Tíminn - 07.11.1992, Blaðsíða 10

Tíminn - 07.11.1992, Blaðsíða 10
10 Tíminn Laugardagur 7. nóvember 1992 Norræn ráðstefna um alifugla á íslandi Dagana 12.-14. nóvember næstkomandi fer fram á Hótel Loftleiðum sam- norræn ráðstefna um alifuglarækt. Þetta er í fyrsta sinn sem ráðstefnan er hér á landi en hún er haldin árlega á vegum Samtaka norrænna alifugla- ræktenda. íslenskir alifuglabændur gerðust aðilar að samtökunum 1989. Ráðstefnuna sitja m.a. dýralæknar, ráðunautar, fóðurframleiðendur og dreifíngaraðilar alifuglaafurða. Það er Stofnungi sf., sameignarfé- lag Félags eggjaframleiðenda og Fé- lags kjúklingabænda, sem sér um framkvæmd ráðstefnunnar hér á landi. Á ráðstefnunni flytja ávörp m.a. Halldór Blöndal landbúnaðarráð- herra og Níels Ámi lund, stjómar- formaður Stofnunga sf. Búist er við að um 80 erlendir og um 20 íslenskir þátttakendur verði á ráðstefnunni, auk gesta. Meðal þess sem rætt verður um á fundinum er áhrif fóðurs á fitu- myndun hjá kjúklingum, fituvanda- mál hjá kjúklingum, beinmyndun- arvandamál í kjúklingum, fóðmn stofnfugla og hreysti daggamalla unga, reynsla af rekstri genabanka fyrir hænur, bólusetning alifugla, barátta gegn salmonellu o.fl. -EÓ Heimilistæki f rá eru vönduö og stílhrein 3Z.oL^A-a h/f ZANUSSI uppþvottavélar eru til I tveimur geröum, ZW 107 m/4 valk. og ID-5020 til innb. m/7 valkerfum. Báðar f. boröb. fyrir 12. Hljóölátar, einfaldar I notkun. Verð frá kr. 58.831,* Gufugleypar frá ZANUSSI, CASTOR, FUTURUM og KUPPERSBUSCH eru bæöi fyrir útblástur eöa gegnum kolsfu. Verð frá kr. 10.122,* RAFHA, BEHA og KUP- PERSBUSCH eldavélar eru bæöi meö eöa án blásturs. Með glerboröi og blæstri. 4 hellur og góöur ofn. 2ja ára ábyrgö á RAFHA-vélinni. — Frl uppsetning. Verð frá kr. 39.442,* Um er að ræöa mjög marg- ar geröir af helluboröum: Glerhelluborö m/halogen, helluborö 2 gas/2 rafm. eða 4 rafm. hellur meö eöa án rofa. Verð frá kr. 23.075,* ZANUSSI og KUPPERS- BUSCH steikar/bökunarofn- ar I fjölbreyttu úrvali og lit- um. Meö eöa án blásturs — m/grillmótor m/kjöthitamæli — m/katal(skum hreinsib aöi o.fl. Verð frá kr. 37.117,* KUPPERSBUSCH örbylgju- ofnar I stærðum 14 og 20 I. Ljós I ofni, bylgjudreifir, gef- ur frá sér hljóömerki. Tnm lL= Bjóöum upp á 5 gerðir þvottavéla. 800-1000-1100 sn./mfn. Meö/án valrofa á hitaspamaöarrofi. Hraðvél, sem sparar orku, sápu og tfma. Þvottavél með þurrk- ara og rakaþéttingu. 3ja ára ábyrgö — uppsetning. Verð frá kr. 54.541,- Þurrkarar, 3 gerðir, hefö- bundnir, meö rakaskynjara eöa rakaþéttingu (barki óþarfur). Hentar ofan á þvottavélina. Verð frá kr. 35.000,- 7 geröir kæliskápa: 85, 106, 124,185 cm hæö. Með eöa án frystihólfs. Sjálfv. afhrfm- ing. Hægt er að snúa hurö- um. Eyöslugrannir — hljóð- látir. Verð frá kr. 31.363,- Bjóöum uppá 9 gerðir kæli/frystiskápa. Ýmsir möguleikar f stæröum: Hæö 122,142,175 og 185 cm. Frystir alltaf 4 stjömu. Sjón er sögu rfkari. Fjariægjum gamla skápinn. Verð frá kr. 43.935,- Verö er miðað við staðgreiðslu. Frystiskápar. 50,125, 200 og 2501. Lokaöir meö plast- lokum — eyöslugrannir — 4 stjömur. Verð frá kr. 32.603,- ZANUSSI frystikistur, 213, 296 og 396 I. Dönsk gæöa- vara. Mikil frystigeta. Ljós I loki. Læsing. 4 stjömur. Verð frá kr. 41.298,- Okkar frábæru greiðslukjör! Útborgun aðeins 25% og eftirstöðvar á allt að 12 mánuðum. Opió sem hór segir: Virka daga tii kl. 18. Laugardaga f rá kl. 10—16. VERSLUNIN RAFHA, HAFNARFIRÐI. SÍMI 50022 - LÆKJARGÖTU 22 VERSLUN RAFHA, REYKJAVÍK, SÍMI 620100 - BORGARTÚNI 26 Peter Lewis, þjónustustjóri Case !H, í heimsókn á Rangárvöllum. Þjónustustjóri Case IH dráttarvélafram- leiðslufyrirtækisins. Peter Lewis: Kynni við Case eru engin skyndikynni Umboðsaðilar véla og tækja fyrír landbúnaðinn fá alloft í heimsókn til sín sérfræðinga og fræðimenn frá framleiðendum. Þannig var nýlega á ferð á íslandi Peter Lewis, þjónustustjóri Case IH dráttarvéla. I samtali við Tímann sagðist hann hafa ákveðið íslandsheim- sókn eftir að hafa hitt að máli hóp íslenskra bænda, sem sl. vor skoð- uðu verksmiðjur Case IH í Neuss í Þýskalandi þar sem framleiddar eru Maxxum-dráttarvélar. Case-dráttarvélar eru auk Þýska- lands framleiddar í Doncaster í Bretlandi og í Wisconsin í Banda- ríkjunum og fást í mörgum stærð- um og með margvíslegum búnaði. Maxxum-vélarnar eru afar full- komnar og tilheyra nýjustu kyn- slóð dráttarvéla. íslenskir bændur voru að sögn Lewis fljótir að til- einka sér þær og voru meðal fyrstu manna sem eignuðust Maxxum-vélar. Nú hafa verið framleiddar um 24 þúsund slíkar vélar. Nýjasta „súpervélin" frá Case er um þessar mundir að koma til Islands, að sögn Lewis. Hún nefnist Magnum 7120 og er 182 hestafla. Slík vél vann nýlega heimsmeistaramót í hraðplæg- ingu. Lewis ferðaðist um landið með Bergi Ketilssyni, þjónustustjóra Véla og þjónustu hf., umboðsaðila Case-dráttarvéla, og skoðaði fjölda búa, tilraunabúa og landgræðslu- verkefni þar sem Case- vélar koma við sögu. Þá heimsóttu þeir einnig þjónustuaðila svo sem verkstæðis- og viðgerðamenn víða um iand og leiðbeindu þeim. Lewis lætur vel af viðskiptum við starfsmenn Véla og þjónustu og telur þá mjög hæfa, þekkja mark- að sinn og viðskiptavini vel og bjóða þeim upp á trausta og góða þjónustu, en ekki nein „skyndi- kynni“. Case Maxxum staddur i Stykkishólmi á leiö til Vestfjaröa. Vélin er búin aflúrtaki og vökvaþrítengi að framan auk hins hefðbundna aö aftan.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.