Tíminn - 19.12.1992, Page 18
18 Tíminn
Laugardagur 19. desember 1992
Mamphela Ramphele var orð-
hvöt, svört og meðvitaður rót-
tæklingur. Hún var lika ástmær
Steves Biko, pólitíska baráttu-
mannsins sem lögreglan barði
til bana 1977. Nú hefur hún
tekið sæti í stjórn Anglo Amer-
ican, risavaxna fjölþjóðafyrir-
tækisins sem þekkt er sem
South Africa Inc.
„Svik“ Rampheles við málstaðinn
hafa komið fyrrverandi stuðnings-
mönnum hennar í opna skjöldu, en
hún var áður eftirlaeti vinstrisinna.
Anglo, ásamt tvíburafyrirtækinu De
Beers, ræður yfir risavöxnu stór-
veldi demanta, gulls, fasteigna, dag-
blaða og brugghúsa, og lengi hefur
verið litið á það sem aðalskotmark
sósíalista, sem hafa viljað koma á
róttækum breytingum þegar svartir
taka við stjórn Suður-Afríku.
Endurúthlutun og
þjóðnýting ekki leng-
ur í tísku
Dýrir og hraöskreiöir bllar eru vottur um aö biökkumaöur hafi komist hátt I metoröastiganum.
í Suður-Afríku ganga fyrrum herskáir blökkumenn:
TIL LIÐS VIÐ
HVÍTA AUÐJÖFRA
Ramphele hefur samt verið snör í
snúningum og notfært sér allt um-
talið vegna nýju stöðunnar til að
fordæma tvö mest dýrkuðu atriðin í
hernaðaráætlun sósíalista. Hún seg-
ir að umræður um endurúthlutun
og þjóðnýtingu séu óraunhæfar og
gagnslausar og bætir við: „Ef fólk
heldur að lausnin á fátækt sé að
skipta peningunum á ný í buddur
almennings, veður það í villu og
svima."
Meðan meðforstjórarnir hennar
klöppuðu henni lof í lófa og hvítir
kaupsýslumenn litu á sinnaskipti
hennar sem vænlegt merki um að
ástandið væri að færast í eðlilegt
horf, fór hrollur um íbúa svörtu
bæjanna sem nærst höfðu á stjórn-
málahugmyndum hennar og Steves
Biko. Gagnrýnendur sögðu hana
hafa selt sálu sína.
En Ramphele er ekki ein á báti.
Margir tugir fyrrum félaga í barátt-
unni gegn kynþáttamisréttisstefnu
stjórnvalda hafa nú tekið kapítal-
isma fagnandi upp á arma sína, eftir
að hafa árum saman fordæmt frjálst
framtak og stórfyrirtæki. Fyrrver-
andi fangar á Robben Island, verka-
lýðsforingjar og pólitískir frammá-
menn í Afríska þjóðarráðinu (ANC)
og öðrum fylkingum svartra, hafa
tekið við störfum eða forstjórastöð-
um í stórfyrirtækjum hvítra í Jó-
hannesarborg eða komið á fót eigin
fyrirtækjum, sem eiga góðu gengi
að fagna.
Kehla Mthembu, fyrrum formaður
Azanian People’s Organisation (Aza-
po) sem byggir stefnu sína á hug-
myndum Bikos, var í heilan áratug á
ferð inn og út úr fangelsum vegna
stjórnmálaafskipta. Nú er hann
stjórnandi stórauðugs tryggingafé-
Iags. Mike Roussos, áður leiðtogi
járnbrautarstarfsmanna, er kominn
í yfirmannsstöðu hjá einkafyrirtæki.
Joas Mogale, sem í sjö ár var fangi á
Robben island vegna forystu sinnar
í Alafríska ráðinu (PAC), er orðinn
auðugur af viðskiptum með glugga-
tjöld.
„Lifnaðarhættir þeirra
ríku og herskáu“
Breytingin frá róttækni til auðæfa
hefur síast niður til núverandi pólit-
ísku forystunnar. Fjölmargir hátt-
settir í ANC hafa hleypt af stokkun-
um eigin gróðavænlegum fyrirtækj-
um í hjáverkum. Einn hefur keypt
bílaverkstæði í Soweto og annar sel-
ur alfræðiorðabækur á húströppum
á kvöldin.
Nýlega birtist grein í glanstímariti
í Jóhannesarborg sem bar titilinn
„Lifnaðarhættir þeirra ríku og her-
skáu“. Þar var lýst því ljúfa lífi sem
forystumenn ANC hafa tileinkað sér
ágætlega. Cyril Ramaphosa, vænt-
anlegur arftaki Nelsons Mandela
ANC-foringja, eyðir helgunum við
silungsveiði hjá hvítum iðnjöfrum
og kom með þyrlu á landsmót í
kappakstri fyrr á þesu ári. Jay
Nidoo, fremsti verkalýðsforingi
landsins, mætti í brúðkaup sitt ak-
andi í Rolls-Royce. Allan Boesak,
presturinn sem gerðist forystumað-
ur ANC á Höfða-svæðinu, ekur um á
fimm milljóna fsl. kr. Lancia-bíl.
Embættismenn, sem í eina tíð
klæddust gallabuxum og peysum og
litu á flug með Aeroflot sem ferð á
fyrsta farrými, láta nú ekki sjá sig
öðruvísi en í fötum frá frægum
hönnuðum og akandi í sportbílum.
í fjöldagöngu í Höfðaborg nýlega,
þar sem meðlimir ANC mótmæltu
áframhaldandi setu „kynþáttahat-
ursþings”, var í fararbroddi foringi á
staðnum, akandi nýjum BMW 325i.
Óánægja óbreyttra
með að leggja þjóð-
nýtingaráætlanir á
hilluna
Þessi ást á hinu Ijúfa lífi meðal for-
ystu svartra í Suður-Afríku hefur
leitt til óánægju óbreyttra félags-
manna og róttæklinga í bæjum
svartra. Margir kvarta undan því að
einkum og sér í lagi forystumenn
ANC séu tældir til valdaþátttöku í
stjórnmálasamningum við valda-
flokkinn, Þjóðernisflokkinn. Þeir
benda á að áætlanir um aö þjóðnýta
aðaliðnaðargreinar Suður- Afríku,,
sem í eina tíð voru máttarstólpar
stefnu ANC, hafi hljóðlega verið
lagðar á hilluna. Obed Musi, þekkt-
ur svartur blaðamaður, sakaði ný-
lega nýju forystusauðina um að
„snúa baki við uppruna sínum" og
taka upp hætti hvítra. „Gangið ekki
um og segið að þið séuð svartir,"
sagði hann þeim. „Lýsið ykkur frek-
ar sem „ný- svörtum"." Annar gagn-
rýnandi sagði frá blökkum lækni á
uppleið, sem fluttist úr fyrrum út-
hverfi hvítra vegna þess að svo
margir blökkumenn streymdu
þangað og gerðu hverfið þar með að
„einum bæ svartra enn“.
Nýju svörtu kapítalistarnir segja
slíka gagnrýni löngu gengna sér til
húðar. „Fólk hefur ekki enn komist
út úr skoðununum sem giltu á sjö-
Mamphela Ramphele var ástmær
Steves Biko og sem slík eftirlæti
vinstri sinna. Nú hefur hún snúiö viö
blaöinu og gengiö til liös viö hvlta
auövaldiö, segja sumir. Hún segist
vilja berjast áfram á réttum víg-
stöövum.
unda og áttunda áratugnum," segir
Kehla Mthembu, fyrrum Azapo-
maðurinn sem gerðist tryggingasali
og segist nú vera sósíaldemókrati.
„Það er enn læst inni í andspyrnu-
viðhorfinu. Ég trúi á viðskipti. Ég
trúi líka á endurdreifingu auðsins,
en það verður að koma sér upp efna-
hag áður en eitthvað er til að eiga
hlut í. Vandamálið við sósíalisma er
það að hann snýst allur um að eiga
hlut í einhverju, en uppbyggingin er
látin liggja milli hluta.“
Skoðanir Ramphele
njóta vaxandi fylgis
Ramphele, sem líka er fulltrúi
varaheiðursrektors háskólans í
Höfðaborg, hefur brennandi trú á
því að hún sé að koma á breytingum
með því að taka sæti í stjórn Anglo
American. „í blökkumannasamfé-
laginu veit fólk ekki enn í hvorn fót-
inn það á að stíga, þegar um er að
ræða að láta til sín taka í stjórnun
valdastofnana," hefur hún sagt.
„Það er litið á það sem óæskilegt
hugarfar. En þeir, sem ekki taka þátt
í leik aðalmannanna á þessu breyt-
ingartímabili, hafa ekki eins mikil
áhrif á þróun mála. Anglo ræður yf-
ir geysilegum auðlindum. Ef fyrir-
tækið verður í forystu í þjóðfélags-
legri og efnahagslegri umbreytingu,
koma önnur fyrirtæki í kjölfarið og
áhrifin af því koma víðar fram.“
Skoðanir Ramphele njóta vaxandi
fylgis. „Blökkufólk er orðið þreytt á
því að vera fátækt og grámóskulegt,
en sýna göfuglyndi," segir Sylvia
Vollenhoven, dálkahöfundur við
vikublað í Höfðaborg, andsnúið ap-
artheid, eftir kvartanirnar vegna
BMWsins í fararbroddi mótmæla-
göngunnar að þinghúsinu. „Við
þörfnumst leiðtoga sem geta lyft
okkur upp úr gráma lífsins í svörtu
bæjunum. Hver finnur að hann sé í
návist mikilmennis ef Mandela stíg-
ur út úr Golf-bíl? Það eru helst
kommúnistar án kímnigáfu sem
bölsótast út af lifnaðarháttum for-
ystumannanna. Það má heyra aðra
óbreytta liðsmenn ræða líflega kosti
og galla 325i.“