Tíminn - 07.11.1992, Qupperneq 19
Laugardagur 7. nóvember 1992
Tíminn 19
hneykslun fyrir líferni sitt og skrif.
Colette skrifaði sögur sínar í byrjun
undir nafni eiginmanns síns, Willy.
Henry Miller varð að gera gangskör
að því að draga Anais Nin út úr
fylgsni sínu sem húsmóður í sveit.
Hin sígilda „sadó-masókiska“ saga
„Sagan um 0“ var skrifuð af Pau-
line Reage, sem kaus að skrifa und-
ir dulnefni. „Ég gekk í kaþólskan
skóla“ segir Groult. „Þar voru þess-
ar konur aldrei nefndar á nafn, og
okkur var innrætt að líta á George
Sand sem hneykslunarhellu. Þegar
á hana var minnst, var talað um
elskhuga hennar en ekki bækur
hennar.“
Konur láta sig
efniö varöa
Okkur er sagt að lýsingar á ásta-
lífsunaði og klám séu eins og kyn-
lífið. Konan hefur meiri gleði af
forleiknum, en karlinn af sjálfri
framkvæmdinni. Rannsóknir Kins-
eys árið 1950 leiddu í ljós að það
voru einkum karlar sem keyptu
klámrit. Sagt var að þeim þætti það
æsandi, en að konur reiddust þegar
klám væri annars vegar og fyndist
það niðurlægjandi. Sagt var að það
íeiddi af þessu að konur hefðu farið
að láta sig efnið varða á sjöunda
áratugnum og farið að skoða nýja
fleti á þessum málum á þeim átt-
unda.
f Bandaríkjunum skrifaði Erica
Jong „Fear of Flying" — fjörlega og
sérstaka frá sögn af djarfri konu og
ástarlífsævintýrum hennar. Litið
var á söguna sem tímamarkandi
fyrir stöðu konunnar í hugmynd-
unum um kynlífið. Svo var það
1973 að Nancy Friday tók að kanna
ókunnar slóðir, þegar hún opinber-
aði kvenlegar ástríður og hugaróra
í „Leynigarðinum" og Shere Hite
reyndi að þreifa á slagæð kynferðis-
legra strauma og stefnumála í
„Hite-skýrslunni“.
Nýlega sagði Nancy Friday: „Þetta
eru skrýtnir tímar til þess að skrifa
um kynlíf. Andrúmsloftið er lævi
blandið." Ef til vill er það þetta lævi
blandna andrúmsloft sem er
ástæða þess að ástarlífsunaðurinn
kemur á ný fram á sjónarsviðið í
bókum eins og „Slátraranum" og
„Salt á hörundi". Það kann að vera
teikn um það að konan sé að taka
við stjórnartaumuum. Þegar Friday
gaf út í fyrra skáldsögu, sem var
eins konar framhald af „Leynigarð-
inum“, „Konur á toppnum“, komst
hún að þeirri niðurstöðu að ný kyn-
slóð kvenna hefði öðru vísi langan-
ir en fyrri kynslóðir. Þær vildu yfir-
ráð, vildu taka völdin yfir eigin lífi,
og að það kæmi fram í kynórum
þeirra. „Konur í dag telja sig hafa
rétt til þess að gera það, sem konur
gærdagsins þorðu ekki að kannast
við fyrir sjálfum sér að þær þráðu.“
Groult segir að hinar endurvöktu
ástarunaðarsögur þýði einnig að
konur séu að leika mótleiki gegn
eldri sögum um konur, eins og
„Önnu Kareninu" og „Frú Bovary“,
en þar hlýtur kvenpersónan eins
konar refsingu fyrir að hafa elskað.
(Þýtt úr Sunday Times)
VÖKVAKNÚIN
STEYPUVÉL
Þekkt fyrir þjónustu
VÉLAR & ÞJÓNUSTA hf.
Jarnhalsi 2-110 Reykjavik
Simi 91-683266 - Fax 91-674274
FIATAGRI
Frábær tæknibúnaður
og hagstætt verð hafa
gert FIATAGRI að
einni mest seldu
dráttarvélinni á
íslandi í dag.
FIAT dráttarvélar eru með velti-
stýri og hæðarstillingu á stýris-
hjóli.
Allar FIAT dráttarvélar eru með
rafgalvanhúðaðri yfirbyggingu
og tectýl ryðvörn.
LlFT-O-MATIC sjálfvirk
hæðarstilling á þrítengibeisli
er staðalbúnaður í FIAT.
Hi-LO vökvaskiptur yfirgír og samhæfð-
ur vendigír með 24 gírum áfram og 12
afturábak ásamt 40 km hámarksöku-
hraða er staðalbúnaður í FIAT 85-90 DT.
FIAT
er best búna dráttarvélin í
dag, miðað við verð.
Vönduð FlAT dráttarvél, traustur framleiðandi, áreiðanlegur seljandi
og góð þjónusta um allt land er lykillinn að góðri fjárfestingu í drátt-
arvél í dag.