Tíminn - 19.12.1992, Qupperneq 21
Laugardagur 19. desember 1992
Tíminn 21
Darla Jo Swinford var fjórtán ára
og hafði gaman af því að daðra, en
það hafði alltaf loðað við hana að
hún bakaði ávallt vandræði. Það
hefði líklega verið þeim þremur
unglingsdrengjum sem hún hitti,
og þá sérstaklega hinum 18 ára
James Medlin, til happs ef þeir
hefðu aldrei hitt hana. Stefnumót
við Dörlu Jo Swinford kostaði
hann lífíð.
Þeir áttu heima í Southaven, nærri
Memphis, Tennessee og það var þar
sem flutningabílstjóri, sem var að
aka eftir fáförnum vegi þann 28.
desember 1990, kom auga á eithvað
óvenjulegt í skóginum nálægt veg-
inum. Flutningabflstjórinn lagði
bflnum og athugaði málið. Að því
loknu hraðaði hann sér í næsta
síma.
Lík í skóginum
Það var kyrrlátt á lögreglustöðinni
í Southaven á þessum laugardags-
eftirmiðdegi og nokkrir lögreglu-
menn, sem áttu að vinna á komandi
næturvakt, voru ekki komnir, en
það, sem flutningabflstjórinn hafði
að segja þeim, gerði það að verkum
að þeir lögreglumenn sem voru
ekki þegar mættir voru kallaðir út í
snatri.
Lögreglan snaraði sér á staðinn,
þar sem flutningabflstjórinn sýndi
þeim vettvang og það sem hann
hafði fundið, en það var lík ungs
manns og var andlitið afskræmt af
risastóru skotsári. Þetta var nokkuð
sem lögreglumennirnir könnuðust
við og fengu staðfest við krufningu.
Ungi maðurinn hafði verið skotinn í
andlitið með haglabyssu, og þetta
var ekki sjálfsmorð. Það var greini-
legt á blóðslóðinni, að líkið hafði
verið dregið um 35 metra frá vegin-
um.
Það var ljóst að það yrði ekki auð-
velt að bera kennsl á líkið, því and-
litið var illa farið og það voru engir
þeir hlutir á því sem gátu bent til
um hvem var að ræða. Það var strax
athugað hvort einhvers væri saknað
og kom þá í ljós að fyrr um daginn
höfðu ættingjar James Medlin til-
kynnt að hann hefði ekki skilað sér
heim, en hann hafði farið út að
skemmta sér á föstudagskvöldið.
Lýsing á Medlin og þeim fötum,
sem hann var í, passaði við líkið.
Rannsókn var strax hafin á því
hvernig Medlin hefði eytt síðustu
tímum sinnar stuttu ævi. Medlin
hafði síðast sést yfirgefa veitingahús
með stúlku, sem samkvæmt fram-
burði vitna hafði verið „vinkona"
hans um nokkurt skeið. Þetta var
hin 14 ára Darla Jo Swinford, 173
cm á hæð og um 60 kg að þyngd.
Daður hennar líf
og yndi
Samkvæmt framburði þeirra sem
þekktu hana úr skóla, hafði Swin-
ford gaman af því að daðra við
stráka og leika sér að þeim. Lög-
reglan reyndi að hafa upp á henni,
en hana var hvergi að finna. Hins
vegar komust þeir að því að sá, sem
Swinford hafði mest gaman af því
að leika sér að, var hinn 18 ára Ge-
orge Arthur Johnson, vandræða-
unglingur og skapheitur. Þau höfðu
haft samfarir frá því hún var tólf
ára, eða í tvö ár, og hafði hann búið
með fjölskyldu hennar í húsbfl
þeirra.
Þrátt fyrir að vera í tiltölulega
stöðugu sambandi, með Johnson,
virtist það ekki stöðva Dörlu Jo í að
daðra við aðra drengi. Og jafnvel
þegar Johnson var ekki á staðnum
byrjaði hún með öðrum á meðan.
Johnson handtekinn
í Florida
Lögreglan komst að því, að frá því
í nóvember og þar til skömmu fyrir
morðið á Medlin, hafði Johnson far-
ið með gömlum vini sínum, Ri-
chard Branum, í ferð til Orlando í
Florida þar sem Johnson var hand-
tekinn fyrir búðarhnupl. Það var
nákvæmlega á þessu augnabliki
sem Jamie Medlin ákvað að láta til
skarar skríða, þar sem Johnson var
ekki í bænum.
Swinford var að sjálfsögðu ánægð
með athyglina sem hún fékk frá
Medlin, og þau fóru að hittast reglu-
lega, en ekki var ólíklegt að hún
gerði það einungis til að gera John-
son afbrýðisaman og vildi kenna
honum þá lexíu að það væri ekki
óhætt að skilja hana eftir eina í svo
SAKAMÁL
V_________I________>
langan tíma.
Lögreglan hélt áfram leit sinni að
Swinford, en hana fundu þeir ekki
og ekki heldur þá kumpána, John-
son og Branum. Það var ólíklegt að
Johnson myndi mæta fyrir réttin-
um í Ftorida, en lögreglan lét samt
sem áður athuga það. Aðstandendur
Medlins höfðu látið vita að bifreið
Medlins hefði ekki sést síðan hann
var myrtur og þar sem ekkert hafði
til hans spurst, var gefin út tilkynn-
ing um hvarf bflsins, með skráning-
arnúmeri og lýsingu á þremenning-
unum.
Gripin sofandi
Við þjóðveg 98 í Florida eru starf-
andi geysimargar veitingastofur og
bensínstöðvar og það var einmitt ein
slík í Pensacola, sem þau Johnson,
Branum og Swinford stöðvuðu við
seint á laugardagskvöldið, og þar
sofnuðu þau í bflnum. Skömmu fyr-
ir klukkan átta á sunnudagsmorgun,
þann 30. desember, var lögreglubif-
reið ekið inn á bflastæðið þar sem
bifreið Medlins, sem þremenning-
arnir sváfu í, stóð. Lögreglumaður-
inn kom auga á tvo bfla á stæðinu og
kannaðist við annan þeirra á lýsing-
unni, sem gefin var út kvöldið áður.
Hann kallaði strax eftir aðstoð, en
það var óþarfi, því að þremenning-
arnir voru ennþá sofandi í bifreið-
inni.
Þau veittu enga mótspymu þegar
þau voru handtekin, færð í jám og
sett í lögreglubifreiðina. Ástæða þess
hve þau Darla Jo Swinford og George
Johnson voru svo sterklega gmnuð
um morðið var að þau höfðu verið að
Hin fjórtán ára gamla Darla Jo
Swinford haföi gaman af því aö
daöra.
George Johnson haföi átt I kyn-
ferðislegu sambandi viö Dörlu frá
þvl hún var 12 ára.
KWINAV'itt
N>
fOHCf.
I öau Oi 04 9!
I —1543
Richard Branum.
tala saman í heyranda hljóði af
nokkmm fjölda fólks þar sem meg-
ininntak samræðnanna var skipu-
lagning aftökunnar á Medlin, því
Medlin neitaði að gefast upp í þeirri
viðleitni sinni að fá Swinford til við
sig.
Johnson
í rafmagnsstólinn?
Það var Ijóst að ef Johnson yrði
dæmdur fyrir morð af yfirlögðu ráði,
myndi hann hafna í rafmagnsstóln-
um og ef hann hefði ekki verið sá
sem tók í gikkinn, myndi hann í það
minnsta fá þungan dóm fyrir að vera
meðsekur og að hylma yfir með
þeim seka. Þann sama dóm myndi
Branum fá. Hins vegar var einnig
ljóst að án vitnisburðar þeirra
tveggja yrði nánast vonlaust að fa
Swinford dæmda. Þess utan myndi
14 ára stúlka aldrei fá sama dóm og
þeir Johnson og Branum, sem voru
mun eldri.
Lögreglan gerði tvemenningunum
þetta ljóst og spurði þá hvort Swin-
ford væri þess virði að deyja fyrir
hana.
Það varð úr að í skiptum fyrir það
að sleppa við dauðarefsingu, lýstu
þeir sig seka um ákæruatriði þann
13. júní 1991 og fengu þeir báðir lífs-
tíðardóma. Johnson fékk 20 ár að
auki fyrir morð að yfirlögðu ráði.
Vitnað gegn Swinford
Næsta skref var að fá þriðja aðilann,
Dörlu Jo Swinford, dæmda og sanna
sekt hennar. Stór þáttur í þeirri við-
leitni var, að í samningi Johnsons við
yfirvöld var kveðið á um að hann
myndi vitna gegn fyrrum ástmey
sinni og lýsa fyrir rétti reiði sinni og
þörf fyrir hefnd þegar hann uppgötv-
aði, að James Medlin hafði verið í
ástarsambandi við Swinford, sem var
nákvæmlega það sem hún hafði vilj-
að. Medlin hafði ekki látið af tilraun-
um sínum, þegar Johnson kom til
baka frá Florida, og hafði þess í stað
reynt að fá Swinford til að yfirgefa
Johnson, sem Swinford hafði þá lýst
sem árásargjörnum og sjúklega af-
brýðisömum.
Johnson lýsti því fyrir rétti þegar
hann hitti Swinford á veitingastað,
þar sem hún samþykkti með ákafa að
koma Medlin fyrir kattamef.
Þau ákvaðu hvaða dag Medlin átti
að enda líf sitt, Swinford hafði sam-
band við Medlin og bað hann um að
hitta sig á veitingahúsi í Southaven.
Eftir matinn fékk hún Medlin til að
fara í ökuferð um kvöldið og líklega
hefur Swinford ekki þurft að biðja
Medlin oft um að stöðva á yfirgefn-
um og fáförnum veginum. Um
klukkan níu um kvöldið komu þeir
Johnson og Branum á staðinn, og á
meðan þeir Johnson og Mediin rifust
fyrir utan bflinn í um hálfa klukku-
stund, beið Swinford inni í bflnum.
Rifrildið tók á sig nýjar myndir og á
milli gengu æ harðari svívirðingar
og ásakanir.
En allt endaði þetta mjög skyndi-
lega. Johnson náði í haglabyssu úr
bíl sínum, tróð hlaupinu upp í munn
Medlins og hleypti af. Richard Bran-
um vottaði, að hann, eftir að hafa
horft á vin sinn drepa Medlin, hefði
hjálpað Johnson við að koma líkinu
út fyrir veginn og að fmna stað þar
sem ólíklegt var að hann fyndist.
Engin iðrunarmerki
Þá sex mánuði í fangelsi, sem Swin-
ford beið eftir réttarhöldum sínum,
skrifaðist hún á við George Johnson.
Þar sem bréf hennar voru ritskoðuð,
komust fangaverðir að því að hún sá
ekki mikið eftir því sem þau höfðu
gert og lýsir ein setning í einu bréfa
hennar því vel. „Var þetta slæmt sem
við gerðum við James Medlin?"
Það þótti ljóst aö Swinford hafði
skipulagt morðið á Medlin og notað
þá Johnson, annars vegar, til að
þrýsta á gikkinn og Branum til að
hjálpa til við að losa sig við líkið.
Swinford var fundin sek um morð
að yfirlögðu ráði og var þann 20. ág-
úst dæmd til lífstíðarfangelsisvistar.