Tíminn - 13.06.1992, Síða 11
Laugardagur 13. júnf 1992
Tíminn 11
runnar frá. Og vegna áhrifa frá
þessum málum breyttist t.d.
sérhljóðakerfið í tocharísku.
Frá Mið-Asíu bárust tungu-
málin til Evrópu og leiðin lá
bæði fyrir norðan og sunnan
Svartahaf. Gríska, armenska
og írönsk mál fóru að klofna
frá móðurtungunni á þriðja
árþúsundinu f.Kr. Grísku „ný-
lendurnar" á norðurströnd
Svartahafs eru forn byggð
grískumælandi manna á vest-
urleið til Eyjahafsins, en ekki
öfugt. Engin grísk tunga er
upprunnin í Grikklcmdi. Önn-
ur leið indó- evrópskra mála lá
frá suðurströnd Svartahafsins
inn í Grikkland og Balkan-
skaga.
Hjá þeim, sem eftir urðu
eða fóru stutt frá heimalandi
móðurtungunnar, breyttist
málið líka. Enn hefur aldrei
tekist að varðveita tungumál í
þessum heimi. Nokkrir þess-
ara heimamanna fluttu sig
vestur til Anatólíu um 2000
f.Kr. og nefndust þar Hittítar.
Konungsríki þeirra réð allri
Anatólíu um 1400 f.Kr. Mál
Hittíta og önnur skyld mál í
Anatólíu voru staðbundnari en
önnur indó-evrópsk mál og
þau dóu út án þess að eignast
afkvæmi. Talið er að forntunga
Anatólíu hafi klofnað frá móð-
urtungunni ekki seinna en á
fjórða árþúsundinu f.Kr., því
að á þriðja árþúsundinu hafði
forntunga Anatólíu klofnað í
fimm tungumál: Mál Hittíta,
palaísku, lydiönsku, luwi-
önsku og lykiönsku.
Jafnvel móðurtungan var
aldrei „hreint mál“, ekki einu
sinni fyrir 6000 árum. Af
menningarástæðum varð að
nota slettur úr erlendum mál-
um af öðrum málafjölskyld-
um. Menn verða að taka orð að
láni úr semísku og kartvelísku.
Það var óhjákvæmilegt af pól-
itískum ástæðum að taka upp
orð úr máli Súmera og Egypta.
Þaðan komu nauðsynleg orð
til að lýsa nýjum lifnaðarhátt-
um, fyrst í bændamenningu
og síðar í borgarmenningu.
Vegna menningarlegs nábýlis
byggjast orð af ólíkum mála-
fjölskyldum stundum á sömu
hugsun: ,Af jörðu ertu kom-
inn“ er sagt um manninn í
biblíunni. Þessi hugsun kem-
ur fram í orðunum adam
(maður) og adamah (jörð).
Hliðstæð hugsun kemur fram
t.d. í latínu, þriðja ættlið frá
móðurtungunni, í orðunum
homo (maður) og humus
(jörð). Olíkar málafjölskyldur
eiga mörg orð sameiginleg,
einkum þau almennustu. Þar
sem víndrykkja var stunduð af
kappi notuðu menn t.d. svipað
orð, þó að þeir töluðu mál sem
heyrðu til ólíkum málafjöl-
skyldum: Vinograd (vínber,
rússneska), Wein (þýska), vino
(ítalska), wein-no (á móður-
tungunni, halda menn), wajno
(frumsemíska), wns (egypska),
wino (kartvelíanska) og wijana
(hittítska).
Eins og fyrr segir, þá er
rannsókn málvísindamanna á
móðurtungunni og afkvæm-
um hennar orðin tveggja alda
saga. Forleikur þessarar sögu
var áhugi guðfræðinga á að
sanna frásögn biblíunnar um
Babylonsturninn og rugling
tungumála. Heimurinn var þá
talinn skapaður árið 4004 f.Kr.
Hið upphaflega mál var mál
biblíunnar. Af eljusemi söfn-
uðu þessir gömlu fræðimenn
ótrúlega miklum fróðleik, sem
varð málvísindamönnum
stundum góður efniviður, þó
að meiri rannsóknir og aukinn
skilningur leiddu til annarrar
niðurstöðu. Nú eru heiðarlegir
guðfræðingar hættir að líta á
biblíuna sem „kröníku“, og
málvísindamenn telja að hin
eiginlega rannsókn á indó-evr-
ópskum málum hefjist með
breskum lögfræðingi, William
Jones að nafni. „Enginn sam-
anburðarmálfræðingur," sagði
hann, „getur rannsakað sem-
skrít, grísku og latínu án þess
að álykta að þessar tungur eigi
sér sameiginlega móðurtungu,
sem hugsanlega er ekki lengur
tU.“
í kjölfar Williams Jones
komu Daninn Rasmus Kristi-
an Rask og Þjóðverjarnir
Franz Bopp og Jakob Grimm,
annar Grimmsbræðra, en þeir
eru þekktastir fyrir söfnun
þjóðsagna og ævintýra. Þessir
menn skoðuðu einstök orð
eins og t.d. pitar (sanskrít),
pater (latína), Vater (þýska),
father (enska) og faðir (ís-
lenska). Þeir sýndu fram á að
ákveðin lögmál stjórnuðu því
hvemig orð breyttust innan
fjölskyldunnar.
Strax um miðja 19. öld var
August Schleicher byrjaður að
gera tilraun til að endurskapa
horfin tungumál. Nútímavís-
indamenn hafa með tækni
sinni endurskapað hljóðfræði
og mikið safn orða, sem engar
skráðar heimildir eru til um.
Slík endursköpun hefur al-
mennt verið talin trúverðug.
Og hana hefur stundum verið
hægt að sannreyna með því að
bera hana saman við áður
óþekkt letur, sem fornleifa-
fræðingar hafa grafið upp.
Mörg slík orð, sem þannig hafa
verið endurvakin, sýna hvar
þeir, sem þau töluðu, hafa ver-
ið. Og þau sýna einnig hvernig
lífi þeir hafa lifað. Þau sýna
jafnvel samfélagsgerð, trú
þeirra og hugsun. Þannig
skapar málvísindamaðurinn
sagnfræði, sem ekki verður
sniðgengin fremur en upplýs-
ingar mannfræðinga, forn-
leifafræðinga og þeirra sem
fást við að rannsaka skráðar
heimildir. Og þegar DNA-fræð-
ingurinn bætist í þennan hóp,
fyllast sumir fræðimenn slík-
um metnaði að þeir eru farnir
að leita að „frumtungunni“,
sem þeir telja að homo sapiens
hafi talað í árdaga og allar mál-
fjölskyldur sameinist í. Ekki er
líklegt að sú leit leiði til endan-
legrar niðurstöðu. Tungumál
eru hreyfanleg og sjaldnast
mjög langlíf. Tcilið er að um
3000 mál af 6000 verði týnd á
næstu öld.
Það má vel vera að það, sem
nútímamaðurinn, homo sapi-
ens sapiens, kallar mál, hafi
byrjað með honum. Þroskaðri
talfæri og málstöðvar heilans
breyttu tali hans. Hugsanlega
hefur hann litið svo á að hljóð
Neanderdalsmanna væru ekki
mál. Það álíta margir að homo
sapiens sapiens hafi ekki
blandast forverum sínum,
vegna þess að þeir voru vegna
„málleysis" ekki taldir menn.
Þessi hugmynd að eiginlegt
mál byrji með nútímamannin-
um freistar manna til að leita
að „móðurtungu“ homo sapi-
ens sapiens, sem allar mála-
fjölskyldur eru þá komnar frá.
En við skulum halda okkur
við móðurtungu okkar og sjá
hvemig nokkur nútímamál
eru rakin til hennar.
1.
íslenska
T Skandinavíska
t Norður-germanska
(endurskapað mál)
t Frumgermanska
(endurskapað mál)
t Baltnesk-slavnesk-
germanska
(endursköpuð)
t Móðurtungan
(endursköpuð)
2.
Enska
t Vestur-germanska
(endurskapað mál)
t Frumgermanska
(endursköpuð)
t Baltnesk-slavnesk-ger-
manska (endursköpuð)
t Móðurtungan
(endursköpuð)
3.
Franska
t Latína
t Ítalíska (endursköpuð)
t Keltnesk-ítalísk-tocha-
ríska (endursköpuð)
t Móðurtungan (endur-
sköpuð)
4.
írska
t Gelíska
t Frumkeltneska
(endursköpuð)
t Keltnesk-ítalísk-tocha-
ríska (endursköpuð)
t Móðurtungan
(endursköpuð)
5.
Rússneska
t Frumrússneska
(endursköpuð)
t Slavneska
(endursköpuð)
t Baltnesk-slavneska
(endursköpuð)
t Baltnesk-slavnesk-ger-
manska (endursköpuð)
t Móðurtungan (endur-
sköpuð)
6.
Persneska
t Fom-íranska
t Indó-íranska
(endursköpuð)
t Armensk-aríanska
(endursköpuð)
t Móðurtungan
(endursköpuð)
7.
Hindi
t Sanskrít
t Indó-íranska
(endursköpuð)
t Armensk-aríanska
(endursköpuð)
t Aríönsk-grísk-arm-
enska (endursköpuð)
Það er þetta tungumál sem
klofnar annars vegar í arm-
enska-aríönsku og hins vegar í
grísku og þær fjórar tungur,
sem frá henni eru komnar:
dórísku, jónísku, eolísku og
akadísku. Og þessi runa endar
eins og hinar í móðurtung-
unni.
En hið „upphaflega" mál
mannsins verður seint fundið.
Tungumál er ekki einu sinni
uppfynding mannsins. Allar
lífverur „tala“ með einhverjum
hætti og fjölmargar tegundir
gefa frá sér hljóð, sem hafa
einhverja ákveðna merkingu.
Höfundur
er rithöfundur.
17.
JÚNÍ
Viö þökkum öllum þeim sem
hafa þegar borgað heimsenda
happdrættismiöa og minnum hina á
góöan málstaö og glæsilega vlnnlnga.
STUÐNINGUR YKKAR
ER OKKAR VOPN!
Athugiö: I þetta sinn voru miöar
einungis sendir körlum, á aldrinum
23ja-75 ára, en miöar fást á skrifstofu
happdrættlsins i Skógarhllö 8
(s. 621414) og I sölubflnum
á Lækjartorgi.
VINNINGAR:
1. MITSUBISHI PAJERO
þrennra dyra, V6, bensín.
Verömæti 2.400.000 kr.
2.-3. VWGOLFGL
Verömæti 1.300.000 kr.
4.-53. VÖRUR EÐA FERÐIR
fyrir 130.000 kr.
54.-103. VÖRUREÐA FERÐIR
fyrir 80.000 kr.
HVER KEYPTUR MIÐI
EFLIR SÓKN OG VÖRN
GEGN KRABBAMEINI!
Krabbameinsfélagiö
DEUTZ-FAHR
FUTTERERNTE-TECHNIK
VELAR SEM SKILA ARANGRI
Árangursrík heyverkun krefst nútíma véla-
kosts. DEUTZ-FAHR heyvinnuvélar eru fáan-
legar fyrir hvaða verkun heys sem er.
• Sláttuþyrlur — vinnslubreiddir 1,65m,
1,85m og 2,10m — með eða án knosara.
• Diskasláttuvélar — vinnslubreiddir
2,10m, 2,40m og 2,80m — með eða án
knosara.
• Fjölfætlur—vinnslubreiddir 4,40m,
5,20m, 6,40m og 7,60m — drag- eða lyftu-
tengdar með eða án vökvabúnaðar.
• Stjömumúgavélar — vinnslubreiddir
3,30m, 3,70m, 4,20m, 6,0m og 7,10m.
• Rúllubindivélar með föstu baggahólfi
1,2m eða 1,5m, fáanlegar með eða án
skurðarbúnaðar og forþjöppu.
• Aðrar heyvinnuvélar—stórbaggabindi-
vél, hefðbundnar bindivélar, sjálfhleðslu-
vagnar o.fi.
Bændur, nú er rétti tíminn til að tryggja sér
réttu heyvinnuvélamar. Hafið samband við
okkur sem fyrst.
w
ÞORf
ÁRMÚLA 11 - SÍMI 681500