Tíminn - 19.12.1992, Side 9

Tíminn - 19.12.1992, Side 9
Laugardagur 19. desember 1992 Tíminn 9 þætti. í sögunni munu þess ekki dæmi að heimurinn hafi sameinast svo mjög að baki eins af ríkjum þeim er hann samanstendur af, að hann hafi auðsýnt einu ríki þvflíkt traust. Hversvegna einmitt Sómalía? verð- ur kannski einverjum á að spyrja. í Suður-Súdan t.d. er ástandið vart betra og kannski enn verra en í Sómalíu, þótt minna hafí verið sjónvarpað þaðan. Þar er hungur- dauðinn aðalvopn stjórnarhers gegn uppreisnarmönnum. Suður-Súdan- ir í uppreisn eru kristnir og heiðnir, stjórn Súdans arabísk og íslömsk. Vonarendurreisn í Suður-Súdan myndi því líklega fá íslamska heim- inn að miklu leyti á móti sér. Hentugur vígvöllur Líbería? Hliðstæð aðgerð þar yrði varla vinsæl í Nígeríu, sem vill verða vesturafrískt svæðisstórveldi. Bosnía? Serbar tækju Vonarendur- reisn þar sem innrás og rússneskir „harðlínumenn" myndu líklega bregðast reiðir við af slavneskri og réttrúnaðarkristinni samkennd með Serbum, svo eitthvað sé nefnt. Viðvíkjandi Sómalíu eru vandamál af þessu tagi færri. Þar að auki hefur heitið Sómalía í næstum tvö ár varla verið nema landfræðilegt; heimurinn virðist sammála um að ekkert ríki sé til á því svæði sem enn heitir svo. Hér er því vart hægt að halda því fram að hlutast sé til um innanríkismál. Enginn sómalskur aðili virðist í bráðina þora að veita „innrásarhernum" viðnám, þótt sumir stríðsherranna bjóði hann varla velkominn í hjarta sínu, og enginn erlendur aðili sem má sín einhvers svo heitið geti er á móti „innrásinni." Að mati Bandaríkjahers er Sómalía þar að auki hentugur vígvöllur, ef til bardaga skyldi koma við einhverja stríðsherra eða stigamenn. Landið er fremur slétt hálfeyðimörk mest- an part og enginn frumskógur. Ekki sem sé gott fyrir skæruher sem hefði á móti sér hátæknilegan flug- her með vígþyrlum og öðru tilheyr- andi. Sómalía varð fyrir valinu ekki síst vegna þess að hún var talin „viðráð- anleg“ (doable), eins og þeir Bush og Cheney varnarmálaráðherra hans sögðu. Skörungsskapur Boutros-Ghali Fyrirætlun Bandaríkjamanna, að sögn þeirra sjálfra, er auk þess að kveða niður hungurvofuna, að koma á nógu mikilli reglu til þess að Barn, skrælnaö móðurbrjóst: flug- urnar koma á undan dauðanum. Liðsmenn í einum af mörgum herjum Sómala: unglingar í fíkni- efnavímu. starfsliði S.þ. takist að koma á friði og einhverjum vísi að stjórnarfari á ný. Bandaríkjastjórn lætur í veðri vaka að þetta ætti ekki að taka nema nokkra mánuði, síðan verði her hennar á brott. Minnugir enn á Ví- etnamstríð vilja Bandaríkjamenn allt frekar en að flækjast aftur í löngum ófriði. En ekkert lát er á táknum nýrra tíma og viðvíkjandi Sómalíu bregð- ur svo við að þar eru ýmsir öllu her- skárri fyrir hönd Bandaríkjamanna en þeir sjálfir. Þ. á m. er kristni Eg- yptinn Boutros Boutros-Ghali, framkvæmdastjóri S.þ. Hann vill túlka umboð Bandaríkjahers í Sóm- alíu svo, að hann eigi að afvopna landsmenn. Boutros-Ghali, valinn í embætti „yfirkonungs heimsins" til að gera Islamsheimi og Afríku til geðs, telur að líkindum áríðandi fyr- ir sig (og kannski einnig aðþrengda kristna landa sína) að sýna af sér í starfinu einhvern skörungsskap er hægt sé með gildum rökum að halda fram að komi múslímum og Afríkumönnum að gagni. Sómölsku vígamannaflokkarnir hrökkva undan hinum fjölþjóðlega (en aðallega bandaríska) S.þ.-her, þannig að trúlegt er að dragi úr hungurdauðanum meðan sá her dokar við. En fari hann eftir nokkr- ar vikur kannski án þess að hafa af- vopnað stríðsmennina, er hætt við að þeir komi til baka að Bandaríkja- her förnum og allt verði eins og var fyrir komu hans. Aldagamalt lögmál Helstu stríðsherrarnir tóku Banda- ríkjaher fyrst með stimamýkt og reyndu að keppa um hylli hans. Hafi sumir þeirra ekki það upp úr því sem þeir vilja er hætt við að það við- mót breytist. Taki Bandaríkjamenn það til bragðs að afvopna alla stríðs- menn, gæti það leitt til þjóðarein- ingar í Sómalíu, með öðru móti að vísu en ætlast er til með „innrás- inni.“ Sómalir, svo stoltir sem þeir eru af sjálfum sér, væru líklegir til að bregðast við reiðir ef útlendingar reyndu að afvopna þá og kannski meira að segja að mynda samfylk- ingu gegn S.þ.-hernum. Hætt er og við að stríðsherrar og þeirra menn geri ráð fyrir að með vopnum sínum muni þeir láta völd og (á sómalskan mælikvarða) góð lífskjör. Ef til stríðs kæmi með einhverjum stríðsmannaflokkanna og Banda- ríkjaher, fengju vestrænir hjálpar- starfsmenn, t.d. „bandarískar og breskar hjúkrunarkonur, fyrst á því að kenna," segir einn hjálparstarfs- mannanna. Herji ein ættkvísl á aðra, segir sami maður, er fyrst ráð- ist á það fólk sem ólíklegast er til að geta varið sig, samkvæmt „alda- gömlu lögmáli sómalskra stjórn- mála.“ AUKAHLUTIR UM JOLIN GOTT ER BLESSAÐ VERÐIÐ! Aukahlutur - aðalgjöfin handa Toyotaeigandanum! ® TOYOTA Aukahlutir NÝBÝLAVEGI 6-8 KÓP. SÍMI 634400 TOYOTA Ef ástkær maki þinn eða elskulegir foreldrar eru í hópi þeirra fjölmörgu sem hafa mikið dálæti á Toyotunni sinni (það minntist enginn á bíladellu) geturðu hætt að brjóta heilann um hvað þú eigir að gefa þeim í jólagjöf. • Ljóskastarasett frá.kr.4.312 • Drullutjakkar.................kr.5.782 • Verkfæratöskur 100 stk. ...frá kr.6.988 • Dráttartóg................frá kr.1.441 • Armbandsúr........frá kr.1.470-5.488 • Lyklakippur................frá kr.372 • Leikfangabílar..................kr.998 • Húddhlífar................frá kr.4.675 • Ljósahlífar.............frá kr. 4.635

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.