Tíminn - 07.11.1992, Side 21
Laugardagur 7. nóvember 1992
Tíminn 21
Morðinginn sagöi lögreglunni að hann hefði farið hæðavillt.
sem vitanlega greiddi svo fyrir
blómin.
Nokkru síðar hringdi svo morðing-
inn og hrósaði lögreglunni hæðnis-
lega fyrir örlætið.
Hinn 18. febrúar lét morðinginn
dularfulli aftur til skarar skríða og
aftur í sömu blokkinni.
Róttækur ræstitæknir
Klukkan var ellefu að kvöldi og
enginn á ferli nema ræstingastúlk-
an, hin 19 ára gamla Marjike von
Staijeeren. Hún var að skúra af
kappi þegar stórvaxinn karlmaður
kom út úr skoti á ganginum. Hann
sagði ekki eitt einasta orð, en
Marjike varð samstundis sannfærð
um að þama væri morðinginn kom-
inn í eigin persónu.
Marjike sá strax að henni var bráð-
ur bani búinn ef ekkert yrði að gert.
Hún var króuð inn í horni og átti sér
engrar undankomu auðið. Hún
hafði lesið blöðin og vissi að þetta
var maðurinn sem kyrkt hafði konu
í þessari sömu byggingu.
En Marjike var ekki á því að gefast
upp baráttulaust og þó undarlegt
megi teljast fann hún ekki til
hræðslu. Það eina sem komst að hjá
henni var að verjast og berjast.
Maðurinn mælti ekki orð frá vör-
um en lyfti upp stómm höndunum
og hóf að ganga í átt að Marjike.
En hafi hann búist við að stúlkan
yrði máttlaus af hræðslu og bæðist
vægðar, varð hann fyrir vonbrigð-
um.
Marjike reiddi þvegilinn til höggs
og lét hann vaða í höfuð mannsins.
Við það stökk hann hvæsandi að
henni og teygði hendumar að hálsi
hennar. En Marjike var ekki af baki
dottin. Nú var það í raun hún sem
átti frumkvæðið og hún klóraði og
tætti andlit árásarmannsins með
nöglunum og greinilegt var að hún
myndi ekki vfla það fyrir sér að klóra
úr honum augun. Jafnframt spark-
aði hún af öllu afli tvívegis í sköfl-
unginn á honum.
Ada Landsbergen var myrt eftir
aðeins tveggja mánaöa hjóna-
band.
aftur á bak og datt þá um skúringa-
fötuna. Marjike rauk að honum og
sparkaði hvað eftir annað í andlit
hans og hrópaði um leið á hjálp eins
hátt og raddböndin leyfðu.
Morðinginn brölti þá á fætur og
hraðaði sér sem mest hann mátti að
lyftunni. Marjike var ekki á því að
láta hann sleppa og elti hann með
þvegilinn á lofti. En morðingjanum
tókst að komast inn í lyftuna og
sleppa.
Marjike rauk þá niður stigana og
tók tvö til þrjú þrep í hverju skrefi.
fbúar hússins vom nú komnir á stjá
sökum hávaðans, þar á meðal van
Strien lögregluforingi. Þegar hann
kom út stóð Marjike á gangstéttinni
og steytti hnefana, alveg foxill.
Marjike gaf lögregluforingjanum
nú lýsingu á árásarmanninum og
bifhjóli hans. Van Strien hafði þegar
samband við lögreglustöðina og
skipaði svo fyrir að hverfinu yrði
lokað þegar í stað.
Eiturgrænt bifhjól
Marjike mundi ekki mikið eftir út-
liti árásarmannsins, ekki einu sinni
hvemig hann var klæddur. En hún
sagði hann hafa verið riðvaxinn,
með hornspangagleraugu og rétt
um þrítugt. En hún mundi betur
eftir bifhjólinu hans, því það hefði
verið alveg eiturgrænL
Lögreglan gerði ráð fyrir því að
morðinginn byggi í nágrenninu þar
sem hann hefði gert báðar árásimar
í sama húsinu. Leitað var því f öllum
reiðhjólageymslum í nágrenninu og
sú leit bar brátt árangur.
Þegar knúið var dyra hjá eiganda
hjólsins kom stór maður með horn-
spangagleraugu og íklæddur nátt-
fötum til dyra. Aðspurður hvort
hann væri hr. X, en það nafn höfðu
fjölmiðlar gefið morðingjanum,
neitaði hann því hlæjandi og bauð
lögreglumönnunum inn og bauð
þeim bjór. Hann var mikið klóraður
og marinn í framan, en kvað skýr-
ingu á því vera átök við eiginkon-
una. „Þið hljótið nú að þekkja slíkt,
náttúrlega allir harðgiftir," bætti
hann við hæðnislega.
„Ég skal drepa þær allar!“
Smástund stóð hann eins og úti á
þekju og svo virtist sem hann væri
að reyna að ná stjórn á sér. En
skyndilega leit hann upp og öskraði:
„Ég skal drepa hana! Ég drep þær
allar!" Eftir þessa einkennilegu
uppákomu var maðurinn handtek-
inn og færður á lögreglustöðina. í
ljós kom að hann hét Hans Krauser,
þýskur að uppmna og 31 árs gamall.
Hann neitaði staðfastlega að vera hr.
X og kvaðst ekkert um morðið á Ödu
Landsbergen vita annað en það sem
hann hefði lesið í blöðunum eins og
aðrir.
Þegar Marjike kom á lögreglustöð-
ina bar hún undir eins kennsl á árás-
armann sinn sem þá vissi að málið
var tapað og játaði allt.
Aðspurður hvers vegna hann hefði
hótað eiginkonum lögreglumann-
anna sagði hann að honum væri
ekki illa við lögregluna, þvert á
móti. Heldur hefði honum fundist
það einstaklega fyndin tilhugsun að
vita lögregluna á fúllu við það eitt að
gæta eiginkvenna sinna. Hann ít-
rekaði það að ætlun hans hefði verið
að myrða konu van Striens og
harmaði það að Ada Landsbergen
hefði látið lífið af því einu að hann
ýtti á rangan lyftuhnapp.
Hans Krauser var sendur í geð-
rannsókn og þá kom í ljós að andlegt
ástand hans var slíkt að hann var tal-
inn ósakhæfur. Hann var því vistað-
ur ævilangt á hæli fyrir geðsjúka af-
brotamenn.
Morðinginn flýr und-
an þveglinum
Mannræflinum varð svo um þessa
óvæntu mótstöðu að hann hörfaði
RADNIN6 A
KROSSGÁTU
Jólafrímerki
Ný jólafrímerki koma út mánudaginn 9- nóvember.
Fyrstadagsumslög fást stimpluð á pósthúsum
um land allt.
Einnig fást þau með pöntun frá Frímerkjasölunni.
FRIMERKJASALAN
PœgHIL
Pósthólf 8445, 128 Reykjavik, Simi 63 60 51
PÓSTUR OG SÍMI
RAUTT LfÓS þý>i\RAUTT fyÓSf 1
____________fe"™__________)
W mm
FDNDIR OG FELAGSSTORF
Stjórnmálanefnd LFK heldurfund þriðjudaginn 10. nóvembern.k. kl. 17 I Hafnarstræti 20, II. hæð. Til umræðu eru áherslur á flokksþingi. Allar framsóknarkonur eru hvattar til að mæta og taka þátt I umræðunni.
Kópavogsbúar — Nágrannar Spiluð veröurframsóknarvist að Digranesvegi 12 sunnudaginn 8. nóvember og hefstkl. 15. Kafflveitingar og góð verðlaun. Freyja, félag framsóknarkvenna
Aðalfundur fulltrúaráös Framsóknarfélaganna í Reykjavík verður haldinn mánudaginn 9. nóvember 1992, kl. 20:30, að Hótel Lind. Dagskrá: Kl. 20:30 Setning: Valdimar K. Jónsson formaður. Kosning starfsmanna fundarins. Skýrsla stjóman a) formanns, b) gjaldkera. Kosningan a) Formanns. b) Aðalmanna I stjóm (5) og varamanna (3). cj Tveggja endurskoðenda og eins til vara. d) Aðal- og varamanna I miðstjóm (8). e) Aöal- og varamanna I stjóm Húsbyggingasjóösins (3). Kl. 21:15 Stjómmálaviöhorfið: Steingrímur Hermannsson, fonnaður Framsóknar- flokksins. Efnahags- og kjaramál: Bolli Héöinsson, stjómandi málefnahóps. Umræður. «1.23:15 Önnurmál. Stjómin
Árnesingar — Félagsvist Hin áriegu spilakvöld Framsóknarfélags Arnessýslu hefjast 6. nóvember kl. 21 I nýja félagsheimilinu Þingborg I Hraungerðishreppi. Spilað verður I Aratungu 13. nóvem- ber kl. 21.00 og að Flúöum 20. nóv. kl. 21.00. Aðalverölaun utanlandsferö. Góð kvöldverölaun. Stjómin
Félagsvist á Hvolsvelli Spilað verður á sunnudagskvöldum 15. nóvember, 29. nóvember, 13. desember og 10. janúar. Auk kvöldverðlauna verða ein heildarverðlaun: Dagsferð fyrir 2 með Flugleiöum til Kulusuk. 3 hæstu kvöld gilda. Framsóknaríélag Rangárvallasýslu
Reykjavík Fulltrúaráð framsóknarfélaganna I Reykjavík hefur opnað skrifetofu að Hafnarstræti 20, 3. hæð. Skrifstofan er opin alla virka daga frá 13:00-17:00. Stjóm fulltrúaráðslns.
Hafnarfjörður Framsóknarfélögin í Hafnarfiröi hafa opna skrifstofu aö Hverfisgötu 25 á þriöjudags- kvöldum frá kl. 20.30. Lítiö inn, fáiö ykkur kaffisopa og spjalliö. Stjomlmar
Keflavík — Suöurnesjamenn Vetrarstarfið er hafið. Opið hús alla mánudaga kl. 20.30. Mætum öll. Alltaf heitt á könnunni. Framsóknaríélögin I Keflavlk.
Siglufjörður Almennur félagsfundur Framsóknarfélags Siglufjarðar veröur haldinn aö Suöurgötu 4, þriðjudaginn 10. nóvember 1992 kl. 20.30. Dagskrá: 1. Bæjarmál. 2. Kosning fulltrúa á flokksþing. 3. Önnur mál. Stjómln
Kópavogur — Opið hús Framsóknarfélögin I Kópavogi hafa opiö hús á laugardögum kl. 10-12 að Digranes- vegi 12. Lítiö inn, fáið ykkur kaffisopa og spjallið. Framsóknarfélögln
Borgarnes — Breyttur opnunartími Frá og með 1. október verður opið hús f Framsóknarhúsinu að Brákarbraut 1 á þriðjudögum frá kl. 20.30 til 21.30, en ekki á mánudagskvöldum eins og verið hefur undanfarin ár. Bæjarfulltrúar flokksins munu verða til viötals á þessum tlma og ennfremur em allir, sem vilja ræða bæjannálin og landsmálin, velkomnir. Að sjálfeögðu verður hellt á könnuna eftir þörfum. Framsóknarfélag Borgamess.
Akranes — Bæjarmál Fundur verður haldinn I Framsóknarhúsinu laugardaginn 7. nóvember kl. 10.30. Farið veröur yfir þau mál sem efet eru á baugi I bæjarstjóm. Morgunkaffi og meðlæti á staönum. Bæjarfulltrúamlr
Varanleg lausn á vatnsbrettum, sterk, rakaþétt og viðhaldsfri. Margir litir. Staðgreiðsluafsláttur. Einnig sólbekkir og borðplötur i mörgum litum. Ótrúlega lágt verð á legsteinum með rafbrenndum álplötum. Sterkt og fallegt. Marmaraiðjan, Höfðatúni 12. Sími 629955. Fax 629956.