Tíminn - 19.12.1992, Síða 3
Laugardagur 19. desember 1992
Tíminn 3
Sigurður Líndal, lagaprófessor, segir það standa skýrt í stjórnar-
skránni að forseti íslands geti neitað að undirrita lög en honum beri
að fara með þetta vald með gát:
Ekki sjálfgefið að
forseti samþykki
í vikunni samþykkti trúnaðar-
mannaráð Dagsbrúnar tillögu um
að skora á forseta íslands að undir-
rita ekki lög um staðfestingu EES-
samningsins verði þau samþykkt á
Alþingi. Sigurður Líndal, lagapró-
fessor, segir í grein í tímaritinu
Skírni að forseti íslands geti neitað
að skrifa undir lög sem Alþingi hefúr
samþykkt. Þessu valdi beri forseti
hins vegar að beita með gát. Afleið-
ing af slíkri ákvörðun forseta gæti
orðið stjómarkreppa.
Sigurður ræðir ekki um stjórn-
skipulega stöðu forseta íslands út frá
EES-samningnum heldur eingöngu
almennt. Niðurstaða Sigurðar er
skýr varðandi það að forsetinn hefur
vald til að neita að undirrita lög sem
Alþingi hefur samþykkt. Þetta vald
hefur forsetinn aldrei notað enda
eru flestir sammála um að forsetan-
um beri að beita því með mikill gát.
f 26. gr. stjórnarskrárinnar segir:
„Nú synjar forseti lagafrumvarpi
staðfestingar og fær það þó engu að
síður lagagildi en leggja skal það þá
svo fljótt sem kostur er undir at-
kvæði allra kosningabærra manna í
landinu til samþykktar eða synjunar
með leynilegri atkvæðagreiðslu.
Lögin falla úr gildi ef samþykkis er
synjað en ella halda þau gildi sínu.“
Þessi grein er skýr. Ef forsetinn
undirritar ekki Iög sem Alþingi hef-
ur samþykkt taka þau engu að síður
gildi en skjóta ber lögunum undir
atkvæði þjóðarinnar. Niðurstaða
þjóðaratkvæðagreiðslunnar ræður
síðan því hvort lögin standa eða falla
úr gildi. Forsetinn hefur þannig ekki
vald til að hnekkja ákvörðun Alþing-
is, einungis að fresta gildistökunni
og láta þjóðina síðan taka ákvörðun.
Eins og áður segir hefur forseti
aldrei neitað að undirrita lög. Sig-
urður segir að þó að forseti hafí ekki
notað þetta vald sitt þýði það ekki að
venjan hafí svipt hann því. Ekki sé
heil brú í að efna til þjóðkjörs um
valdalausan forseta.
Annað mál er hvort og við hvaða
aðstæður forsetinn á að nota þetta
vald. Sigurður reynir ekki að svara
þeirri spurningu í grein sinni. Ólaf-
ur Jóhannesson, fyrrverandi forsæt-
isráðherra og prófessor, segir hins
vegar í bók sinni, Stjórnskipun ís-
lands, að við óvenjulegar aðstæður
geti forsetinn beitt valdi sínu. For-
setinn sé því eins konar öryggi í
stjórnkerfínu.
Velta má upp þeirri spurningu
hvaða afleiðingar það hefði ef forseti
íslands neitaði að skrifa undir lög
um staðfestingu á EES- samningn-
um. Það er stefna núverandi ríkis-
stjórnar að bera samninginn ekki
undir þjóðaratkvæði. Tillaga þess
efnis var t.d. felld á Alþingi. Vel má
hugsa sér að ríkisstjórnin ákveði að
segja af sér ef forsetinn brýtur á baka
aftur þessa stefnu ríkisstjórnarinnar.
Forsætisráðherra gaf þá yfirlýsingu
þegar umræður voru um tillöguna
um þjóðaratkvæði á Alþingi að ríkis-
stjórnin myndi fara frá ef tillagan
yrði samþykkt. Það breytir ekki því
að forsetinn hefur þetta vald til að
neita að undirrita lög. -EÓ
Ekkert samkomulag er um afgreiðslu EES á Alþingi, en fjárlög og
skattamál þokast áfram:
Halda þingmenn jól
í Alþingishúsinu?
Sjúklingum er gefið súrefni í háþrýstiklefa og er talið að slík súrefn-
isgjöf geti verið mikilvæg viðbót viö hefðbundnar lækningar.
Háþrýstiklefi á
Borgarspítalanum
Háþrýstiklefi verður settur upp á
Borgarspítalanum í upphafí næsta
árs og er notkun hans ætlað að vera
mikilvæg viðbót við hefðbundnar
lækningar.
Þetta kom m.a. fram á fundi í gær
með ítölskum læknum og tækni-
mönnum sem munu setja upp klef-
ann. Þar kom fram að í slíkum klef-
um muni sjúklingar anda að sér
hreinu súrefni og er það talið geta
gefið góða raun þegar í hlut eiga
mikið slasaðir sjúklingar. Dæmi um
þetta er ef sjúklingur er mikið kalinn
eða nær kafnaður.
Þá kom fram að á undanförnum ár-
um hefur notkun háþrýstiklefa auk-
ist verulega á Ítalíu og víða annars
staðar í heiminum.
-HÞ
Óvissa ríkir um þinghaldið síðustu daga fyrir jól. Ekkert samkomulag hef-
ur tekist um þinghaldið og forsætisráðherra segist gera ráð fyrir að fundað
verði fram á Þorláksmessudag og hugsanlega milli jóla og nýárs. Ríkis-
stjómin stefnir enn að því að ljúka afgreiðslu EES- samningsins fyrir jól en
ólíklegt er að það takist.
í gær varði þingheimur mestum
tíma í að ræða frumvarp um breyt-
ingar í skattamálum. Málið er mjög
umdeilt og gerir stjórnarandstaðan
margar athugasemdir við það.
Meirihluti efnahags- og viðskipta-
nefndar leggur til miklar breytingar
á frumvarpinu. Lagt er til að hætt
verði við að lækka barnabætur og
sömuleiðis breytingar á tekjuskatti
fyrirtækja að stærstum hluta. í stað-
inn er lagt til að persónuafsláttur
verði lækkaður um 400 krónur á
mánuði. Nefndin leggur hins vegar
ekki til að hætt verði við að leggja
virðisaukaskatt á bækur, blöð, ferða-
mannaþjónustu og húshitun. Frum-
varpið gerir ráð fyrir að áfram verði
lagður skattur á skrifstofu- og versl-
unarhúsnæði og nefndin gerir ekki
athugasemdir við það.
Annað stórt mál sem varðar tekju-
hlið fjárlaga er frumvarp um al-
mannatryggingar. Það er einnig
mjög umdeilt. Ekki var lokið um-
fjöllun um frumvarpið í nefnd í gær
en búist er við að það verði rætt um
helgina.
Þá er þriðja umræða eftir um sjálft
fjárlagafrumvarpið en hún mun fara
fram í dag. Fjárlaganefnd leggur til
um 900 milljóna niðurskurð á út-
gjaldahlið. Fé til viðhalds á opinber-
um byggingum verður skorið niður
um 400 milljónir, vegafé um 250
milljónir, fjármagn til markaðsátaks
vegna EES lækkar um 50 milljónir,
fé til nýbyggingar yfir Hæstarétt
lækkar um 27 milljónir auk ýmissa
fleiri breytinga.
Ekkert samkomulag hefur tekist
um afgreiðslu EES-samningsins.
Ríkisstjórnin hefur ekki opinberlega
gefið annað í skyn en stefna hennar
sé að ljúka afgreiðslu málsins fyrir
áramót. Annarri umræðu er ekki
lokið, enn eru nokkrir þingmenn á
mælendaskrá. Stjórnarandstaðan
hefur sagt að hún sé tilbúin til að
mæta á fundi fram til jóla og milli
jóla og nýárs til að ræða þetta mál
óski ríkisstjórnin þess. Hugsanleg
niðurstaða er hins vegar að sam-
komulag takist um að ljúka annarri
umræðu fyrir áramót en þriðja um-
ræða verði látin bíða. -EÓ
talir kynntu háþrýstilækningar í háþrýstiklefa í gær. Timamynd Árni Bjama
PHESS CÖNI