Tíminn - 07.11.1992, Qupperneq 9

Tíminn - 07.11.1992, Qupperneq 9
Laugardagur 7. september 1992 Tíminn 9 DRATTARVELAR færðir um að sérréttindi MPLA sem ríkisflokks verði senn úr sögunni, keppist við að selja húseignir, farar- tæki og annað í ríkiseigu og megi ætla að andvirðið fari ekki annað en í vasa þeirra sjálfra. Hvað viðvíkur grimmd auðsýndri í borgarastríðinu og hryðjuverkum frömdum í þeim hemaði, hefur UN- ITA hinsvegar enn verra orð á sér en andstæðingurinn. Enda þótt MPLA hefði sigur í Lu- andabardaga um síðustu helgi, er ekki þar með sagt að UNITA sé af baki dottinn. f höfuðborginni er þorri manna með MPLA, eða a.m.k. frekar með þeim flokki en hinum, en UNITA stendur áfram föstum fót- um inni í landi. „Ekki verða blett- imir á feldi hlébarðans taldir fyrr en hann hefur verið felldur," hermir angólskt spakmæli. Velheppnuð sinnaskipti Hinsvegar er svo að heyra að dos Santos og þeim félögum hafi tekist betur en óvininum að aðlagast snögglega breyttum kringumstæð- um í heimsmálum. Vesturlönd eru það ánægð með sinnaskipti MPLA að nú virðast þau yfirleitt hafa meira álit á þeim flokki en UNITA. Varla er alveg óhugsandi að yfirbragð for- ingja og forustuhópa spili þar eitt- hvað inn í. Bandaríkin, sem áður studdu við bakið á Savimbi með ráð- um og fé, ráðleggja honum nú að sætta sig við fáeina ráðherrastóla í MPLA-stýrðri samsteypustjórn. Af erlendum aðilum eru Bandaríkin nú langáhrifamest í Angólu, eftir að ítök Rússa og Kúbana em því sem næst úr sögunni þar. Suður-Afríku- stjórn hefur líklega óskað UNITA sigurs í kosningunum, en með hlið- sjón af kringumstæðum í alþjóða- málum og í Suður-Afríku er ólíklegt að Savimbi geti gert sér vonir um mikinn stuðning þaðan, ef aftur yrði stríð með honum og MPLA. Vestræn fyrirtæki virðast líkt og ríkisstjómir þar taka nýtilkomna markaðshyggju MPLA trúanlega og eru byrjuð á því að koma undir sig fótum í landinu, ekki sfst Portúgalar sem sumir hafa fengið aftur eignir sem MPLA-stjómin þjóðnýtti með- an hún taldist marxísk. Vegna mik- illa náttúmauðlinda Angólu má ætla að þeir aðilar erlendir, sem fjár- magn hafa og kunnáttu til atvinnu- reksturs, séu yfirleitt hlynntir því að friður verði tryggður þar, því að annars þurfa erlendir fjárfestar ekki að búast við miklu næði þar. Og eins og sakir standa virðist MPLA hafa meiri möguleika en UNITA á að sameina landsmenn undir sinni for- ustu, þó ekki mikla. Að góðu haldi í innan- sem utan- ríkismálum kann MPLA að koma að flokkurinn hefur vingast við kaþ- ólsku kirkjuna í landinu og afhent henni aftur eignir hennar, sem vom allmiklar á portúgalska tímanum en MPLA-stjómin hafði þjóðnýtt. Kaþ- ólska kirkjan kom til landsvæðis þessa með Portúgölum og er þar fyr- ir löngu rótgróin og áhrifamikil. Um 60 af hundraði Angólumanna em hagskýrslum samkvæmt kaþólskir, en að vísu má ætla að ófáir þeirra séu blendnir í trúnni. Savimbi: áður guevaraskegg, nú hornaboltahúfa. unni fyrir MPLA og varð bragurinn á henni að því skapi amerískur. Kynþáttafordóm- ar meö Þessara andstæðna hefur gætt nokkuð í viðureign stóm angólsku flokkanna tveggja, hvort heldur hún hefur verið háð með vopnum eða áróðri. Menn Savimbis hafa stund- um sagt eitthvað á þá leið að þeir væm „sannir" Afríkumenn, MPLA- fólk á hinn bóginn hálfgerðir hvít- ingjar menningarlega og jafnvel að ætterni líka. Kynþáttafordómar em hér nálægir eins og víðar. Leiðtogarnir em e.t.v. enn ólíkari en flokkar þeirra. Dos Santos, sem verið hefur æðsti maður ríkis og rík- isflokks síðan 1979, er fimmtugur að aldri og menntaðist í Sovétríkj- unum sem verkfræðingur um olíu- vinnslu (olían er langhelsta auðlind Angólu). Hann er laglegur maður og fágaður í framkomu og ekki spillir fyrir honum, frekar en sumum öðr- um stjórnmálamönnum, að kona hans þykir lagleg líka. Savimbi, sem þykir eitthvað grófari áferðar, er kominn undir sextugt og hefur um hálfa ævina verið í útlegð og ófriði. Þar áður lagði hann stund á læknisfræði við háskólann í Lissa- bon og stjórnmálafræði við sviss- neskan háskóla. Ræður sínar flytur hann af miklum móði og er sagður eiga gott með að hrífa áheyrendur. Nokkuð drjúgur er hann með sig, að sögn, og áburðarmaður, gekk þann- ig lengi með perlumóðurslegna skammbyssu í belti, með húfu eins og Che Guevara hafði og ræktaði á sér skegg eftir sömu fyrirmynd. En í kosningabaráttunni nýverið var hann í bol og með hornaboltahúfu, í samræmi við breytta tíma. Óbreyttir liðsmenn skæruhers hans, sem tel- ur um 30.000 manns, kváðu nánast tilbiðja hann. Ráðríkur hefur hann þótt og nýlega sökuðu fyrrverandi flokksmenn hans hann um að hafa látið myrða nokkra í flokksforust- unni, sem voru á öðru máli en hann um eitthvað, og fjölskyldur sumra þeirra líka. „Annar myrðir, hinn stelur“ Á fréttamiðlum, sem fylgst hafa með gangi mála í Angólu, er helst að heyra að hvorugur stóru flokkanna sé í miklu áliti hjá alþýðu. ,Annar (UNITA) myrðir, hinn (MPLA) stel- ur,“ er haft eftir angólskum kjósend- um. Ætla má að ófáum þeirra hafi þótt síðari kosturinn hóti skárri og það valdið einhverju um kosninga- úrslitin. Spillingin hjá MPLA, háum sem lágum, þótti mikil meðan flokkur- inn taldi sig marxískan og hefur orðið meiri síðan hann fór út í frjálshyggjuna. Angólsk stúlka í heimsókn hjá ættingjum í Portúgal fyrir fáum árum vildi ekki þiggja þar eða kaupa neitt til að taka með sér heim, þrátt fyrir vöruskort þar, ann- að en plastpoka. Tollverðirnir á Lu- andaflugvelli, sagði hún, stela öllu fémætu og nýtilegu úr farangri sem fer í gegnum hendur þeirra. Nú seg- ir breska blaðið The Economist að angólskir embættismenn, sann- TIL SÖLU Nýir Yamaha vélsleðar Yamaha Viking 540 árg. '91 kr. 620.000,- Yamaha Phazer S/T árg. ‘92 kr. 580.000,- Yamaha ET 410 T/R árg. '92 kr. 520.000,- Yamaha BR 250 (sýningarsleði) árg. ‘92 kr. 370.000,- Ný Yamaha mótorhjól FZR 600 árg. '92 92 ha. kr. 700.000,- XJ900 árg.'91 98 ha.kr. 620.000,- TOM850 árg.'91 77 ha.kr. 740.000,- XV 535 árg. '92 46 ha. kr. 570.000,- YZ250 árg.'91 55 ha.kr. 420.000,- Vatnaþotur Super Jet 50 ha. kr. 390.000,- Notaður MJ 500 50 ha. kr. 200.000,- Notaðir vélsleðar Yamaha ET 340 T/R nývél árg. ‘BB.kr. 330.000,- Yamaha ET 340 árg. '89 kr. 310.000,- Yamaha ET 340 T árg. '83 kr. 170.000,- Yamaha ET 340 P árg. '88 kr. 320.000,- Yamaha ET 340 T/R árg. '87 kr. 340.000,- Yamaha ET 340 T/R nývél árg. '87 kr. 300.000,- Skidoo Plus árg. '89 kr. 460.000,- Skidoo Nordic árg. '89 kr. 250.000,- Aktiv Alaska árg. '87 .kr. 240.000,- CS300 ■ ■ árg. '87 kr. 260.000,- ÖII verð miðuð við lánakjör. Góður stað- greiðsluafsláttur. MliÍsoiÍfý HÖFÐABAKKA 9 . 112 . REYKJAVÍK . SlMI 91-634000 MAXXUM vélamar þekkja bændur vel um allt land. Þær gefa nýja viðmiðun í tæknilegum fram- förum. Nú koma svo fyrstu MAGNUM vélarnar frá Bandaríkjunum, stórar dráttarvélar í ræktun og þungatök. Einnig kynnum við núna CASE IH 845 XL dráttarvélar. Nýja lipra vinnuhesta, með samhæfðri hægrihandarskipt- ingu. Einnig eigum við fýrirliggjandi hinar vinsælu CASE IH 395-995 með XL eða L húsi og vendi- eða milligír. Með þessu úrvali er stuðlað að hag- kvæmni í búrekstrinum og óskir bænda uppfylltar með dráttarvélum í stærð- um 47 til 247 hestafla. Powershuttle Powershift p*. . uónnrf11 VELAR& ÞJÓNUSTAHF Sími 91 - 68 32 66

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.