Tíminn - 19.04.1986, Side 8
8 Tíminn
Laugardagur 19. apríl 1986
Fulltrúar
sænska
Lactamin
fyrirtækisins
í heimsókn
Nú erum við að skoða aðstæður
hér á íslandi. Ætlunin var að
heimsækja rannsóknarstöðvar hér,
en veðrið kom í veg fyrir það. En
það vitum við um fiskirækt á íslandi
að aðstæðurnar hér á landi eru
sérlega góðar. Vatnið er mjög
hreint og hitastig fremur stöðugt
og þar sem þegar er fengin mikil
þekking á fiskeldi eru mögu-
leikarnirótæmandi. Hvað loðdýra-
ræktina varðar þá heyri ég að hér
skorti á að birta sé næg, en Ijós er
dýrunum mjög mikilvægt. Lofts-
lagið hér á landi býður upp á
forsendur til framleiðslu ágætrar
skinnavöru.
Það er auðskilið að íslendingar
vilja helst ekki flytja inn dýr, þar
sem þeir hafa af því bitra reynslu.
t.d. af sauðfé.
Arnór Valgeirsson, deildarstjóri Fóðurvörudeildar, Carl Johan Lindberg, framkvæmdastjóri Lactamin og Jón Þór Jóhannsson, framkvæmdastjóri
Búnaðardeildar.
Búnaðardeild SÍS flytur inn
háþróaðar sænskar fóðurvörur
Þeir báru hitann og þungann af tæknilegu viðræðunum við fulltrúa Lactamin: Þröstur Óskarsson, sölufulltrúi
búrekstrardeildar, Carl Johan Lundberg, Hans Jungved, þróunarstjóri Lactamin og dr. Árni Bragason,
ráðunautur í fóðurvörudeild.
Nýlega voru hér á ferð fulltrúar
sænsku fóðurvöruframleiðend-
anna Lactamin í Svíþjóð, þeirCarl
Johan Lindberg, aðalforstjóri, og
Hans Jungvid, þróunarstjóri. Þeir
voru hingað komnir til viðræðna
við Búnaðardeild Sambandsins,
sem nýlega hefur tekið upp við-
skipti við hið sænska fyrirtæki með
fóðurvörur fyrir ýmsar aukabú-
greinar í huga, eins og loðdýra og
fiskirækt, semersérsvið Lactamin.
Við báðum hr. Carl Johan Lind-
berg að greina okkur frá starfsemi
Lactamin.
Lactamin er fyrirtæki, sem ætl-
að er að sjá 19 mismunandi sam-
vinnufélögum bænda fyrir fóður-
vörum þeim sem best henta hverju
og einu þeirra. Hér er sem sé ekki
um að ræða vörur framleiddar í
miklu magni. Þessi 19 samvinnufé-
lög eru eigendur Lactamin og jafn-
framt stærstu viðskiptavinirnir.
Helstu framleiðsluvörur okkar eru
efni tii fóðurframleiðslu, svo sem
vítamín og hverskyns steinefni. Til
dæmis vinnum við sérstök næring-
arefni ætluð í kálfafóður. Við fram-
leiðum fóðurefni fyrir margar dýra-
tegundir. Aðaláherslan er samt
lögð á fóður fyrir refi, minka og
fiska, einkum regnbogasilung, en
líka í litlum mæli fyrir marsvín og
kanínur. Við fáumst líka við fram-
leiðslu hestafóðurs, hundafóðurs
og fóðurs handa fleiri dýrategund-
um. Þá er ógetið um framleiðslu á
lyfjum fyrir dýr, en heilsuvernd
dýra er mikið vandamál í Svíþjóð,
ekki síst júgurbólga í kúm. Því
erum við að framleiða nýtt lyf, sem
ekki skilur eftir aukaefni í mjólk-
inni, eins og joð, sem við ætlum að
verði bannað að nota í framtíðinni.
Við hyggjumst vinna í anda fram-
tíðarmarkmiða, sem taka fullt tillit
til umhverfisþátta.
Víðtækari samskipti
Ef við lítum til grannlandanna,
Finnlands, Noregs, Danmerkur og
íslands, þá tökum við frarri að við
þykjumst hafa þeim ýmislegt að
bjóða, bæði með því að selja þeim
vörur frá okkur og einnig samvinnu
grundvallaða á þekkingu okkar.
Það á einkum við um fiskiræktina
og loðdýraræktina.
Við teljum okkur jafnoka
Norðmanna í framleiðslu fiskfóð-
urs, þótt þeir standi mjög framar-
lega í fiskirækt og á sumum sviðum
stöndum við þeim framar, en við
höfurn átt við þá náið og ánægju-
legt samstarf.
Nú eru aðstæður víðast hvar
þannig að offramleiðsla er í hefð-
bundinni landbúnaðarframleiðslu
og þá beinist athyglin að loðdýra
og fiskirækt.
Þetta á við um öll þau
lönd sem ég á skipti við, ekki síst
íslands og sama þróun á sér stað á
hinum Norðurlöndunum. Því er
það ákaflega æskileg að löndin geti
notfært sér reynslu hvert annars,
því hvert fyrir sig starfar á ýmsan
hátt mcð sínum sérstaka hætti.
Slíkt soaraði öllum erfiði og styrkti
samkeppnisaðstöðuna út á við og
inn á við.
Framleiða fyrir
300 millj. s.kr.
Við höfum okkar eigin vcrk-
smiðju á Austur-Gotlandi, þar sem
við framleiðum 30 þúsund tonn af
vörum okkar. Jafnframt er þarna
aðalbirgðastöð okkar svo þarna
fara 70 þúsund lestir í gegn árlega.
Ársveltan er 300 milljónir sænskra
króna.
Búfjársjúkdómar kosta Svía
miklar fjárhæðir á ári hverju, og
mjólkurbændur tapa vegna þeirra
um 250 millj. skr. árlega. Hvað
mink varðar, þá finnst í Svíþjóð
sjúkdómur sem nefnist „plasmac-
ytosis" og er alls óþekktur á Is-
landi. í fiskirækt í Svíþjóð og í
Noregi stríða menn við vanda
vegna sníkjudýra. Það er ekki
ofreiknað að sænska búnaðarsam-
bandið verji 20 milljónum skr. á ári
í rannsóknir og þróun á fóðri.
Rannsóknirnar beinast nú meira
og meira að hærri vörugæðum og
sífellt meira tillit er tekið til þess að
bæta líðan skepnanna. Því erum
við að reyna að auka við gæðaþátt-
um í fóðrið, án þess að beita
lyfjagjöf í sama mæli og var.
Eftir sem áður reynum við að
haga framleiðslunni þannig að
kostnaði sé haldið f lágmarki. Það
verður best gert með því að fram-
leiða færri og betri fóðurtegundir.
Eins og við sögðum eru aðal-
stöðvar Lactamin á Austur-Got-
landi, en alls rekur SLR 19 verk-
smiðjur og rannsóknastofur eru í
flestum þeirra. Þar má sannreyna
að gæði vörunnar séu þau sem til
er ætlast, en um getur verið að
ræða kjötmjöl, fiskimjöl, fitumjöl
o.s.frv. Okkur er líka kleift að
rannsaka hvaða áhrif fiskimjöls-
fóður hefur á svínakjöt, en um
skeið höfum við keypt fiskimjöl í
fóðrið frá íslandi.
Ég endurtek að ef hægt er að
koma á nánara sambandi milli
Norðurlandanna á þessu sviði, á
það að geta stuðlað að ódýrari
vörum og auknum gæðum þeirra.
Carl Johan Lindberg sagði að
samstarf Lactamin og Búnaðar-
deildar Sambandsins hefði hafist á
s.l. ári, eftir að framkvæmdastjóri
Búnaðardeildar, Jón Þór Jóhanns-
son, hefði heimsótt Lactamin og
kynnt sér starfsemi fyrirtækisins.
Nú þegar hefði Búnaðardeildin
hafið innflutning á fiskafóðri,
hundafóðri, kanínufóðri svo og
kolvetnafóðri til notkunar við fóð-
urframleiðslu hjá Fóðurstöðvum
loðdýraframleiðenda. Ennfremur
áformar Búnaðardeildin að bjóða
kolvetnafóður frá Lactamin sem
henti framleiðendum að fiskafóðri.
Innflutningur á vítamín- og
steinefnablöndum fyrir hinar ýmsu
fóðurtegundir, sem Fóðurblönd-
unarstöð Sambandsins og Fóður-
blöndunarstöð K.E.A. framleiða,
er að hefjast og aðrar vörur og
búnaður í athugun, sem ekki er
tímabært að greina frá að svo
stöddu.
Carl Johan Lindberg lýsti
ánægju sinni með að samstarf hefði
tekist á milli samvinnusamtaka
bænda í Svíþjóð og á íslandi og
sagðist binda miklar vonir við það
samstarf, enda væri samvinnuhreyf-
,'ingin á íslandi öflug og léti við-
skiptamönnum sínum í té marg-
háttaða þjónustu um land allt.