Tíminn - 07.11.1992, Blaðsíða 22
22 Tíminn
Laugardagur 7. nóvember 1992
Til sölu
SCANIA III árg. 1980,6
hjóla, góður pallur, HIAB 550
krani. Gott ástand.
Verð kr. 1.600 þús. eða kr. 1.300 þús. stgr.
Upplýsingar I síma 93-71629 eða 985-29319.
Einnig til sölu VOLVO F10 árg. ‘82 10 hjóla búkkabíll, ek-
inn 288 þús. km. Robson drif, Sindrapallur. Gott eintak.
Verð kr. 2.40® þús. Skipti möguleg.
Uppl. í símafrl-679945 eða 985-25057.
A
if&J
HlÍSNÆÐISNEFND KÓPAVOGS
FANNBORG 4 — 200 KÓPAVOGI
Umsóknir
Húsnæðisnefnd Kópavogs óskar eftir umsóknum um kaup á:
Félagslegum eignaríbúðum
Félagslegum kaupleiguíbúðum
Almennum kaupleiguíbúðum
Um er að ræða 2ja, 3ja, 4ra og 5 herbergja íbúðir i Kópavogi.
Ibúðirnar verða afhentar á árunum 1993 og 1994. Umsóknirnar
gilda einnig fyrir eldri ibúðir, sem koma til endursölu á árinu
1993.
Umsóknareyðublöð verða afhent og einnig allar almennar upp-
lýsingar, á skrifstofu húsnæðisnefndar Kópavogs, Fannborg 4,
alla virka daga milli kl. 9-15 og verður móttaka umsóknanna á
sama stað.
Umsóknarfrestur er til 15. desember 1992.
Athugið að allar eldri umsóknir falla úr gildi.
Húsnæðisnefnd Kópavogs
Afmælis- og minningargreinar
Þeim, sem óska birtingar á afmælis- og/eða minningargreinum
í blaðinu, er bent á, að þær þurfa að berast a.m.k. tveimur
dögum fyrir birtingardag. Þœr þurfa að vera vélritaðar.
tw\
TOLVU-
NOTENDUR
Við í Prentsmiðjunni Eddu
hönnum,
setjum og prentum
allar gerðir eyðublaða
fyrir tölvuvinnslu
■■ P R T N T S M I i) | A N ■«
édddu
Smiðjuvegi 3,
200 Kópavogur.
Sími 45000
BILALEIGA
AKUREYRAR
MEÐ ÚTIBÚ ALLT í KRINGUM
LANDIÐ.
MUNlb ÓDÝRU
HELGARPAKKANA OKKAR
REYKJAVÍK
91-686915
AKUREYRI
96-21715
PÖNTUM BILA ERLENDIS
interRent
* •
Sturtuvagnar
7 tonn 0g 3,5 tonn
Þekkt fyrir þjónustu
VÉLAR & ÞJÓNUSTA hf.
Járnhálsi 2-110 Reykjavík
Slmi 91-683266 - Fax 91-674274
LYFTARAR
Úrval nýrra og notaðra
rafmagns- og dísillyftara
Viðgerðir og
varahlutaþjónusta.
Sérpöntum varahluti
Leigjum og flytjum lyftara
LYFTARAR HF.
Simi 91-812655 og 91-812770
Fax 688028
Tiiraunir með lágspennurafmagnsörvun lambakjöts koma ekki að
gagni við meyrnun kjötsins:
Fóður og meðferð
eftir slátrun ráða
gæðum kjötsins
„Ég kemst að þeirri niðurstööu að lágspennurafmagnsörvun komi ekki að
gagni við meyraun lambakjötsins. Aftur á móti ef kjötið er látið hanga í einn
sólarhring í 10 gráðu hita eftir slátrun, áður en það er fryst og það síðan þítt
hægt upp á einum sólarhring aftur, gerir það að verkum að það er orðið við-
unandi meyrt til neyslu," segir Rögnvaldur Ingólfsson, héraðsdýralæknir í
Búðardal.
Það er kunnara en frá þurfi að segja
að það eru gæði lambakjötsins
ásamt verðinu, sem ræður vaii neyt-
andans hverju sinni. Sé lambið fóðr-
að á sterku fóðri, t.d. kjarnfóðri, er
viðbúið að svokallað ullarbragð
verði af kjötinu. Aftur á móti ef það
er fóðrað á úthagagróðri á fjalli auk-
ast bragðgæði kjötsins.
í síðasta hefti Búvísinda er greint
frá tilraun sem Rögnvaldur og félagi
hans gerðu í Englandi þar sem at-
huguð voru áhrif lágspennuraf-
magnsörvunar og frystingar á
meyrnun, hvatastarfsemi og vökva-
tap lambakjöts. Tólf skrokkar voru
rafmagnsörvaðir í 60 sekúndur með
lágspennu strax eftir aflífun.
Skrokkarnir voru klofnir að endi-
löngu og látnir hanga við 10 gráðu
hita. Eftir 6 tíma var þriðjungur
klofmna skrokkanna frystur við -20
gráður á C og við ákveðinn loft-
hraða. Sólarhring eftir slátrun voru
hryggimir fjarlægðir úr skrokkun-
um sem eftir voru. Helmingur
þeirra var frystur við -20 gráður á C
en hinn helmingurinn var settur í
kæli við 2 gráður á C. Frosna kjötið
var geymt við -20 gráður í eina viku
en síðan þítt í kæli við 7 gráður á C í
sólarhring. Eftir þessa meðferð var
allt kjötið geymt í kæli við 2 gráður
á C í átta daga og rannsakað með til-
liti til seigj'u, hvatamagns og vökva-
taps. Tilraunir með rafmagnsörvun
kjöts eru ekki nýjar af nálinni en
þær hafa verið stundaðar á Nýja-
Sjálandi og víðar.
-grh
Bitur
Bitter Moon
Handrit: Roman Polanski, Gérard Brach.
Byggt á bókinni „Lunes de Fiel“ eftir
Pascal Bruckner.
Framleiðsla og leikstjóm: Roman Pol-
anski.
Aöalhlutverk: Emmanuelle Seigner, Pet-
er Coyote, Hugh Grant og Krístin Scott
Thomas.
Stjömubió.
Bönnuð innan 16 ára.
Það vekur ávallt athygli þegar hinn
pólskættaði Roman Polanski leik-
stýrir mynd. Eftir hann liggja
meistaraverk á borð við Chin-
atown og Tess, og einnig hinar
ágætu Rosemary’s Baby og Frantic.
Það er því ekkert skrítið að verk hans
hljóti athygli, en þar með er ekki öll
sagan sögð, því líf hans hefur verið
mjög viðburðaríkt og mikill fjöl-
miðlamatur, þó lítið hafi farið fyrir
honum nú upp á síðkastið.
Móðir hans lést í útrýmingarbúðum
nasista og árið 1968 var eiginkona
hans, leikkonan Sharon Tate, myrt
ásamt þremur vinum þeirra af Charl-
es Manson og fylgismönnum hans.
Árið 1979 var Polanski svo handtek-
inn, ákærður fyrir að hafa haft kyn-
ferðislegt samræði við 13 ára stúlku.
Málið var aldrei tekið fyrir, því Pol-
anski flúði frá Bandaríkjunum og
hefur búið í Frakklandi síðan. Þetta
útskýrir veru hans á síðum dagblaða
á síðustu misserum.
Söguþráðurinn í þessari mynd er á
Emmanuel Seigner
máni
þá leið að Nigel og Fiona, ekkert allt-
of hamingjusöm bresk hjón, eru á
ferðalagi á skemmtiferðaskipi á leið
til Austurlanda. Nigel kynnist manni
í hjólastól að nafni Oscar, sem segir
honum af ástarsambandi sínu við
hina kynþokkafullu Mimi, en hún er
einnig stödd á skipinu og vekur mikla
þrá í brjósti Nigels. Við sjáum sam-
band Oscars, misheppnaðs banda-
rísks rithöfundar, og hinnar frönsku
Mimi þróast úr fallegu rómantísku
ástarsambandi í stjórnlaust hatur
þeirra á milli, þar sem þau skiptast á
að hafa yfirhöndina. Skrautlegt kynlíf
þeirra skipar stóran sess í frásögninni
og er í raun örlagavaldurinn í sam-
bandinu.
Á meðan Nigel hlustar á hinn hroka-
fulla Oscar segja söguna, laðast hann
meira og meira að Mimi, og að sama
skapi fjarlægjast hann og kona hans
enn meir hvort annað. Stefnan verð-
ur óumflýjanlegt uppgjör milli þess-
ara fjögurra persóna um borð í skip-
inu.
í myndinni birtast þekktar týpur
eins og kynþokkafull frönsk stúlka,
hrokafullur og ósvífinn Bandaríkja-
maður og að sjálfsögðu kurteis og
bældur Breti. Það er með ólíkindum
hvað Bretar eru oft litlausar og keim-
líkar persónur í kvikmyndum, þ.e.
þeim sem gerðar eru utan Bretlands.
Ekki ætla ég að leggja dóm á heilu
þjóðimar, en kvikmyndagerðarmenn
virðast hafa afgreitt málið fyrir löngu.
Emmanuelle Seigner, sambýliskona
Polanskis, leikur Mimi og þótt hún sé
mikið augnakonfekt, þá vantar dálítið
upp á að hún valdi hlutverkinu. Peter
Coyote leikur Oscar, sem er að flestu
leyti algert skftseiði, og gerir það vel.
Senuþjófurinn er hins vegar Hugh
Grant í hlutverki Nigels. Túlkun hans
á þessum bælda Breta, sem roðnar af
skömm við hvert kynlífstengt at-
riði í frásögn Oscars, er hreint út
sagt frábær.
Myndir Romans Polanski em
oftast dálítið öðmvísi og Bitur máni
er engin undantekning. Það er talað
frjálslega um kynlíf og kynlífsóra, og
þeim gerð skil á bæði gamansömum
og alvarlegum nótum. Það vantar að-
eins upp á að spennan haldist allan
tímann, því myndin er kannski helst
til löng. Það hefði auðveldlega verið
hægt að klippa burt sum atriði, sem
vom í litlu samhengi við framvindu
sögunnar. í því sambandi má nefna
samskipti Fionu og Nigels við Ind-
verja, sem er farþegi um borð í skip-
inu. Kvikmyndatakan er góð og tón-
list Vangelis er mjög í hæfi við efnið.
Aðdáendur Polanskis verða ekki fyrir
vonbrigðum með sinn mann, þótt
hann sé ekki í sínu besta formi hér. I
heildina er Bitur máni góð kvikmynd,
sem má hafa talsvert gaman að.
Öra Markússon