Tíminn - 07.11.1992, Page 3
Laugardagur 7. nóvember 1992
Tlminn 3
Bæjarbúar á Seltjarnarnesi hafna algerlega útþenslu byggðar vestan
við núverandi byggð á nesinu. Siv Friðleifsdóttir bæjarfulltrúi:
„Þáttaskil í skipulags-
málum Seltjarnarness“
Á mjög fjölmcnnum borgarafundi
bæjarbúa á Seltjamarnesi í fyrra-
kvöld var samþykkt að óska eftir
breytingum á núverandi aðalskipu-
lagi Seltjamamess, þannig að
óbyggða svæðið fyrir vestan núver-
andi byggð verði skipulagt sem
fólkvangur. Jafnframt var samþykkt
að bæjarstjómin leiti leiða til að
kaupa landið fyrir hönd bæjarbúa.
Tillögur, sem bæjarstjórinn mælti
fyrir um veg og byggð vestan við
núverandi byggð, fengu alls engar
undirtektir á fundinum.
,Að mínum mati mun þessi fundur
marka þáttaskil í skipulagsmálum
Seltjarnarness. Allir bæjarbúar, sem
tóku til máls á fundinum, voru á
einu máli um að það bæri að vernda
þetta svæði. Ég fæ ekki séð að það
verði hægt að ganga framhjá þess-
um skýra vilja bæjarbúa," sagði Siv
Siv Friðleifsdóttir, bæjarfulltrúi
á Seltjarnarnesi.
Samtök atvinnulausra vilja:
Matargjafir til
þurfandi
Samtök atvinnulausra hafa farið
þess á leit við Alfreð Þorsteinsson,
varaborgarfulltrúa Framsóknar-
flokksins, að hann flytji á ný tillögu
um að koma á fót matarskýli í
Reykjavík.
Fyrr á árinu lagði Alfreð fram þá til-
lögu í borgarstjórn að komið yrði á
fót matarskýli fyrir bágstadda Reyk-
víkinga. Alfreð segir að forsvars-
menn Samtaka atvinnulausra telji
að margir atvinnulausir séu án bóta
og eigi ekki í nein hús að vernda.
Hann hefur eftir þeim að þeir hygg-
ist dreifa sfld til bágstaddra, sem þeir
fengu að gjöf í Þorlákshöfn. „Þeir
ætla að reyna að koma sér upp að-
stöðu til að geta gefið mat,“ sagði AI-
freð. -HÞ
Friðleifsdóttir, fúlltrúi minnihlut-
ans í bæjarstjóm, um niðurstöðu
fundarins, en fundurinn var haldinn
að fmmkvæði minnihlutans.
Á fundinum mælti Sigurgeir Sig-
urðsson bæjarstjóri fyrir skipulag-
stillögum, sem unnið hefur verið að
á vegum bæjarins síðustu ár. Tillög-
umar gera ráð fyrir talsverðri byggð
vestan við núverandi byggð og vega-
framkvæmdum. Bæjarstjóri sagði
að ef bæjarsjóður ætti að geta eign-
ast land vestast á nesinu, yrði hann
að geta selt lóðir. M.a. þess vegna
yrði ekki komist hjá því að þenja
byggðina vestar á nesið.
Á fundinum var mjög mikil and-
staða við að stækka byggð vestur á
nesið, og kom fram greinilegur vilji
til að leita annarra leiða til að gera
bænum kleift að kaupa Iandið.
Mikil andstaða er við tillögur bæj-
arstjórans í Sjálfstæðisflokknum á
Seltjarnarnesi, og óvíst er um hve
mikils fylgis þær njóta meðal sam-
verkamanna bæjarstjórans í bæjar-
stjóminni. Á fundinum lagði Guð-
mar Magnússon, fyrrverandi forseti
bæjarstjórnar, til að hugmyndir um
meiri byggð vestar á nesinu yrðu
lagðar til hliðar fram yfir næstu bæj-
arstjórnarkosningar. Sigurgeir bæj-
arstjóri sagði útilokáð að fallast á
þetta.
„Þetta mál fer ekki eftir flokkspólit-
ískum línum meðal bæjarbúa. Það
er almennur vilji að vernda þetta
svæði. Ég fæ ekki séð að þeim, sem
tala fyrir byggð þama, sé stætt á því
lengur eftir þennan fund," sagði Siv
Friðleifsdóttir.
-EÓ
Þórður Þ. Þorbjarnarson:
Opinber útför
Útför Þórðar Þ. Þorbjamarsonar
borgarverkfræðings verður gerð frá
Hallgrímskirkju þriðjudaginn 10.
nóyember kl. 13:30.
Útförin fer fram á vegum Reykja-
víkurborgar í virðingarskyni við
hinn látna. Séra Jón Bjarman jarð-
syngur.
Borgarskrifstofumar í Ráðhúsinu
og að Skúlatúni 2 verða lokaðar eft-
ir hádegið vegna útfararinnar.
L
NYJUNG!
EL'VITAL FROÐUNÆRING SEM ,
AÐ SKOLA ÚR EFTIR HÁRÞ
VITAL
skumbalsam
**CGINNCm*ÍI>NN& Cfr
WMD
L'ORÉAU
Sýnishorn af verkum Stein-
gríms Eyfjörð: „Horft á PARSI-
FAL“, verk unnið 1992.
Texti og teikn-
ingar á sýningu
í Nýlistasafni
í dag, laugardag, verður opnuð
óvenjuleg sýning í Nýlistasafninu
við Vatnsstíg í Reykjavik. Um er að
ræða sýningu á um 50 teikningum
og textaverkum, sem Steingrímur
Eyfjörð Kristmundsson hefur unn-
ið á síðustu árum.
Steingrímur hefur haldið ijórtán
einkasýningar, en hann hefur einnig
tekið þátt í fjölmörgum samsýning-
um hér heima og erlendis. Af sýn-
ingarstöðum erlendis má nefna Hol-
land, Sviss, Ítalíu, Svíþjóð og Eng-
land, en einkasýning, sem Stein-
grímur hélt í Essex-háskóla í
Colchester í Englandi fyrir tæpum
fimmtán árum, vakti mikla athygli í
þarlendum dagblöðum á sínum
tíma.
Sýningin í Nýlistasafninu er opin
frá kl. 14 til 18 alla daga og henni
lýkur 22. nóvember.
RÚMGÓÐUR Á
Lada Station er kjörinn bíll fyrir þá sem þurfa
burðarþolinn, rúmgóðan og sparneytinn bíl á vægu
I verði. Afturhurðin er stór og auðveldar það aðgang
að rúmgóðu farangursrými sem stækka má um
helming efaftursæti er velt fram. Lada Station er 5
manna og er framleiddur með 1500 cnf vél. Hann
er fáanlegur með fjögurra og fimm gíra skiptingu.
Z LADA STATION
.«> ' r cv/WÁ' *
.•’“*' "ÖÍV* ,+Æf fa'r
o<r rijbesv/* þí /m
OTzrr
ír<VÍM
GÓÐU VERÐI
BIFREIÐAR & LANDBUNAÐARVELAR HF.
Ármúla 13 108 Reykjavík Símar 6812 00 & 312 36