesvegi 71.
11. Bragi Árnason, prófessor,
Laufbrekku 1.
12. Magnús Þorkell Bernhardsson
ncmi, Hlíðavegi 6
13. Guðmundur Þorsteinss., námsstj.
Digranesv. 16
14. Guðrún Gísladóttir, húsm.
Hrauntúngu 44.
15. Helga Jónsdóttir, aðstoðarm.
forsætisráðh., Þinghólsbraut 75.
16. Þorvaldur Guðmundsson, vélstj.
Furugrund 4.
17. Magnús Guðjónsson, stýrim.
Hamraborg 18.
18. Hulda Pétursdóttir, verslunarm.
Sunnubraut 16.
19. Jón Guðl. Magnússon, forstj.
Skjólbraut 20.
20. Jónína Stefánsdóttir, matvælafr.
Borgarholtsbraut 60.
21. Ragnar Snorri Magnússon,
framkvstj., Álfhólsvegi 107.
22. Katrín Oddsdóttir, starfsm. í
heimilishjálp, Álfhólsvegi 8a.
Listinn var samþykktur á fundi Full-
trúaráðs Framsóknarfélaganna þann 17.
apríl 1986.
Miklar afpantanir Bandaríkja-
manna í sumarleyfisferðir geta orð-
ið til þess að íslenskir ferðamenn
geta fengið heldur ódýrari gistingu
í Mið-Evrópu í sumar. Afpantanir
vegna hræðslu við hryðjuverk í
flugvélum á leiðum Bandartkja-
manna til Evrópu hefur valdið því
að allt upp undir áttatíu prósent af
ferðamönnum í einstökum flugvél-
um hafa afpantað flugfar. Mikið
verður af lausum hótelplássum í
sumar í Mið-Evrópu.
Helgi Daníelsson markaðsstjóri
hjá Samvinnuferðum/Landsýn
sagði í samtali við Tímann í gær að
ekki væri um að ræða sömu mark-
aði sem bandarískir ferðamenn og
íslenskir sæktu á. „Það er þó
fyrirsjáanlegt að hægt verður að fá
gistingu heldur ódýrari í sumar í
Evrópu. Það er ekki ljóst hvenær
þetta gerist, hvort það verður í
júní eða júlí,“ sagði Helgi.
E.S.