Tíminn - 19.12.1992, Blaðsíða 1

Tíminn - 19.12.1992, Blaðsíða 1
Áhrif hærri skattprósentu og lægri persónufrádráttar á tekjur lág— og miðlungslaunafólks: Laugardagur 19. desember 1992 220. tbl. 76. árg. VERÐ í LAUSASÖLU KR. 110.- Með „jólasköttunum'1 fýkur jólabónusim allt að þrefaklur Áformaðir ,jólaskattar“ ríkisstjómarinnar lækka skattleysismörkin um nærri þrjú þúsund krM niður í rúmlega 57 þús.kr. Fyrir fólk með 65 til 100 þús.kr. tekjur þýðir þetta viðbótarskattheimtu upp á 15—21 þúsund kr. á ári, eða sem svarar tvöföldum til þreföldum þeim jólabónus sem ASÍ—fólk fær útborgaðan. Fyrir verkamann með 65.000 kr. mánaðarlaun koma ,jólaskattarnir“ til með að þýða um 68% hækkun á staðgreiðslu, eða úr 1.890 kr. upp í 3.170 kr. Eftir áformaða hækkun skattprósendunnar og lækkun per- sónufrádráttarins þá lækka útborg- uð laun þessa manns því úr 63.110 kr. niður í 61.830 kr., sem þýðir rúmlega 2% kaupmáttarrýmun. Til að halda útborguðum launum sín- um óskertum (63.110 kr.) þyrftu hins vegar mánaðarlaun 65.000 króna mannsins að hækka í 67.170 krónur, eða um rúmlega 3,3%. Sér- staklega vekur athygli í þessu sam- bandi, að því lægri sem launin em, þess meiri launahækkun þarf til að vinna upp kaupmáttarrýmun ,jóla- skattanna". í ályktun sem stjórn BSRB sam- þykkti í gær segir m.a.: „Stjórn BSRB varar alvarlega við fjárlagatil- lögum sem ríkisstjórnin hefur nú sett fram á Alþingi. Gert er ráð fyrir að stórauka álögur á almennt launa- fólk“. Það sé góðra gjalda vert ef horfið verði frá fyrirhugaðri skerðingu á bamabótum eins og nú sé rætt um. En stjórn BSRB varar við því að skattleysismörk verði lækkuð þar á móti, eins og nú sé í athugun. í þessu sambandi vekur BSRB athygli á því að lækkun skattleysismarka komi þyngra niður á þeim sem hafa lág laun en hinum tekjuhærri. BSRB hefur reiknað út áhrif þess að hæka skattprósentuna (úr 39,85% í 41,2%) og lækka skattleys- ismörkin um 400 kr. miðað við mis- munandi mánaðartekjur. Eins og fyrr segir, hækkar sjálfur staðgreiðsluskaturinn — sem á sinn hátt mætti líta á sem verðhækkun — um marga tugi prósenta hjá þeim sem hafa lægstu launin (á bilinu 65 til 70 þúsund). Skattur aif 80.000 kr. launum hækkar um 19% og af 100.000 kr. launum um 11%. Hjá fólki með mánaðarlaun á bil- inu 65—100 þúsund krónur hækkar staðgreiðslan, í krónum talið, frá um 15 þúsund til 21 þúsund krónur á ári — upphæð sem hjá mörgum færi ella langt í að duga fyrir upphit- unarkostnaði lítillar íbúðar (nú eða þá fyrir flugmiða í helgarferð til Bretlands) svo dæmi sé nefnt. Enn má benda á að þessi 15—21 þús.kr. skattahækkun láglaunafólks sam- svarat tvöföldum til þreföldumþeim jólabónus (eftir skatt) sem ASl fólk fær útborgaðan og þótti umtalsverð- ur árangur í kjarasamningum fyrir fáum árum. Þarna er því alldeilis ekki um neinn hégóma að ræða. Enda verður þyrftu þessar tekjur að hækka um 3% og þaðan af meira einungis til þess að fólk héldi jafn mörgum krónum eftir að ríkið hefur tekið sinn skerf. - HEI Innflutningur á „Snuffi hefur aukist griðarlega a sl. árum: Úr 45 kílóum i eitt Tóbaksvarnamefnd hefur vaxandi áhyggjur af neyslu, og þá sérstak- lega meðal unglinga, á svokölluðu „Snuffi“ sem er neftóbak. Sem dæmi um vaxandi notkun má nefna að árið 1987 nam innflutning- ur á þessu tóbaki alls 45 kílóum en hefur vaxið í eitt þúsund kíló eða eitt tonn. Á sama tíma og þessi gríðarlega aukning hefur orðið í innflutningi tonn og notkun þessarar tegundar á nef- tóbaki hefur neysla fullorðinna á hefðbundnu neftóbaki farið minnk- andi og er aðeins svipur hjá sjón miðað við það sem áður var. Hins vegar virðist „Snuffið" ein- hverra hluta vegna vera í tísku með- al unglinga á sama tíma og þeir virð- ast ekki vera jafti ginnkeyptir fyrir reykingum og áður var. -grh Sigfús ætlar að aðstoða Jón Sig. Sigfús Jónsson, fyrrverandi bæj- arstjóri á Akureyri, mun taka við stöðu aðstoðarmanns Jóns Sig- urðssonar, iðnaðar- og viðskipta- ráðherra, frá og með 15. janúar á næsta ári. Núverandi aðstoðar- maður ráðherrans, Guðmundur Einarsson, fyrrverandi alþingis- maður, er á leið til Genfar þar sem hann tekur við starfí á aðalskrif- stofu EFTA. Sigfús er fæddur á Akureyri árið 1951. Að loknu stúdentsprófi stundaði hann nám í landafræði við Háskóla íslands og lauk dokt- orsprófi í hagrænni landafræði við háskólann í Newcastle upon Tyne árið 1981. Sigfús hefur starfað við byggðadeild Framkvæmdastofn- unnar ríkisins, við kennslu, verið sveitarstjóri á Skagaströnd, bæjar- stjóri á Ákureyri og unnið við ráð- gjöf. Þá hefur Sigfús búið á Nýfundna- landi og stundað rannsóknir á sjávarútvegi. Að undanfömu hefur Sigfús veitt forstöðu nefnd um sameiningu sveitarfélaga. Sigfús er kvæntur Kristbjörgu Antons- dóttur og eiga þau 2 dætur. „I skóginum stóö kofi einn...“er hér sungiö hraustlega meö íslenskan jólasvein í útlenskum búningi, enn á Barónsborg í Reykjavík voru „litlu jólin“ í gær. Timamynd Ámi Bjarna. Uppeldisfræðingur segir óvenjumikinn fjölda jólasveina á íslandi aðeins auka á gleði barnanna en rugla þau ekki: Á jólasveinninn að vera í sauðskinnsskóm? Jólasveinamir eru áberandi þessa dagana en skyldi uppruni og eðli þeirra ekki vefjast fyrir yngstu kynslóðinni. Annars vegar er hrekkj- ótti íslenski jólasveinninn sem kemur fram í sauðskinnsskóm og lopapeysu og þessi gæðalegi ameríski jólasveinn sem ekur um á hreindýrasleða. Guðný Guðbjömsdóttir dósent í uppeldisfræði hefur ekki áhyggjur af þessu og telur að þetta auki gleði æskunnar. Guðný segist eiga unga dóttur sem nýlega ætlaði að kaupa jóla- kort en var í vafa um hvort hún ætti að velja íslenska eða erlenda jólasveina. „Hún gat alveg vegið og metið og sagði: Mamma á ég ekki að kaupa þessa gömlu íslensku. Þeir eru nú svo skemmtilegir." Hún álítur að þetta sýni að böm- um finnist fjölbreytnin skemmti- leg. Hún segist hafa bætt um betur við sín böm og sagt þeim frá dönsku nissunum sem séu eins konar prakkarar. „Þetta er spum- ing um að ræða þetta við börnin og segja frá mismunandi hefðum í mismunandi löndum þegar þau hafa þroska til. Þegar þau em lítil og skilja þetta ekki þá er þetta hvort sem er eitthvað skrítið og spennandi. Þau em náttúrulega smeyk við þetta og þá verða for- eldrar að finna hvað á að segja mik- ið,“segir Guðný. Guðný telur íslenska jólasveininn vera skemmtilegt menningarein- kenni. .Alargir foreldrar em í vand- ræðum með skóinn og það hvort það eigi að vera að plata bömin. Ég held nú að flestir finni nú eitthvað jafnvægi í því hvenær tími er kom- inn til að segja rétt frá,“segir Guð- ný. Hún álítur að börnin fyrirgefi foreldmm sínum og skilji ánægj- una og skemmtunina sem að baki býr. „Eg hef tilhneigingu til að sjá þetta með jákvæðum huga,“segir Guðný. Hún telur þó að það sé slæmt upp- götvi bam skyndilega að það hafi verið blekkt og því þurfi foreldrar að ræða þetta við bömin þegar þau fara að efast. -HÞ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.