Tíminn - 19.04.1986, Page 18
18 Tíminn
Rafvirkjar/Rafvélavirkjar
Fólag íslenskra rafvirkja heidur félagsfund þriðjudaginn 22. aptíl kl. 20.30
í félagsmiðstöð rafiönaöarmanna aö Háaleitisbraut 68.
Fundarefni:
Menntunarmál og löggilding til rafvirkjunarstarfa.
Stjórn Félags íslenskra rafvirkja
] Hafnarfjörður
- Matjurtagarðar
Leigjendum matjurtagarða í Hafnarfirði tilkynnist
hér með að þeim ber að greiða leiguna fyrir 1. maí
nk. ella má búast við að garðlöndin verði leigð
öðrum.
Bæjarverkfræðingur
RAFMAGNSVEITA REYKJAVÍKUR
Verkfræðingar -
Tæknifræðingar
Rafmagnsveita Reykjavíkur óskar eftir að ráða
rafmagnsverkfræðing eða tæknifræðing til starfa
við áætlanagerð við raforkuvirki. Kunnátta í For-
tran-forritun æskileg.
Boðið er upp á góða vinnuaðstöðu og m.a. aðgang
að stóru tölvukerfi, sem nota má við áætlanagerð.
Nánari upplýsingar veitir starfsmannastjóri í síma
686222.
Lausar stöður
Lausar eru til umsóknar eftirtaldar stöður lektora við námsbraut í
hjúkrunarfræði í læknadeild Háskóla íslands.
Staða lektors í hjúkrunarfræði. Aðalkennslugrein er barnahjúkrun.
Staða lektors í hjúkrunarfræði. Aðalkennslugrein er hjúkrun sjúklinga
á handlækninga- og lyflækningadeildum.
Hálf staða lektors í hjúkrunarfræði.
Hálf staða lektors í félagsfræði
Staða lektors til kennslu í fósturfræði, vefjafræði og frumulíffræði
ásamt umsjón með kennslu í líffærafræði.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf, rannsóknir og
ritsmiðar, svo og námsferil og störf skulu sendar menntamálaráðu-
neytinu fyrir 15. maí 1986.
Menntamálaráðuneytið
15. apríl 1986.
PÓST- OG
SÍMAMÁLASTOFNUNIN
óskar að ráða
VERKAMENN
við lagningu jarðsíma á stór-Reykjavíkursvæðið.
Nánari upplýsingar verða veittar i síma 26000.
Bændur
Til sölu Kemper heyhleðsluvagn 24 rúmmetrar.
Lítið notaður.
Upplýsingar í síma 99-8447
Óska eftir
að kaupa kýr
Óska eftir að kaupa kýr. Upplýsingar í síma
93-7872.
SKAK
Laugardagur 19. apríl 1986
Af manninum sem
bannað var að tef la
Skákmótið í New York sem lauk
á dögunum verður viðfangsefni
þessa pistils. Baráttan á toppnum
verður ekki rakin frekar heldur dval-
ið við skákmann sém á sér afar
óvenjulega fortíð og hafa þó margir
skákmenn frá ýmsu að segja. Kamr-
an Shirazi heitir skákmeistari sem
undanfarin ár hefur vcrið búsettur í
Bandaríkjunum og hefur getið sér
orð sem einhver harðskeyttasti þátt-
takandi opnu mótanna er tröllríða
sem kunnugt er bandarísku skáklífi.
Shirazi er af írönsku bergi brotinn
og þegar Khomeni og hans fylgifisk-
ar komust til valda urðu mikil um-
skipti í lífi hans. Hann var þá þegar
einn af sterkustu skákmönnum írana
en kenningar Khomeini settu strik í
reikninginn. Samkvæmt túíkun
klerksins er skáklistin af hinu vonda,
eitt af verkum djöfulsins og þar af
leiðandi bönnuð í íran og skáknrenn
ekki húsum hæfir enda fór svo með
Shirazi og fleiri skákmcistara að þeir
flúðu land og hafa ekki snúið aftur.
Shirazi er að mínum dómi ekki
aðeins athyglisverður skákmaður
fyrir sakir þjóðernis. Það er skákstíll
hans og lítt heft sköpunargáfa sem
vekur athygli manna. Skákir hans
fylgja sjaldan hefðbundnum leiðum
og sé andstæðingurinn ekki með á
nótunum er voðinn vís. í New York
varð Bent Larsen citt fórnarlamba
Shirazi. Hann missti einbeitnina eitt
augnablik og átti sér ekki viðreisnar
von eftir það. Larsen er æði oft á
valdi hinna furðulcgustu hugrenn-
inga en þarna hitti skrattinn ömmu
sína:
3. umfcrð, New York - Open
Hvítt: Bent Larsen.
Svart: Kamran Shirazi
Enskur lcikur
1. c4 e5 2. g3 h5 3. h4 d5 4. cxd5 Rf6
5. Rf3 Rg4 6. Rc3 Bc5 7. e3 0-0 8.
Bg2 c6 9. Rg5 Be7 10. d4 Bxg5 11.
hxg5 Dxg5 12. dxe5 Dxe5 13. Dd4
Df5 14. e4 He8 15. Bf4 Rd7 16.0-0-0
Dg6 17. Hh4 c5 18. Dd2 Rde5 19.
Hdhl??
II 111! ± 1111 s 111*111
III. 111 iiiiii i ■
-
1 11! A
I ab4ibi
■l 9lPlB| ■bI.,,1
B 1111 lllllllll a
19. .. Rxf2! 20. Bxe5 Rxhl 21. Bc7
Rxg3 22. Kc2 Rxe4! 23. Rxe4 Bf5
24. De2 Hxe4 25. Bxe4 He8 26.
Dxh5 Bxe4f 27. Kb3 Dxh5 28. Hxh5
g6 29. Hg5 f6 30. d6 fxg5 31. d7 Bd5t
32. Kc3 Hf8 33. a3 g4 34. d8(D)
Hxd8 35. Bxd8 g3 36. Bh4 g2 37. Bf2
b6 38. Kd3 Kf7 39. Bgl a5 40. Bh2
Ke6 41. Ke3 a4 42. Kf2 b5 43. Ke3
b4 44. Bgl c4 45. Kd2 c3t!
- Hvítur gafst upp.
Larsen náði að svara vel fyrir sig í
byrjuninni en svo virðist sem hann
hafi eytt mikilli orku í að hrekja
byrj unartaflmennsku Shirazi og þeg-
ar það hafi tekist á sómasamlegan
hátt hafi hann farið að vanmeta
andstæðing sinn og það leiddi síðan
til yfirsjónarinnar í 19. leik.
Út af fyrir sig er það ekki svo
skrítið að Shirazi sé dálítið vanmet-
inn skákmaður. Á skákþingi Banda-
ríkjanna 1984 sem var skipað öllum
bestu mönnum þarlendum hlaut
hann eftirminnilega útreið, ‘/i vinn-
ing úr 17 skákum og tefldi hrikalega
illa, tapaði t.a.m. í aðeins fimm
leikjum með hvítu í einni skákanna.
llla tungur héldu því fram að Shirazi
hefði viljað framkalla á sjálfum sér
mikinn stiganiðurskurð til þess að
geta teflt í einhverjum lægri flokk-
anna á opnu mótunum þar sem
verðlaun eru ekki mikið lakari en í
efstu flokkunum.
Síðar á mótinu í New York kom
áþreifanlega í ljós að sigur Shirazi
yfir Larsen var engin tilviljun. Þá
sigraði hann júgóslavneska stór-
meistarann Petar Popovic sem var
nýkominn frá júgóslavneska meist-
aramótinu þar sem hann lenti í 2.
sæti. Skák þeirra fylgir hér á eftir en
hún er að mínurn dómi einhver
skemmtilegasta viðureignin á New
York, á tímabili er baráttan hreint
augnayndi og uppátæki Shirazi bæði
í byrjun tafls og síðar stórskemmti-
leg:
5. umferð, New York - Open.
Hvítt: Petar Popovic
Svart: Kamran Shirazi
Sikileyjarvörn
1. e4 c5
2. Rf3 Rf6
(Fyrsta vísbending um „óstýrlæti"
Shirazi. Hann velur hér afbrigði sem
hefur vafasamt orð á sér.)
3. e5 Rd5
4. g3
(Skarpasta svarið er 4. Rc3 en Júg-
óslavinn vill sneiða hjá þcim gífur-
legu flækjum sem oftast koma upp
eftir þann leik.)
4. .. b6
5. Bg2 Ba6!?
(Önnur vísbending. Eðlilcgra er 5. -
Bb7. Svartur hindrar hrókun unt
stundarsakir en skapar sjálfum sér
hættu á löngu skáklínunni.)
6. d3 Rc6
7. 0-0 eó
8. Hel Be7
9. c4 Rc7
10. b3 0-0
11. d4 cxd4
12. Rxd4 Rxd4
13. Dxd4
(Ekki 13. Bxa8? Dxa8 14. Dxd4
Bb7! með myljandi sókn svarts.)
13. .. d5!
(Fram að þessum leik hefur svartur
„verið til friðs" en nú að hætti landa
sinna stefnir hann í gífurleg átök
sem svo sannarlega hafa ófyrirsjáan-
legar afleiðingar í för með sér. Svar
hvíts er þvingað því hótun svarts er
14. - dxc4.)
14. exd6 Bf6!
15. Df4 Rd5!
(Stórskemmtilegur leikur. Slæmt var
15. - Bxal vegna 16. dxc7 og hvítur
hefur betur. Textaleikurinn skapar
hvítum mikla crfiðleika.)
16. cxd5 Bxal
17. dxe6 fxe6
18. De4
(Svartur virðist vera að ná yfirhönd-
inni vegna hótananna 19. Dxa8 og
19. Dxe6.cn Shirazi er útsjónasamur
og finnur skemmtilegan leik.)
18. .. Df6!
(Hótar 19. - Dxf2|.)
19. Dxe6 Dxe6
20. Hxe6 Hac8
21. Be3 Bd4!
(Hvítur hefur tvö peð fyrir skipta-
muninn sem frá almennum sjónar-
hóli er talið kappnóg. Annað peðið
er auk þess öflug frelsun á d6. En
hann á við nokkra erfiðleika að
stríða vegna máthótana í miðborð-
inu. Þannig strandar 22. Bxd4 á 22.
- Hclt 23. Kg2 Bflt 24. Kgl Bh3t
og mátar.)
22. Bd5 Kh8
23. d7! Bxe3!
(Baráttan er stórskemmtileg og hin-
ar taktísku flækjur blómstra. Hvítur
hefur ekki látið sitt eftir liggja í
síðustu leikjum. Nú gefur svartur
skiptamuninn til baka og heldur
vinningsfærum vegna biskupapars-
ins. Maður hefði frekar átt von á
heldur dauflegum bardaga úr þessu
en Shirazi er óþreytandi í leit sinni
að sóknarleiðunt.)
Helgi Ólafsson
stórmeistari
skrifar um skák:
24. dxc8(D) Bxf2t
25. Kg2 Bxc8
26. He2 Bc5
27. Rd2 g5!?
28. Rf3 Ba6
29. He4 Bd3
30. Hg4 Be3
31. h3 h5
32. Ha4 b5
33. Ha6
(Það merkilega hefurgerst. Svörtum
hefur tekist að þvæla hvíta hróknunt
út í ystu myrkur og það vantar
aðeins - Bb6 upp á að hann sé lok
lok og læs. Ég fylgdist með skákinni
fram að 40. leik og báðir keppendur
voru í æðisgengu tímahraki. Svartur
teflir þessa stöðu til máts)
33. .. g4!
34. hxg4 hxg4
35. Re5 Bflt
36. Khl Hf5
(Hótar 37. - Hh5 mát)
37. Rxg4 Bb5!
s>g-)
38. Bg2 Be2
39. Rh2 Hf2
40. b4
(Hvítur getur sig hvergi hrært en
gerir nú tilraun til að losa hrókinn úr
prísundinni.)
40. .. Bc4
(Þó 40 leikjunum sé náð höfðu
keppendur misst tölu á leikjunum og
héldu áfram að tefla allt fram í
dauðann. Hér á hvítur best 41. a4
sem svartur svarar með 41. - Hb2 og
heldur þá allgóðum vinningsmögu-
leikum.)
41. a3 Ha2
42. Bc6 Halt
43. Kg2 Ha2t
44. Khl Bb3
45. Rf3 Hc2
46. Re5?? Hxc6!
- Loksins féll hvítur í eina af gildrum
svarts. Hann varð að reyna 46. Bd5
og baráttan geisar áfram þó vinn-
ingsmöguleikar svarts séu eftir sem
áður mjög góðir. í Ijósi þess að
svartur svarar 47. Rxc6 með 47. -
Bd4t gafst hvítur upp.