Tíminn - 19.04.1986, Qupperneq 16
Laugardagur 19. apríl 1986
16’ Tíminn
FLUGLEIDIR
Hluthafafundur
Almennur hluthafafundur verður haldinn fimmtu-
daginn 15. maí í Kristalsal Hótel Loftleiðaog hefst
kl. 15.00. En ekki kl. 15.30 eins og auglýst var þ.
15. þ.m.
Tillaga um útgáfu jöfnunarhlutabréfa, þannig að
núverandi hlutafé verði þrefaldað.
Verði tillagan samþykkt breytast samþykktir fé-
lagsins samkvæmt því.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar verða afhentir á
aðalskrifstofu félagsins frá og með 12. maí nk. frá
kl. 08.00-16.00.
Afhendingu atkvæðaseðla lýkur kl. 14.00 fundar-
dag.
Stjórn Flugleiða hf.
fFrá Skólaskrifstofu
Reykjavíkur
Innritun skólaskyldra barna og unglinga sem þurfa að
flytjast milli skóla fyrir næsta vetur fer fram í Skólaskrif-
stofu Reykjavíkur, Tjarnargötu 12, sími 28544, mánu-
daginn 21. og þriðjudaginn 22. apríl n.k., kl. 10-15 báða
dagana.
Þetta gildir um þá nemendur, sem flytjast til Reykjavíkur
eða úr borginni, koma úr einkaskólum eða þurfa að
skipta um skóla vegna breytinga á búsetu innan
borgarinnar.
Það er mjög áríðandi vegna nauðsynlegrar skipulagn-
ingar og undirbúningsvinnu að öll börn og unglingar
sem svo er ástatt um verði skráð á ofangreindum tíma.
Þá nemendahópa, sem flytjast í heild milli skóla að
loknum 6. bekk, þarf ekki að innrita.
flugvallarvarðar
á Siglufirði er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur, menntun og
fyrri störf, sendist samgönguráðuneytinufyrir9. maí 1986.
Útboð
Byggingarnefnd stjórnsýsluhúss í Búðardal, f.h.
eigenda, óskar eftir tilboðum í 3. verkhluta,
innréttingar, í 1. áfanga hússins.
Helstu verkþættir eru: tréverk, dúka- og korklögn,
innihurðir og innréttingar, málun, hreinlætistæki
og rafkerfi.
Útboðsgögn verða afhent hjá Hönnun hf., Síðu-
múla 1, Reykjavíkog áskrifstofu Laxárdalshrepps,
Búðardal, gegn 10.000,- kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu Láxárdalshrepps
þriðjudaginn 13. maí nk. kl. 14.00.
Byggingarnefnd
+
Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför móður
minnar, tengdamóður og ömmu
Olgu Valdimarsdóttur
frá Æðey
AnnaJensdóttir Sigurður Jónsson
Arnaldur Sigurðsson
Árdís Sigurðardóttir
Olga Siguröardóttir
llllllllllllllllllllll MINNING llllllllllllllllllllllllllllllll
Andrés Eyjólfsson
fyrrverandi bóndi og alþingismaöur,
Síöumúla, Hvítársíðu
Fæddur 27. maí 1886
Dáinn 9. apríl 1986
Kveða frá
Ungmennafélagi Reykdæla
„Þeir menn sem börðusl fremsl
með traustri trú
til takmarks þess,
sem loks er fœrt að ná.
Þeir eru horfnir heim um glœsta brú
og heiður þeirra einn
nú dvelst hjá oss. “
Þessar hendingar úr kvæðinu Ára-
skiptin eftir Hannes Hafstein munu
hafa liðið í gegnum hug margra er
þeir heyrðu lát Andrésar í Síðumúla
Hér er ekki ætlunin að rekja ætt
eða ævistörf Andrésar, það munu
aðrir gera, en aðeins að senda hon-
um nokkur kveðju- og þakkarorð að
leiðarlokum.
Það kann að vekja undrun einkum
þeirra yngri að félag sem kennir sig
við ungmenni, skuli finna löngun hjá
sér til að senda næsturn tíræðum
öldungi kveðjur og þakkir. En
ástæða er fyrir flestu ef ekki öllu.
Á sumardaginn fyrsta 1908 sem þá
bar uppá 23. apríl stefndi æskufólk
úr Reykholtsdalshreppi að Deildar-
tungu. Þetta fólk lét ekki norðan rok
með nokkru frosti hefta försína þótt
hvorki væru vegir né bifreiðar til að
þeytast á milli staða. Sennilega hafa
flestir eða allir ferðast á tveimur
jafnfljótum. Þetta æskufólk átti
brýnt erindi að Deildartungu. Hér
voru „VORMENN ÍSLANDS“ á
ferð og þennan dag var fyrsta ung-
mennafélagið í Borgarfirði stofnað,
Ungmennafélag Reykdæla. Á þess-
um stofnfundi mættu 23 ungmenni
og gerðust þá öll félagar. Eitt þeirra
var Andrés Eyjólfsson sem þá var
heimilismaður í Deildartungu,.
Fáir af þeim sem stofnuðu Ung-
mennafélag Reykdæla eru nú eftir á
meðal okkar. Flestir eru horfnir yfir
„móðuna miklu.“ Nú þegar Andrés
í Síðumúla er fallinn frá eru aðeins
tveir af þeint sem sátu fundinn í
Deildartungu 1908 á lífi. Bræðurnir
Þórður og Þorsteinn Kristleifssynir
frá Stóra-Kroppi.
Andrés gerðist strax ötull baráttu-
maður ungmennafélagshugsjónar-
innar. Ritaði meðal annars margar
fróðleiks- og hvatningargreinar í
„HVÖT" handskrifað bláð sem fé-
lagið gaf út og lesið var uppúr á
fundum.
Strax eftir stofnun Ungmennafé-
lags Reykdæla voru fleiri félög stofn-
uð hér í héraðinu. Ungmennafélagið
Brúin nokkrum vikum síðar og svo
hvert af öðru á næstu árum.
Forráðamenn félaganna og raunar
hinn almenni félagsmaður líka fundu
fljótlega að þótt ungmennafélögin
væru góð út af fyrir sig, vat nokkur
hætta á að þau einangruðust. Því var
það að árið 1912 mynduðu öll ung-
mennafélögin í héraðinu eitt sam-
band U.M.S.B. Var sambandið
hugsað til að auka kynni milli ein-
stakra félaga og að vinna saman að
sameiginlegum áhugamálum. Óhætt
mun að fullyrða að Andrés var einn
af helstu hvatamönnum þess að
UMSB var stofnað og átti sæti í
stjórn þess tvö fyrstu árin og var
síðan formaður þess 1915-1916.
Stofnun UMSB var heillaskref á
sínum tíma því það átti eftir að
marka merk spor í menningar og
menntasögu héraðsins,.
Þegar Ungmennafélag Reykdæla
varð fimmtugt var þess óskað að
Andrés flytti erindi um tildrög og
stofnun félagsins svo og störf þess
fyrstu árin. Tók hann því vel eins og
ætíð ef til hans var leitað en bætti við
eitthvað á þessa leið. „Ef ég á að
ræða tildrög þess að ungmennafélög
voru stofnuð á Islandi yrði það
erindi nokkuð langt því að leita
þyrfti allt aftur á fyrri hluta 19. aldar
ef gera ætti því einhver skil. En
e.t.v. mætti svara þessu í örstuttu
máli. Þeir sem stofnuðu ungmenna-
félögin vildu þroska sig bæði andlega
og líkamlega og þeir urðu sjálfir að
skapa sér þá aðstöðu sem til þess
þurfti. Einn þáttur í þeirri aðstöðu-
sköpun var stofnun ungmennafélag-
anna.“ Við sem nú störfum í þessu
félagi gerum okkur fulla grein fyrir
að við eigum stofnendum þess óend-
anlega mikið að þakka. Við munum
framvegis sem hingað til reyna að
byggja á þeim grunni sem stofnend-
urnir lögðu fyrir 78 árum til heilla
fyrir sveit og hérað. Nú er Andrés í
Síðumúla „horfinn heim um glæsta
brú“.
Við sendum honum kveðjur og
þakkir fyrir unnin störf í þágu félags
okkar. Við teljum að það sé meira
en „heiður þeirra einn sem dvelst oss
hjá“. Á þeirra verkum byggjum við
okkar starf.
Við vottum hinum látna virðingu
okkar og sendum aðstandendum
innilegar samúðarkveðjur.
Ungmennafélag Reykdæla.
Þann 9. apríl s.l. lést á sjúkrahús-
inu á Akranesi Andrés Eyjólfsson
fyrrurn bóndi í Síðumúla og alþingis-
maður, eftir stutta legu. Þá skorti
hann tæpar sjö vikur í 100 ára aldur.
Talið er að hann hafi náð hæstum
aldri þeirra er á Alþingi hafa setið.
Andrés var fæddur að Kirkjubóli
í Hvítársíðu þann 27. maí 1886.
Foreldrar hans voru Eyjólfur Andr-
ésson Magnússonar, alþm. og bóndi
á Kirkjubóli og kona hans Guðrún
Brynjólísdóttir bónda og hrepp-
stjóra að Selalæk á Rangárvöllum.
Andrés giftist 1919 Ingibjörgu
Guðmundsdóttur frá Mjóadal, A-
Hún. Hann útskrifaðist sem bú-
fræðingur frá Hvanneyri 1911. Árið
1912 hóf liann búskap í Síðumúla,
fyrst seni leiguliði, en eignaðist jörð-
ina alla litlu síðar. Þá hóf hann
stórbúskap. Talið var í upphafi að
hann færi ekki troðnar slóðir í bú-
skap sínum, en hann lét það sig litlu
skipta. Hann ræktaði jörð sína af
miklum dugnaði svo túnin urðu
snemma stór og vel ræktuð. Fram-
kvæmdir hans í byggingum í Síðu-
múla urðu, á fyrstu árum í bú-
skapartíð hans, miklu meiri og fyrr
á ferð en þá gerðist. Árið 1957 hætti
Andrés búskap, hafði búskapur hans
staðið í 45 ár. Heimili hans varð þó
áfram í Síðumúla til dauðadags.
Andrés gegndi mörgum trúnaðar-
störfum, lengst starfaði hann í
hreppsnefnd Hvítársíðuhrepps.
Oddviti sveitarstjórnar var hann í
41 ár. Svo vandvirkur og vel að sér
um reikningshald hreppsins var hann
að yfirendurskoðandi hreppsreikn-
inga í Mýrasýslu sagði mér, að alltaf
hefði hann skilað reikningunum til
sín á þeim tíma er lög gerðu ráð
fyrir. Um endurskoðun á sveitar-
reikningum þeim sem Andrés gerði,
sagði hann óþarfa, svo vel væri frá
þeim gengið að þar skorti ekkert á.
Þó lét Andrés ekki af oddvitastörf-
um fyrr en áttræður, þá að eigin ósk.
Svo mun hafa verið um öll trúnaðar-
störf, hann varð að óska eftir að láta
af þeim vegna aldurs.
Andrés var innanþingsskrifari Al-
þingis alls í níu ár. Skjalavörður
Alþingis var Andrés i 16 ár. Formað-
ur eftirlitsnefndar með opinberum
sjóðum var hann í þrjátíu ár. í
Landsbankanefnd í eitt ár. í nefnd
um útrýmingu refa og minka var
hann skipaður 1956, þá um sjötugt.
Andrés í Síðumúla var í hópi
þeirra er beittu sér fyrir byggingu
Reykholtsskóla. Hann var formaður
skólanefndarfrá upphafi þartil hann
sagði því af sér, þá meira en hálf
áttræður.
Það sem einkenndi öll störf Andr-
ésar á opinberum vettvangi og gerðu
hann svo eftirsóttan til þeirra, voru
hyggindi hans, vandvirkni, dugnað-
ur og reglusemi.
Þegar hinn vinsæli og vel gerði
maður Bjarni Ásgeirsson hætti þing-
mennsku fyrir Mýramenn, eftir
meira en tuttugu ára setu á Alþingi,
var Andrés í Síðumúla valinn til
framboðs fyrir Framsóknarflokkinn
og náði kosningu. Tvennt kom
Andrési að góðu gagni í þing-
mennskunni.
Það fyrra var hvað hann var
kunnugur meðferð allra þingmála
og hitt hvað hann naut mikilla vin-
sælda meðal þingmanna og
starfsfólks. Allir vildu allt fyrir
Andrés gera, svo sem hann hafði
þeim gert. Og það dugði honum vel.
Hann sótti mál fyrir sitt kjördæmi
með miklum dugnaði og var vel
ágengt. í kosningunum 1953 var
Andrés endurkjörinn, en við kosn-
ingarnar 1956 gaf Andrés ekki kost
á sér til framboðs, enda var hann þá
orðinn sjötugur og þá búinn að
starfa á vegum alþingis í 30 ár. Það
féll þá í minn hlut að þreyta kosning-
ar fyrir Framsóknarflokkinn í Mýra-
sýslu. í þeim kosningum gerði það
gæfumuninn, hvað Andrés reyndist
mér og flokki sínum vel. Svo vel
reyndist hann mér alla tíð.
Andrés { Síðumúla hefur verið
gæfumaður í lífinu. Kona hans Ingi-
björg var honum sérstaklega góður
lífsförunautur, til hinstu stundar.
Hún lést í júní 1974. Þau eignuðust
5 börn og eru þau öll á lífi, þrjár
dætur og tveir synir. Andrés sat á
friðarstóli í Síðumúla í nærri þrjátíu
ár. Áratuginn frá sjötugu til áttræðis-
aldurs notaði hann til að losa sig við
trúnaðarstörf. Síðan hefur hann tek-
ið lífinu með ró. Heilsa hans hefur
þó verið góð.
Ingibjörg dóttir hans, hefur vcrið
hans bjargvættur, sem hefur hugsað
um hann eins og best var á kosið,
slík umhyggja verður seint þökkuð,
svo sem verðugt er. Þau þrjátíu ár,
sem liðin eru síðan ég tók við
þingmennsku af Andrési, hef ég
heimsótt hann öll sumur að einu
undanskildu. Síðast heimsótti ég
hann síðastliðið sumar. Þá sátum við
lengi einir saman og ræddum málin
og gekk það vel þó heyrn hans væri
farin að gefa sig. Ég dáðist að minni
hans og andlegri heilsu. Andrés var
skemmtilegur í samtali og auk þess
góður hagyrðingur. Þegar hann
hafði frétt af veislusiðum þeim sem
Vilhjálmur Hjálmarsson ætlaði sér
að hafa sem ráðherra, sendi Andrés
honum þessa vísu:
„ Valdaferill verði þinn
vorri þjóð til nytja.
En veislur þínár, vinur minn,
vil ég ekki sitja. “
Dagur Andrésar í Síðumúla hefur
orðið langur, enda hefur hann skilað
miklu dagsverki. Fátt verður manni
meira virði á lífsleiðinni, en kynni af
góðu fólki. Ég hefi orðið þeirrar
hamingju njótandi að kynnast
mörgu góðu fólki. Einn í þeim hópi
var Andrés í Síðumúla, sem veitti
mér ómetanlega aðstoð, þegar mest
reið á og var mér alltaf til ánægju
þegar fundum okkar bar saman.
Blessuð sé minning hans.
Halldór E. Sigurðsson.