Tíminn - 10.03.1995, Qupperneq 17
Föstudagur 10. mars 1995
17
Snjóplógur Vegagerbarínnar í Borgarnesi, en þessi tœki rába illa vib snjó-
inn þegar hann er orbinn samanbarinn eins og um þessar mundir.
Snjóþyngsli og ófœrb á Vesturlandi:
„Minnir á veturinn '57"
„Þab hefur nú veriö heldur
þungt fyrir fæti," sagöi Bjarni
Sigurbsson hjá Vegagerbinni
í Borgarnesi í samtali vib
Tímann í gær, þegar hann
var spuröur um ástand færö-
ar á Vesturlandi undanfariö.
„Þetta minnir mann töluvert
á veturinn '57, þegar mestur
snjórinn var hérna fyrir vest-
an, nema hvab þab er mun
minni snjór hérna núna. En
norbaustanáttin og þessi átt
sem hefur verib ríkjandi og
skafrenningur stöbugt, þetta
er mjög svipab því sem þab
var þá."
Hann sagöist hræddur um ab
þab yrbi erfitt hjá mörgu sveit-
arfélaginu í vetur vegna snjó-
moksturs. „Þaö eru slæmir
skaflar sem komu þarna fyrst í
óveörakaflanum. Síban hefur
bara skafiö og aldrei blotnaö
neitt í þessu, allar lautir orönar
fullar. Þetta er búiö ab vera erf-
itt, þó þaö sé kannski ekki eins
afleitt og á Vestfjaröakjálkan-
um og í Húnavatnssýslunum."
Bjarni sagbi ab þab væri víöa
oröiö erfitt í uppsveitum Borg-
arfjarbar, Lundarreykjadalur
og Flókadalur væru orönir erf-
iöir, Reykholtsdalur aö sunn-
anverðu og Hálsasveit væru
þungfær. Hvítársíða væri búin
ab vera afar erfið. Þverárhlíö
væri ekki búin ab vera mjög
slæm, nema Kleifar væru nátt-
úrlega ófærar og búnar að vera
lengi. Noröurárdalur væri erf-
iöur aö sunnanverðu og Norö-
dælingar notuðu ána til aö
ferðast á. „Þetta eru yfirleitt
stórir skaflar og traðir sem skef-
ur stöðugt í," sagöi Bjarni.
Norburleibin sagöi hann aö
væri búin aö vera í nokkub
sæmilegu lagi, þó væru nokkrir
stórir skaflar á sunnanveröri
Holtavörðuheiöinni. Bratta-
brekka hefur verið lokuð í hálf-
an mánuö.
Færð hefur verið erfiö á
sunnanveröu Snæfellsnesi, sér-
staklega frá Haffjaröará og vest-
ur um. í Breiðuvík var allt lok-
aö í gær. „Kerlingarskarð var
ekki opnað núna, þó þaö sé
mokstursdagur á því. Það er
bara afskrifaö í bili. Þaö er verib
að reyna viö Fróðárheiöina, en
þaö er töluvert mikill snjór á
henni," sagöi Bjarni. Hann
sagöi aö Heydalur væri opinn
og búiö aö vera opiö á noröan-
verðu nesinu. Opiö væri inn í
Búðardal. Þaö væri þungt fyrir
fæti og töluvert af sköflum í
suðurdölunum, erfitt í Hauka-
dal. Laxárdalsheiði væri ekki
afleit, miöaö viö margt annað.
Svínadalur væri ekki mokaður,
hann væri oröinn alveg kjaft-
fullur. Menn færu frekar fyrir
Strandir og veriö væri aö reyna
að opna Gilsfjörð.
Bjarni viðurkenndi aöspurö-
ur að tækjakosturinn hái Vega-
gerðinni viö moksturinn. Mik-
iö væri treyst á bíla meö snjó-
plóg, en snjórinn væri oröinn
svo samanbarinn aö þeir réðu
illa viö hann. Einnig vantaði
jarðýtur eöa samsvarandi tæki
til að ýta snjónum út eftir aö
vegirnir heföu veriö ruddir, því
það væri ekki hægt að gera
meö bílunum.
TÞ, Borgamesi
Ófœrbin á Vesturlandi hefur hamiab för fólksbíla. Ferbalangarnir á þess-
um bíl sátu fastir í snjóskafli vib Kljáfoss í Hvítá. Þá var ekkert annab ab
gera en bretta upp ermarnar og ýta. Myndir. tþ, Borgamesi
Meb því
styrkjum vib
íslenskt
atvinnulíf
Hrönn hf. iS Gunnvör hf.
Kaupfélag ísfirðinga Fiskiðjan Freyja
FROSTl Netagerð Vestfjarða
Oddi hf., Patreksfirði ORKUBÚ VESTFJARÐA
P| © Mjólkursamlag Isfírðinga