Tíminn - 19.04.1986, Qupperneq 20
20Tíminn
Laugardagur 19. apríl 1986
DAGBÓK
Akranes
Framsóknarfólk á Akranesi. Undirbúningsfundir vegna stefnuskrar-
mótunar veröa sem hér segir að Sunnubraut 21.
17. apríl kl. 20.30-23.00 Heilbrigðismál, málefni aldraðra, félagsleg
þjónusta, dagvistunarmál.
20. apríl kl. 16.00-18.30 Atvinnumál, skipulagsmál, umhverfismál,
umferðarmál.
22. apríl kl. 20.30-23.00 Fjármál og framkvæmdir á vegum bæjarins,
menningarmál og fjölmiðlar.
30. apríl kl. 20.30-22.30 Æskulýðsmál, íþróttamál og skólamál.
Komdu og nýttu þér tækifærið.
Vertu með í stefnumótun.
Frambjóðendur Framsóknarflokksins.
Akranes
Kosningaskrifstofa Framsóknarflokksins aö
Sunnubraut 21 verður opin fyrst um sinn alla virka
daga kl. 20.30-22.00, um helgarfrá kl. 14-18 sími
2050. Heitt kaffi á könnunni. Allir velkomnir.
Framsóknarfélögin á Akranesi
Grindavík
Kosningaskrifstofa Framsóknarfélags Grindavíkur hefur verið opnuð
að Suðurvör 13.
Kosningasímar 8410 og 8211.
Kosningastjórar: Kristinn Þórhallsson, Sími 8022 og Svavar Svavars-
son, sími 8211.
Aðalþjónustan verður í síma 8211 fyrst um sinn.
Aðalfundur
Framsóknarfélag Reykjavíkur heldur aðalfund 21. apríl nk. kl. 20.30
að Hótel Hofi.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál.
Stjórnin
Selfossbúar
Opið hús á þriðjudögum og fimmtudögum milli kl. 18.00 og 19.00 að
Eyrarvegi 15.
Komið og ræðið málin.
Allir velkomnir.
Framsóknarfélag Selfoss
Framsóknarvist
verður haldin aö Hótel Hofi sunnudaginn 20. apríl kl. 14.00.
Stutt ávarp flytur Alfreð Þorsteinsson.
Allir velkomnir.
Framsóknarfélag Reykjavíkur
Keflavík
Skrifstofa Framsóknarflokksins að Austurgötu 26 verður opin mánu-
daga til laugardaga frá kl. 16.00-18.00. Stuðningsfólk Framsóknar-
flokksins er hvatt til að líta inn, ávallt heitt á könnunni.
Framsóknarfél. Keflavík
Keflavík
Fundur verður haldinn í fulltrúaráði framsóknarfélaganna í Keflavík
mánudaginn 21. þessa mán. kl. 20.30 í Framsóknarhúsinu.
Fundarefni:
1. Undirbúningur bæjarstjórnarkosninga í vor.
2. Æskulýðsmál og íþróttamál rædd sérstaklega
3. Önnur mál.
Stjórnin.
Torvald Nilsson gítarleikari.
Torvald Nilsson í Gerðubergi
Undanfarna daga hefur sænski gítar-
leikarinn Torvald Nilsson dvaliö hér á
landi og haldiö tónleika og námskeið á
nokkrum stööum. Tónleikar hans í
Kevkjavík verða í Gerðubergi sunnudag-
inn 20. apríl kl. 15.00 og í Norræna húsinu
mánud. 21. apríl kl. 20.30.
Á efnisskrá er ensk og ítölsk lútutónlist
frá þvi um 1600 og verk eftir Napoleon
Coste, Isaac Albéniz, Fernando Sor, Jan
Antoni Losy, Villa-Lobos og Francesco
Tárrega.
Torvald Nilsson er mjög vcl þekktur í
heimalandi sínu og víðar sem gítarleikari
og kennari. Auk þess aö halda tónleika
og komti frani í útvarpi og sjónvarpi gerir
hann talsvert af því að haída fyrirlestra
um gítarinn. skyld hljóðfæri og tónlist
fyrir þau.
Tónleikar Tónlietarfélagsins
1 dag. laugard. 19. apríl kl. 14.30. mun
Ellen Lang. sópransöngkona og William
Lewis píanólcikari halda tónleika í Aust-
urbæjarbíói á vegum Tónlistarfélagsins.
Ellen Lang er ung söngkona, sem hefur
vakiö athygli alls staöar þar sem hún
hefur komiö fram fyrir mikla og fagra
rödd. Hún er mjög fjölhæf og hefur
sungið jafnt ópcrur, kammermúsík og á
einsöngstónleikum og auk þcss tekiö þátt
í uppfærslum á söngleikjum.
Á efnisskránni í dag cr: Lög cftir
Schubert. Rossini. Liszt og Samuel
Barber, auk þess þrjú lög eítir Jerome
Kern og lag eftir Lee Hoiby - The
Serpent - sem var upphaflega samið fyrir
Leontvne Price.
Tónlistarskólinn í Reykjavík
Brottfarartónleikar
Tónlistarskólinn í Reykjavík heldur burt-
fararprófstónleika þriðjudaginn 22. apríl
kl. 20.30 í sal skólans að Skipholti 33.
Brynhildur Ásgeirsdóttir lcikur á píanó
lög eftir Scarlatti, Faurc, Beethoven,
Chabrier og Prokofieff. Aögangur er
ókeypis og öllum heimill.
Píanótónleikar í Keflavík
Guömundur Magnússon píanóleikari
heldur tónleika í Tónlistarskólanum í
Keflavík sunnud. 20. apríl kl. 16.00.
Guðmundur brautskráðist frá Tónlist-
arskólanum í Reykjavík vorið 1979 og
voru kcnnarar hans þar Margrét Eiríks-
dóttir og Árni Kristjánsson. Undanfarin
ár hefur Guðmundur stundað nám við
Tónlistarháskólann í Köln hjá próf. Hel-
mut Wcinrebe.
Á efnisskrá tónleikanna eru verk eftir
Beethoven, Chopin, Messiaen, Debussy
og Liszt.
Aðalfundur Kvenfélaga-
sambands Kópavogs
Kvenfélagasamband Kópavogs heldur
aðalfund í Félagsheimili Alþýðuflokks-
ins, Hamraborg 14C í Kópavogi laugar-
daginn 19. apríl og hefst fundurinn kl.
9.30 f.h. Opinn fundur verður haldinn kl.
14.00. Fundarefni: Læknir og eðlis-
fræðingur flytja erindi er ber yfirskriftina
Kjarnorkuvá.
Kaffiveitingar. Allir velkomnir.
Karlakór Reykjavíkur
í Hveragerði
Karlakór Rcykjavíkur ætlar aö syngja í
Hverageröiskirkju mánudagskvöldiö 21.
apríl ki. 20.30. Hljómleikarnir eru á
vegum Tónlistarfélags Hverageröis.
Ráðstefna - sveitarstjórnarmál
Ráðstefna um sveitarstjórnarmál verður haldin laugardaginn 19. apríl
nk. að Hótel Hofi í Reykjavík, og verðurdagskrá hennareftirfarandi:
Ráðstefna frambjóðenda og kosningastjóra 19. apríl 1986.
Dagskrá:
Kl. 10.00 Setning, Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra.
10.15 Ávarp, Guðmundur Einarsson
10.30 Kynning þátttakenda.
10.45 Ríkisstjórnin og sveitarfélögin, Alexander Stefánsson
félagsmálaráðherra
11.15 Sameiginleg stefnumál
a) Atvinnumál
b) Æskulýðsmál
c) Umhverfismál
d) Fjölskyldumál
12.15 Matarhlé
13.15 Hópvinna
14.15 Umræður
15.30 Kosningarnar og flokksskrifstofan, Guðmundur
Bjarnason, ritari Frams.fl.
15.45 Umræður
16.15 Handbók um kosningastarfið
16.30 Starfiðtil kosninga, Magnús Ólafsson
16.45 Umræður
17.15 Ráðstefnuslit
18.00 Móttaka
19.30 Sameiginlegur kvöldverður
Þátttaka í ráðstefnunni óskast tilkynnt flokksskrifstofunni fyrir 12.
apríl. Vegna samningar handbókar um kosningastarfið þarf að
tilkynna skrifstofu flokksins heimilisfang og símanúmer kosningaskrif-
stofa strax og slíkt hefur verið ákveðið.
Framsóknarflokkurinn
Norræna húsið:
„Bjómson í Ijósum,
litum og tónum“
Sunnud. 20. apríl kl. 16.00 verður
dagskrá í Norræna húsinu sem nefnist
„Björnson í ljóðum, litum og tónum".
Per Amdam talar um Ijóðmæli Björnsons
og sýnir litskyggnur frá heimabyggð
skáldsins, Raumsdal. Sigríður Ella Magn-
úsdóttir ópcrusöngkonan syngur lög við
Ijóð Björnsons og Jónas Ingimundarson
leikur undir.
Ljóstæknifélag ísiands
Lýsing fyrir aidraða og sjónskerta
Ljóstæknifélag íslands hefur fengið einn
fremsta sérfræðing á sínu sviði, Dr.
Warrcn G. Julian, prófessor við Háskól-
ann í Sydney í Astralíu til að flytja
fræðsluerindi á aðalfundi félagsins. Er-
indið verður flutt á ensku undir heitinu
„The lighting of buildings for the partially
sighted".
Erindið verður flutt að loknum aðal-
fundarstörfum félagsins kl. 21.00 mánud.
21. apríl að Hótel Sögu (Hliðarsalur, inn
af Súlnasal, 2. hæð).
Fundurinn er öllum opinn.
Fyrirlestur um uppeldis-
fræðilegar rannsóknir
Þriöjud. 22. apríl flytur Stefán Baldurs-
son kennslufræöingur fyrirlestur á vegum
Rannsóknarstofnunar uppeldismála er
ncfnist: Hver eru sérkenni uppeldisfræði-
legra rannsókna?
Fyrirlesturinn verður haldinn í Kenn-
araskólahúsinu viö Laufásveg og hefst kl.
16.30. Öllum heimill aögangur.
„Frjálsir vegfarendur“
halda almennan fund
Samtökin Frjálsir vegfarendur efna til
almenns fundar sunnudaginn 20. apríl
nk. kl. 14.00 á veitingahúsinu Gauki á
Stöng. Fjallað verður um umferð gang-
andi og hjólandi vegfarenda á höfuðborg-
arsvæðinu.
Á fundinum flytur Sveinn Guðmunds-
son verkfræðingur erindi, scm hann kallar
„Ógöngur í Reykjavík" og sýnir myndir
af ýmsum hrellingum. sem verða á vegi
þeirra sem hyggjast fara leiðar sinnar
gangandi eða hjólandi. Þá mun Gestur
Ólafsson arkitekt, forstöðumaður Skipu-
lagsstofu höfuðborgarsvæðisins, flytja er-
indi. sem nefnist „Gönguleiðir á höfuð-
borgarsvæðinu".
Hana nú í Kópavogi
Vikuleg laugardagsganga Frístunda-
hópsins Hana nú í Kópavogi verður á
morgun, laugardaginn 19. apríl. Lagt af
stað frá Digranesvegi 12 kl. 10.00. Allir
Kópavogsbúar velkomnir.
Neskirkja
Samverustund aldraðra í Neskirkju
verður á morgun, laugard. 19. apríl kl.
15.00. Gestir Sigvaldi Kaldalóns ásamt
kór og Kristján Guðmundsson, bæjar-
stjóri í Kópavogi.
Breiðfirðingafélagið
Reykjavík
Vorfagnaöur í Domus Medica laugar-
daginn 19. apríl kl. 21.
Skemmtinefndin.
Sunnudagsferðir Utivistar
Sunnud. 20. apríl kl. 10.30: Hrómundar-
tindar - Ivatlatjarnir. Skemmtileg ganga
um fjölbreytt svæöi austan Hengils.
Sprengigígur o.fl. skoöaö.
Kl. 13.00 Grensdalur - Keykjadaiur:
Létt ganga í nágrenni Hveragerðis. Mikil
jaröhitasvæöi. Frítt er í feröirnar fyrir
börn mcö fullorðnum.
Brottför frá BSÍ bensínsölu.
Skrifstofa Útivistar flytur um helgina á
nýjan staö: Vesturgötu 4 (Gröfin 1).
Opnum þar á mánudaginn kl. 09.30.
Sjáumst.
Utivist
Sunnudagsferðir F.í
K. 10.30: Skíðaganga, Stíflisdalur — Kjöl-
ur - Fossá. Ekiö aö Stíflisdal og gengiö
þaöan um Kjöl og komið niöur hjá Fossá.
Kl. 13.00: Gamla þjóðleiðin frá Vind-
áshlíö aö Fossá. Gengið austan Sandfells
um Seljadal og Fossárdal.
Brottför frá Umferöarmiöstööinni,
austanmegin. Farmiöar við bíl. Frítt fyrir
börn í fylgd fullorðinna.
Kvöldvaka Ferðafélagsins
Þriðjudaginn 22. apríl verður síðasta
kvöldvaka vetrarins í Risinu. Hverfisgötu
105 og hefst kl. 20.30 stundvíslega. Hall-
gerður Gísladóttir og Árni Hjartarson
fjalla um í máli nog myndum „manngerða
hella á íslandi". Myndagetraun sem
Tryggvi Halldórsson annast. v
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir,
félagar og aðrir. Veitingar í hléi.
Almennur félagsfundur F.í.
Almennur félagsfundur verður haldinn
í Risinu, Hverfisgötu 105, laugardaginn
26. apríl og hefst kl. 13.30 stundvíslega.
Rætt verður um starf Ferðafélags Islands.
Fararstjórar Ferðafélagsins sérstaklega
beðnir um að mæta.
Ferðafélag íslands.