Tíminn - 20.03.1993, Blaðsíða 15
Laugardagur 20. mars 1993
Tíminn 15
Dagsbrún mótmælir lækkun greiðslna til úthlutunarnefnda
atvinnuleysisbóta. Halldór Björnsson varaformaður:
Mesta niðurlægingar-
tímabil í sögu verka-
lýðshreyfingarinnar
HaUdór Björnsson, varaformaður Verkamannafélagsins Dagsbrún-
ar, segir að verkalýðshreyfinguna skorti bæði manndóm og þrek til
að takast á við þau öfl sem sæki hart að félagslegum þáttum hreyf-
ingarinnar svosem lífeyrissjóðunum. Nú síðast kom svo ákvörðun
stjórnar atvinnuleysisbryggingasjóðs að lækka umsýsluþóknun til
úthlutunanefnda atvinnuleysisbóta verkalýðsfélaga.
Á fúndi trúnaðarmannaráðs Dags-
brúnar voru samþykkt harðorð mót-
mæli við þessari ákvörðun stjómar
atvinnuleysistryggingasjóðs. Mót-
mælt var og órökstuddum fullyrð-
ingum fúlltrúa VSÍ í stjóm sjóðsins
um hagnað verkalýðsfélaganna af
vinnu við umsjón með greiðslu at-
vinnuleysisbóta og ósæmilegum
málflutningi VSÍ um misnotkun
verkalýðsfélaga á félagslegum tekj-
um hreyfingarinnar.
Halldór segir að frá því að hann hóf
afskipti af verkalýðsmálum fyrir
hartnær fjórum áratugum hafi hann
aldrei upplifað annað eins niðurlæg-
ingartímabil og um þessar mundir.
Ástæðan fyrir því hvemig komið er
segir hann of mikil áhrif svonefndra
„tækniaðila" innan hreyfingarinnar.
í staðinn vill hann efla áhrif grasrót-
arinnar í hreyfingunni.
í harðorðum mótmælum trúnað-
armannaráðsins kemur fram að af
samþykkt stjórnar atvinnuleysis-
tryggingasjóðs sé ekki hægt að
draga aðra ályktun en þá að stjóm-
armenn ASf og aðrir fulltrúar launa-
manna í sjóðsstjóminni telji að
heimildir VSÍ og annarra séu áreið-
anlegri um þessi mál en sjálf verka-
lýðshreyfingin. En fyrirliggjandi
gögn félaganna sýna að umsýslu-
þóknunin ber ekki uppi þann kostn-
að sem hlýst af starfi úthlutunar-
nefnda atvinnuleysisbóta verkalýðs-
félaganna. -grh
r
Lúörasveit Verkalýðsins er nú skipuð 50 hljóðfæraleikurum. Stjómandi er Malcolm Holloway.
Lúðrasveit verkalýðsins 40 ára:
Afmælistónleikar kl. 13.30
á laugardag í Háskólabíói
Lúðrasveit verkalýðsins varð 40 ára
þann 8. mars síðastliðinn. í tilefni
af afmælinu efnir sveitin til tón-
leika í Háskólabíói laugardaginn 20.
mars kl. 13.30.
Eftir tónleikana býður sveitin gest-
um sínum í afmæliskaffi í bíóinu og
að skoða sýningu á gömlum munum
og myndum frá starfinu sl. 40 ár.
Þá hefur sveitin gefið út sérstakt af-
mælisblað. Þar er aðdragandinn að
stofnuninni rakinn og sagan þessi
fjörutíu ár, en hún hefur löngum
verið tengd starfi og baráttu verka-
lýðshreyfingarinnar.
Efnisskráin á tónleikunum er að
vanda fjölbreytt en meðal annars
verður frumflutt útsetning Ellerts
Karlssonar á Vikivaka eftir Jón Múla
Ámason, en Jón lék með sveitinni í
áratugi.
Stjórnandi sveitarinnar er Malcolm
Hoíloway. Hljóðfæraleikarar með
sveitinni eru nú um 50 talsins.
jTil sölu
notaðar dráttarvélar
Case 1394 1984 77 ha. 4x4 Verö kr. 800 þús.
Ford 3600 1977 47 ha. 2x4 Verð kr. 300 þús.
Same Antares 1990
100 ha. 4x4 Verð kr. 2.100 þús.
MF 675 1983 4x4 m/Trima Verð kr. 800 þús.
Deutz 4006 1971 40 ha. 2x4 Verð kr. 200 þús.
IMT 569 DV 1985 65 ha. 4x4 Verð kr. 300 þús.
Ath. Öll verð tilgreind án vsk.
Notaðar heyvinnuvélar:
Krone 125 rúllubindivél 1990 Verð kr. 500 þús.
Tellefsdal pökkunarvél 1990
Claas Autum 24 rúmm.
heyvagn 1983
Deutz-Fahr 2,30
rúllubindivél 1989
Deutz-Fahr heytæta 1985
Verð kr. 450 þús.
Verð kr. 90 þús.
Verð kr. 450 þús.
Verð kr. 96 þús.
C7
D C7
D O.
JÁRNHÁLSI2 - SlMI 683266
Svæðisskrifstofa málefna
fatlaðra, Reykjavík
Eftirtaldar stöður eru
lausar til umsóknar:
1. Staða yfirfélagsráðgjafa á Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra i
Reykjavík.
Æskilegt er aö umsækjendur hafi reynslu af störfum í þágu fatl-
aðra og geti hafiö störf sem fyrst. Umsóknarfrestur er til 26.
mars nk.
Upplýsingar gefur framkvæmdastjóri í síma 621388.
2. Staða deildarþroskaþjálfa á sambýli þroskaheftra með atferi-
istruflanir.
Starfið er krefjandi og er unnið samkvæmt starfs- og verklýs-
ingu. Viðkomandi hefur umsjón með tenglastarfi. Æskilegt er að
umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 689554.
3. Staða deildarþroskaþjálfa til aö aðstoða og leiðbeina fötluðu
fólki sem býr (íbúðum.
Vinnutími er aðallega á kvöldin og um helgar. Staðan veitist frá
1. mai nk. eöa eftir nánara samkomulagi.
Umsóknir berist til Svæöisskrifstofu málefna fatlaðra, Nóatúni
17,105 Reykjavík.
Skólaostur
Skólaostur í sérmerktum
kílóapakkningum á einstöku
tilboðsverði í næstu verslun.
VERÐ NU:
VERÐ ÁÐUR:
ÞÚ SPARAR:
658 kr.
kílóið.
116 kr.
kílóið.
á hvert kíló.
OSTA OG
SMIÖRSALAN SE