Tíminn - 06.05.1995, Síða 2
WKittMfWfíit
'W'T’fW'fJTW
Laugardagur ó.maí 1995
Skólastjóri Fossvogsskóla segir þab sárt ab geta ekki mœlt meb átta kennurum
sínum í 100% starf. Vib skólann er enga vinnu ab hafa til ab mœta
fleiri stöbugildum:
Barnakennsla er
orðin hlutastarf
Átta kennarar vib Fossvogsskóla
í Reykjavík hafa sótt um ab fá
ráðningu úr hlutastarfi í heilar
stöbur. Skólastjórinn, Óskar S.
Einarsson, hefur sent fræbslu-
stjóra Reykjavíkurumdæmis,
Áslaugu Brynjólfsdóttur, bréf
þar sem hann segir ab skólinn
geti ekki ab svo komnu máli
veitt kennurum þessum 28
vikustundir til kennslu á næsta
skólaári mibab vib gildandi
skilgreiningu á vinnutíma
kennara. Oskar getur því ekki
mælt meb umsóknum kennara
sinna.
„Ég hefbi gjarnan viljab mæla
meb þessum umsóknum því þab
er skobun mín ab umsjón meb
einum bekk og þau störf sem því
fylgja ætti ab vera fullt starf," seg-
ir Oskar S. Einarsson. Hann segist
vilja hafa allt þetta fólk í vinnu á
fullum launum, en hann hafi ekki
vinnu fyrir allt fólkib eins málum
er háttab. Hér sé um ab ræba fólk
sem hafi starfab allt ab 19 ár vib
skólann, flestir 10-15 ár. Þab sé
mjög sárt ab geta ekki mælt meb
umsóknum kennaranna.
Kennsla er hlutastarf hjá fjöl-
mörgum kennurum. Eins og nú
háttar til er bobib upp á þá tilhög-
un. Vilji menn hafa 100 prósent
vinnu verba kennarar ab fara ann-
aö en til einsetinna skóla til aö ná
því marki. Einsetinn grunnskóli
býöur ekki upp á fulla vinnu
kennara. Hann býöur upp á störf
fyrir fleiri kennara, en ekki fullt
starf.
Ólafur G. Einarsson, fyrrver-
andi menntamálaráöherra, sagbi í
blabaviötali rétt fyrir kosningarn-
Sagt var...
„ Þaö er þá ekki nema þegar fólk er
undir áhrifum sem þao rœöst aö
prestinum og vill fara aö rœöa viö
hann."
Pétur Pétursson gubfræbiprófess-
or í Alþýbublabinu.
„ Lati Þorkell
Eitt sinn áttu nemendur aö gera
grein fyrir víai Þorkels Súrssonar og
ekki vaföist þaö fyrir þeim: Þorkell er
haföur sljór og áttar hann sig seint
eöa aldrei á því aö veriö er aö drepa
hann. Þorkell er svo fínn maöur og
latur aö þaö var létt aö drepa
hann."
Heimili og skóli. „Skoplega hlibin á
skólanum .
„Ég œtlaöi nú aö fara aö lesa upp úr
bloöunum en þaö er svo mikil þoka
hérna fyrir noröan aö ég finn þau
ekki."
Gestur Einar Jónasson, útvarps-
mabur í gærmorgun.
„Eins og viö vitum er karlmaöurinn
sjálfsagöasta lífvera alheimsins og
um sjalfsagöa hluti er óþarfi aö
rceöa. Þar af leiöir aö eitthvaö er at-
hugavert viö karlmann sem soekir
karlastefnu."
Páll Vilhjálmsson í Vikublabinu.
„ Varaformennska í þingfokknum er
eins og plástur á rýtingsstungu,"
segir Vikublabib um SigrflSí Ónnu
Þórbardóttur og stöbu hennar inn-
an Sjálfstæbisflokksins.
„Aljmörg undanfarin ár hefur trú
múslima veriö aö vinng sér inn hinn
ógeöfelldasta stimpil. I hennar nafni
eru annarrar trúar barnahópar
sprengdirí loft upp, efeinhvers þarf
aö hefna."
Albert Jensen í lesendabréfi (
Mogga í gær.
„Þeirsem þekkja til Pamelu segja aö
hún hafi greinilega tekiö ráöum fyrr-
um vinkvenna Tommys Lees um aö
sinna honum vel í rúminu. Ef hún
geröi þaö ekki hyrfi hann á braut
meö nœstu Ijósku."
Svibljós í DV.
ar aö hann teldi aö einsetning
grunnskólans ætti ekki aö leiöa til
mikillar kjararýrnunar kennara,
kennarar þyrftu ekkert aö óttast
aö fá ekki fullt starf viö einsetna
skóla, hins vegar gæti yfirvinna
minnkaö. Sagöi Ólafur ab í nýjum
grunnskólalögum væri stefnt ab
því aö auka verulega vikulegan
kennslutíma, sem þýddi meira
starf fyrir kennara.
Allir grunnskólar landsins eiga
aö verba einsetnir áriö 2000 sam-
kvæmt nýju grunnskólalögunum.
í samningum ríkisins og kenn-
arafélaganna í lok mars var gerb
bókun þar sem samningsaöilar
lýsa yfir aö þeir muni í samvinnu
við menntamálaráðuneytið gera
tillögur um reglur sem feli í sér að
kennurum í einsetnum skólum
verði gefinn kostur á fullu starfi
við kennslu og störf tengdum
kennarastarfinu. Þar segir að skip-
uð skuli sérstök nefnd aðilanna
og á hún að skila tillögum sínum
fyrir 15. maí næstkomandi.
Við Fossvogsskóla hefur ein-
setning verib við lýöi frá 1989 og
fór þar fram tilraun meö slíkt
kerfi. Við skólann starfa 24 kenn-
arar með stjórnendum. Af um-
sjónarkennurum 15 bekkjardeilda
eru aðeins 5 í fullu starfi. Örfáir
sérgreinakennarar eru í fullu
starfi. ■
Kennararnir átta ásamt skólastjóra Fossvogsskóla, en kennararnir segj-
ast vilja vera kennarar aö aöalstarfi og ífullri vinnu. Þaö er hins vegar
erfitt eins og staöan er í dag. Tímamynd: cs
Skólamálaráb samþykkir heilsdags sumarskóla. Sigrún Magnúsdóttir:
Ekki lengur horft
til hjúskaparstöðu
Samþykkt hefur verib í Skóla-
málarábi Reykjavíkur ab starf-
ræktur veröi sumarskóli í 6-8
grunnskólum í Reykjavík í sum-
ar. Sigrún Magnúsdóttir, for-
mabur skólamálarábs, segir ab
fyrst og fremst sé um tilraun ab
ræba.
Um er að ræða kennslu 6-9 ára
barna og veröur bæði bobið upp á
hálfsdagsvistun og heilan dag.
Gjald fyrir hálfan dag er 6.500 en
9.800 fýrir heilan. Þá veröur bob-
ið upp á hádegisverð og létta
hressingu gegn vægu gjaldi.
Síðasta sumar var gerð tilraun
til rekstrar heilsdagsvistunar í
Öldusels- og Seljaskóla. Sigrún
segir aö forsenda þess ab þessi til-
raun sé gerð nú, sé að skóladag-
heimilin sem starfrækt voru yfir
sumarið hafi verið flutt yfir til
skólamálaráðs. Þar hafi börn ein-
stæðra foreldra verið vistuð en nú
sé búiö að leggja niður þessi skóla-
Sigrún Magnúsdótiir.
dagheimili i eiginlegum skilningi.
„Sumarskólinn mun nú taka við
þeim börnum sem voru á skóla-
dagheimilunum og er jafnframt
opinn öðrum börnum, hver svo
sem hjúskaparstaða foreldra
þeirra er," segir Sigrún Magnús-
dóttir, formaður skólamálaráðs.
„Við horfum ekkLlengur til hjú-
skaparstöðu. Mannvirki okkar
standa öllum opin," segir Sigrún
jafnframt.
Sigrún segir að talsvert hafi ver-
ið spurt eftir sumarskóla og segist
telja að eftirspurnin sé töluverð.
Iþrótta- og tómstundaráð hóf
fyrir nokkrum árum sumarnám-
skeið og er þetta mál að sögn Sig-
rúnar aðeins angi af þeiri þróun.
Þau börn sem fá vistun taka
minnst mánaðar sumarfrí.
Ekki er nákvæmlega búið að
reikna út kostnaðinn við sumar-
skólann en Sigrún segir ljóst að
þótt foreldrar barnanna borgi
6.500-9.800 kr. fyrir vistunina
muni eitthvert tap verða á rekstr-
inum. ■
I heita
pottinum...
Tekib var til þess á dögunum
þegar Steingrímur St. Th. Thor-
steinsson hélt upp á 70 ára af-
mæli sitt á Flughótelinu í Keflavík,
aö Steingrímur yfirgaf meb
skömmu millibili gesti sína ásamt
Sverri Hermannssyni banka-
stjóra en kom nokkrum mínútum
síbar aftur. Þegar Steingrímur og
Sverrir höföu leikib þennan leik
þrisvar sinnum fór einhver ab
kanna feröir þeirra og kom þá í
Ijós ab Sverrir og Steingrímur
voru í næsta húsi, á sölusýningu
afmælisbarnsins, sem þó var ekki
búib aö opna. Mun Steingrími
hafa tekist ab selja Sverri þrjú
málverk í þessum þremur ferb-
um, ábur en abrir gátu boöib í
verkin.
■
Bjórmálin á HM eru nú mjög
umtölub. Af því tilefni hafa menn
rifjab upp aö á kvikmyndahátíb
sem haldin var í Háskólabíói fyrir
nokkrum árum var svipab uppi á
teningnum, sagt var ab ísending-
ar yrbu sér til skammar ef ekki
yrbi bjór í húsinu á hátíbinni. Var
brugbiö vib og undaþágur veittar
og nokkrir þjónar ráönir til ab sjá
um bjórbar í þá fimm daga sem
hátíbin stób. Alls seldust 40 öl-
glös á hátíöinni!
■
Talsvert er rætt um skipan í
Bankaráb Landsbankans en nýtt
Alþingi mun m.a. velja menn í
staö Steingríms Hermannsson-
ar sem hætti á kjörtímabilinu, en
varamabur hans, Sigrún Magn-
úsdóttir, hefur veriö í rábinu síb-
an. Óvíst er taliö ab Sigrún sækist
eftir þessu enda mörg trúnabar-
staban safnast fyrir á heimili
hennar og Páls Péturssonar fé-
lagsmálaráöherra. Mebal þeirra
fjölmörgu sem talin er sækjast
eftir framóknarsætinu í bankaráb-
inu er Unnur Stefánsdóttir,
gjaldkeri Framsóknarflokksins, en
hún var í 4. sæti listans á Reykja-
nesi. Talsverb hreyfing er einmitt
innan flokksins í þá átt ab þing-
menn sitji ekki í bankarábum.
■
Sjálfstæöismenn í Reykjanes-
kjördæmi funda enn stíft um ráb-
herraíeysi kjördæmisins. Enn einn
hitafundurinn var haldinn í kjör-
dæmisráöi flokksins í fyrrakvöld
og voru menn ómyrkir í máli þar
og létu ýmislegt fíakka, ekki síst
um formann flokksins, sem fund-
armönnum þótti brjóta gróflega
á kjördæminu meö því ab velja
þrjá þingmenn úr Reykjavík í ráb-
herrastóla — engan úr Reykja-
nesi. Bent var á ab Davíb hafbi
tapab í kosningunum, missti
mann fyrir borb. Reyknesingar
héldu sínum mönnum öllum og
fylginu...