Tíminn - 19.04.1986, Qupperneq 5
Tíminn 5
Laugardagur 19. apríl 1986
liilllllllllJllllllllllllll ÚTLÖND lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllill
Japan:
Njótið ávaxta
lífsstritsins
Tokyo-Reuter
Japanar hafa veriö hvattir til að
auka víðsýni sitt og byrja á að njóta
lífsgæðanna sem þeir hafa til unnið.
í skýrslu nefndar, sem sett var á
stofn af hinu öfluga viðskipta- og
iðnaðarráðuneyti, eru Japanar sagð-
ir verða „að skapa sér nýjan lífsstíl í
samræmi við breytta tírna".
Skýrsla þessi kom út í gær og taldi
einar 170 blaðsíður. Þar er lífi hins
almenna launaþræls lýst á eftirfar-
andi hátt: „Hann yfirgefur þrönga
íbúð sína á hverjum morgni, lendir
í yfirfullum lestum og er hent til og
frá á leið sinni í vinnuna. Hann
stimplar sig inn á nútímalegri skrif-
stofu og vinnur þar langt fram á
kvöld.“
Japanar eru hvattir til að minnka
launastrit sitt og kynnast meir lífinu.
Þá er í skýrslunni bent á nauðsyn
þess að japanskir borgarar kynnist
útlendingum betur. jafnvel með því
að dveljast um tíma erlendis til að
kynnast ólíkum siðum.
Etið McDonalds og slappað af. Samkvæmt skýrslu cinni sem nýkomin er út í Japan er mikilvægt að auka víðsýni
og fjölga frítímum þarlendra launaþræla.
Suöur-Afríka:
lllræmdum lögum aflétt
Höfðaborg-Reuter
Pravda deilir
á leikhúsverk:
Leikrit lök
í Leníngrad
Moskva-Rcuter
Pravda, dagblað sovéska
kommúnistaflokksins, sagði í
grein í gær að leikhúsverk þau er
sýnd væru í Leníngrad færu
versnandi. Sökinni var skellt á
leikstjóra sem sagðir voru fela
alvarleg málefni á bak við létt-
vægar leikgerðir sínar.
Greinin í Prövdu var enn eitt
merki um þær líflegu umræður
um sovéskar listir sem nú fara
fram í þarlendum fjölmiðlum. í
greininni voru leikstjórar sagðir
hafa meiriiáhuga á fjölda áhorf-
enda en gæðum verksins.
Að sögn greinarhöfundarins
voru engin „alvarleg verk um
nútíma vandamál" sett upp í
leikhúsum Leníngradborgar á
síðasta leikhúsári.
Mikhail Gorbachev leiðtogi
Sovétríkjanna sagði í ræðu sinni
á síðasta flokksþingi kommúnista
að listir ættu fyrst og fremst að
mennta fólk í samræmi við hug-
myndafræði yfirvalda. Par fylgdi
hann gamalkunnri flokkslínu en
hvatti þó til líflegri og frum-
legri leikverka - hvernig sem
þetta tvennt fer saman.
P.W. Botha forseti Suður-Afríku
tilkynnti þingheimi þar í landi í gær
að stjórnvöld ætluðu að aflétta lög-
um þeim sem komið hafa í veg fyrir
Fornleifafræðingur einn heldur
því fram að Bandaríkjamenn ljúgi
oft til um slæmar venjur sínar er
gerðar eru neytendakannanir þar í
landi. Sönnun þessarar fullyrðingar
er að finna í ruslatunnum neytend-
anna.
William Rathje prófessor við há-
skólann í Arizona hélt áðurnefndu
fram í ræðu sem hann flutti á
samkundu fornleifafræðinga. Að
sögn hans átu íbúar bæjar eins í
Arizonafylki um 20 sinnum meira af
súkkulaði og 15 sinnum meira af
pöstu en þeir viðurkenndu í neyt-
endakönnun þar í bæ. Þessar niður-
stöður fengust eftir að kafað hafði
frjálsar ferðir svertingja um landið.
Hann sagði alla þá svertingja, sem
haldið væri föngnum vegna laga
þessara, verða látna lausa á næst-
unni.
verið oní ruslatunnur einstaklinga
þeirra er spurðir voru spjörunum úr
í neytendakönnuninni.
í öðrum bæ sögðust 85% þeirra er
þátt tóku í skoðanakönnun þar ekki
drekka bjór. Hins vegar fundust
tómar bjórdósir í þremur af hverjum
fjórum ruslatunnum íbúa staðarins.
Rathje skýrði einnig frá rannsókn
einni í Marinfylki í Kaliforníu, einu
ríkasta fylki landsins. Þar kom í ljós
að á mörgum heimilum var pakkn-
ingum af dýru whiskýi hent en ekki
flöskunum sjálfum. Sagðist Rathje
draga þá ályktun af þessu að flösk-
urnar væru fylltar að nýju með
ódýrara whiskýi.
Forsetinn sagði að frá og með
næstu viku verði ekki um frekari
handtökur að ræða vegna laganna.
Talið er að um 20 milljónir svert-
ingja hafi verið handteknar á þessari
öld vegna brota á þessum lögum.
Raunar hafa þau verið í gildi síðan
á 18. öld í ýmis konar formi.
Helsti tilgangurinn með lögunum
var að koma í veg fyrir flutninga
svertingjafjölskyldna frá sveitum
landsins til borganna. Þarsem fátækt
er mikil á flestum svæðum þeim sem
ætluð eru svertingjum hafa lögin
einnig orðið til þess að stór farand-
verkahópur svertingja hefur verið
fluttur milli staða til vinnu. Réttindi
þeirra eru takmörkuð og margar
fjölskyldurnar hafa sundrast vegna
þessara aðstæðna.
Botha tilkynnti fyrr á þessu ári um
fyrirhugaðar breytingar á þessum
lögum þar sem þau væru orðin of
flókin og dýr í framkvæmd.
Samkvæmt heimildum munu suð-
ur-afrísk stjórnvöld hafa áhyggjur af
geysilegri fjölgun svertingja á
svæðunum sem þeim eru ætluð. Er
jafnvel talið að stjórnvöld hvetji
svertingja til að setjast að í borgun-
um og um leið er vonast til að
barneignum þeirra fækki.
Botha afneitaði í ræðu sinni í gær
vestrænu lýðræðisfyrirkomulagi í
landinu en sagðist ætla að halda
áfram að beita sér fyrir endurbótum
á aðskilnaðarlögunum.
Atvinnuleysi:
Langtíma
vandamál
Genf-Reuter
í skýrslu Alþjóða verkamanna-
sambandsins (ÍLO) sem nýlega
kom út er gert ráð fyrir að
atvinnuleysi aukist í sumuni iðn-
ríkjum næstu tvö árin.
Einnig er bent á að atvinnuleysi
muni koma til með að verða
alheimsvandamál um ófyrirsjáan-
lega framtíð.
Skýrsla þessi var samin af
Francis Blanchard framkvæmda-
stjóra ILO og benti hann á að
flestar ríkisstjórnir álitu nú at-
vinnuleysi „vera langtíma vanda-
mál frekar en að standa einungis
í sambandi við tímabundin efna-
hagsvandamál."
Rúmlega 30 milljónir manns
voru atvinnulausar á sfðasta ári
í iðnríkjunum. Er hér um að
ræða 8% af heildarvinnuafli þess-
ara ríkja. í Vestur-Evrópu einni
voru um 11% vinnufærs fólks án
vinnu eða í heildina um 19 mill-
jónir einstaklinga.
Samkvæmt skýrslunni lifir
milljarður vinnandi fólks í ríkjum
þriðja heimsins við fátækt og án
þess að njóta félagslegrar hjálpar
af neinu tagi.
Bandaríkin:
Ruslið kemur
upp um fólk
Montreal-Reuter
Njótið þess að fara til Benidorm 6. maí í beinu
Gistimöguleikar eru fjölmargir í mismunandi verðflokkum.
Hótel með fæði og íbúðir af ýmsum stærðum. ósvikið
þriggja vikna frí í spánska vorinu á hvítu ströndinni Costa
Blanca. Pantið tímanlega.
VERÐ DÆMI:
25.700kr.pr. mann. Tveir í studioíbúð.
19.500 kr.pr.mann.Tveir fullorðnir og tvö böm í íbúð.
Iferða^H
MIÐSTOÐIN
sll
Cz+tiud