Tíminn - 13.06.1992, Side 8
8 Tíminn
Laugardagur 13. júní 1992
Fjölbreytt hátíðarhöld á
Akureyri á sjómannadaginn
Hátíðahöld í tilefni sjómannadags á Akureyri hefjast í dag, á laugar-
degi kl. 13. Dagskráin hefst á aö nýr kappróðrarbátur verður skýrð-
ur, en það er fjórði bátur sjómannadagsráðs. Strax að því loknu
hefst kappróður. Um fjörutíu sveitir er skráðar til keppninnar, helm-
ingur þeirra sveitir skipsáhafna og svo sveitir kvenna og fyrirtækja.
Klukkan 16 hefst síðan innan-
hússmót í knattspyrnu milli skips-
áhafna. Mótið er haldið í íþróttahúsi
KA við Lundatún og hafa mörg lið
skráð sig.
Á sunnudag, sjómannadaginn
sjálfan, hefst dagskrá klukkan 8 um
morguninn með því að fánar verða
dregnir að húni. Klukkan 10.30
verður sjómannamessa í Akureyrar-
kirkju, þar sem prestur er séra Birg-
ir Snæbjömsson og einnig í Glerár-
kirkju, en þar er prestur séra Gunn-
laugur Garðarsson. Sjómenn munu
aðstoða við messurnar og börn sem
skýrð verða fá merki sjómannadags.
Klukkan 13 verður lagður blóm-
sveigur að minnisvarða um týnda og
drukknaða sjómenn við Glerár-
kirkju.
Aðalathöfn dagsins hefst við
Sundlaug Akureyrar klukkan 13.30.
Lúðrasveit Akureyrar leikur og
ávörp flytja fulltrúar útgerða og sjó-
manna. í>á verða sjómenn heiðraðir.
Síðan hefst keppni í hinum ýmsu
keppnisgreinum, en þrjár nýjar
greinar verða kynntar að þessu
sinni. Það er netabæting, pokahnút-
ur og kraftakeppni við DNG-færa-
rúllu. Um kvöldið verður sjómanna-
dansleikur í íþróttahöllinni og hefst
klukkan 19. Þar er matargestum
boðið upp á heitt og kalt sjómanna-
hlaðborð. Veislustjóri verður Jakob
Frímann Magnússon og hljómsveit-
in Stjórnin leikur fyrir dansi. Um
skemmtiatriði sjá Halli og Laddi og
Blái hatturinn ásamt fleirum. Verð-
launaafhending úr keppnisgreinum
dagsins fer fram á dansieiknum og
einnig afhending Atlastangarinnar
og Hálfsíðubikars sjómannablaðsins
Ölduróts. Áætlað er að dansleikur-
inn standi til klukkan 03.
55. sjómannadagurinn í Reykjavík:
Útihátíðarhöld við
Reykjavíkurhöfn
Dagskrá sjómannadags í Reykjavík,
sunnudaginn 14. júní, hefst Úukk-
an 8.00 að morgni með því að fán-
ar verða dregnir að húni á skipum í
Reylq'avíkurhöfn. Klukkan 11.00
verður Minningarguðþjónusta í
Dómkirkjunni, þar sem séra Hjalti
Guðmundsson minnist drukknaðra
sjómanna og þjónar fyrir altari.
Sjómenn aðstoða við messuna. í
Bústaðakirkju verður einnig sjó-
mannamessa og prestur er séra
Pálmi Matthíasson. Við báðar
messumar verður flutt verkið
„Þakkargjörð" eftir Sigfús Hall-
dórsson.
Klukkan 13.00 gefst almenningi
kostur á að taka sér far með skipum
Hafrannsóknastofnunar, Árna Frið-
rikssyni og Bjarna Sæmundssyni,
um sundin blá við Reykjavík. Þar er
hægt að fylgjast með störfum vís-
indamanna stofnunarinnar. Fólki er
bent á að klæða sig eftir veðri. Síð-
asta ferð skipanna frá höfn er klukk-
an 16.00.
Lúðrasveit Reykjavíkur mun leika
létt lög við höfnina og klukkan
14.00 verður samkoman sett. Ávörp
flytja Þorsteinn Pálsson sjávarút-
vegsráðherra, Sigurður Einarsson,
útgerðarmaður frá Vestmannaeyj-
um og fulltrúi sjómanna,
Ragnar G.D. Hermannsson, for-
maður Skipstjóra- og stýrimannafé-
lagsins Öldunnar. Þá mun Pétur
Sigurðsson, formaður sjómanna-
dagsráðs, heiðra aldraða sjómenn
með heiðursmerki sjómannadags.
Þulur og kynnir verður
Harald Holsvík, framkvæmda-
stjóri Öldunnar.
Kappróður í Reykjavíkurhöfn
hefst síðan klukkan 15.00. Keppt
verður í kvenna- og karlasveitum.
Þá verða félagar úr björgunarsveit
S.V.F.Í. Ingólfi í Reykjavík, í sam-
vinnu við áhöfn þyrlu Landhelgis-
gæslunnar, með ýmsar uppákomur í
Reykjavíkurhöfn.
Stefnt er að því að útihátíðarhöld-
unum verði lokið klukkan 17.00.
Sjómannahóf verður að kvöldi
sjómannadags á Hótel íslandi.
Sjómenn um allt land sigla nú fleyjum sínum í höfn og gera klárt
fyrir Sjómannadaginn. Tímamynd: Árni Bjarna.
Hrafnistuheimilin:
Handavinnusýningar í
tilefni sjómannadags
Á sjómannadaginn verður handavinnusýning og sala opnuð í „Súðinni"
sem er til húsa á 4. hæð E-álmu Hrafnistu í Reykjavík. Einnig verður kaffí-
sala í borð- og skemmtisal frá klukkan 14.30 til 17.00. Allur ágóði rennur
til velferðamála heimilismanna á Hrafnistu í Reykjavík.
Við Hrafnistu í Hafnarfirði leikur Lúðrasveit Hafnarfjarðar sjómannalög
klukkan 10.30. Handavinnusýning og sala verður opin í vinnusal frá klukkan
14.00 til 17.00. Kaffisala verður í vinnu- og skemmtisal. Allir eru velkomnir
og rennur ágóði til velferðarmála heimilismanna Hrafnistu í Hafnarfirði.
Ætlun starfsmanna að
veita góða þjónustu
Sameinaðar hafa verið undir einn hatt bifreiðavarahlutadeild Jötuns
og búvéla- og vélavarahlutadeild fyrirtækisins undir nafninu Vara-
hlutadeild Jötuns. Deildarstjóri er Agnar Þór Hjartar og í deildinni
starfa nú 16 manns við Iager- og afgreiðslustörf.
Nafn: Nafnið Þitt
Dags: 12.6.92-13:51 Bls
Að sögn Agnars er það ætlun
hans og starfsmanna deildarinnar
að reyna að hrista af það slæma orð
sem farið hefði af varahlutaþjón-
ustu fyrir bifreiðar, sem reyndar
hefur alls ekki alltaf átt við rök að
styðjast. Þjónusta vélavarahluta-
deildar hafi ávallt verið viðurkennd
og það væri einlæg ætlun Jötuns-
manna að skapa deildinni í heild
sinni slíkt nafn og veita viðskipta-
mönnum fyrirtækisins á hvaða
sviði sem þeir væru góða þjónustu.
„Það er fullur vilji minn og starfs-
manna deildarinnar að veita þá
þjónustu við viðskiptamenn okkar
sem allir geti sætt sig við og sem
þeir geti reitt sig á,“ sagði Agnar
Þór Hjartar deildarstjóri í samtali
við Tímann.
í varahlutadeild Jötuns eru seldir
varahlutir í allar bifreiðar, búvélar,
lyftara, vinnuvélar og Yamaha spor-
tvörur ásamt varahlutum í fleiri
smærri tæki sem fyrirtækið selur,
ásamt fjölbreyttu úrvali auka- og
smáhluta. Einnig sér varahluta-
deildin um Alfa Laval þjónustubfí-
inn, sem staðsettur er á Akureyri,
en þjónustar Alfa Laval notendur
um land allt.
Nú um helgina gengur í garð
sumaropnunartími varahlutadeild-
ar Jötuns og verður hún opin á
laugardögum frá kl. 10.00-12.00 í
júní, júlí og ágúst. Verður hægt á
þeim tíma að fá ráðleggingar í
gegnum síma og hægt að fá á
staðnum alla þá þjónustu sem vara-
hlutadeildin býður upp á. Jötunn
hf. hefur nýlega fengið nýtt síma-
Öll varahlutaþjónustu Jötuns hefur nú verið sameinunuð undir nafni
Varahlutadeildar Jötuns. Agnar Þór Hjartar deildarstjóri:
Starfsfólk varahlutaþjónustunnar.
Tímamynd: Árni Bjarna.
Knattspyrna:
Helgar-
leikir
Laugardagur 13.júní
1. DEILD ka.
KA-KR ld.14.00
2. deild kv.
Reynir S.-Týr kl. 16.00
3. DEILD ka.
KS-Haukar kl. 14.00
Þróttur N.-Ægir Id. 14.00
4. DEILD ka.
Víkingur Ót.-Hafnir kl. 14.00
Árvakur-Reynir S. kl. 14.00
Léttir-Fjölnir Id. 17.00
Snæfell-Víkveiji Id. 14.00
HSÞ.b.-Kormákur kl. 14.00
Þ»ymur-S.M. kl. 14.00
Huginn-Neisti D. kl. 14.00
Leiknir P.-Sindir kl. 14.00
Einhetji-Höttur kl. 14.00
Huginn F-Austri E. kl. 14.00
Sunnudagur 14. júní
1. DEILD karla
Víkingur-FH kl. 20.30
1. DEELD kv.
Þróttur N.-KR kl. 14.00
2. DEILD kv.
Ægir-BÍ kl. 14.00
Mánudagur 15.júní
1. DEILD karla
UBK-ÍA kl. 20.30
ÍBV-Þór Ak. kl. 20.30
2. DEILD kv.
Leiftur-Tindastóll kl. 20.00
KA-Dalvík kl. 18.00
Námsstefna
sjúkraliða
Sjúkraliðar halda námsstefnu dag-
ana 15. tö 16. júnf nk. I ráðstefnu-
sal ríkisins, Borgartúni 6 og verð-
ur Björn Amórsson, hagfræðingur
BSRB, námsstefnustjóri.
Á dagskrá námsstefnunnar
verður m.a. fjaílað um menntun
sjúkraliða og nýtingu hennar,
stöðu sjúkraliða innan EES (og
EB) þegar auldð samstarf Evrópu-
þjóða er framundan, samskipti,
lóerleik og umhyggju og loks sorg
og sorgarviðbrögð.
Fjöldi fyririesara mun mæta á
námsstefnu sjúkraliðanna og fjalla
um hin ólikustu mál. Erlendir
gestir munu og einnig sækja ráð-
stefnuna og má þar tH nefna full-
trúa frá félögum færeyskra,
nortkra og fínnskra sjúkraliða.