Tíminn - 06.05.1995, Blaðsíða 14
14
Laugardagur 6. maí 1995
Hagvrðinqaþáttur
?.) .
ORRIMA
af Pétri og Sverri
Mansöngur
Ýmsu ergagn að greina frá,
gera fraegt og lýðum tjá.
Saelast þó að sofa hjá
silfurmenja fríðri gná.
Krötum er það kaerast mál
krytinn auka og magna.
Því sem býr í þeirra sál
þursar einir fagna.
Hleypur örum kapp í kinn,
kempu stríðið freistar.
Þegar maetast stálin stinn
standa afeggjum gneistar.
Pétur sparar pí og kurt,
pússar hjör og branda.
Heimtar doktor Bergmann burt,
böðul sinn og fjanda.
En batna skulu atvik öll
eftir myrka daga.
A nú völd í Eirarhöll
Ingibjörg afSkaga.
Veröld þá sem verður ný
víst, svo deilur þverri.
Kyssir loks með kurt ogpí
kempan Pétur Sverri.
I.G.
1) Sjá viðtal Tímans við Pétur Pétursson lækni 28.4.
Læknar á Akureyri krefjast þess að Sverrir Berg-
mann segi af sér formennsku í Læknafélagi íslands.
Þegar ég horfði á hjartnæma auglýsingu í kosn-
ingabaráttunni varð mér þetta Ijóð á munni:
Harmur sjálfstæðra kvenna
Nú er klipptur naflastrengur.
Þótt nýburinn sé ekki drengur,
skerfa afþjóðar skuldum faer.
Fyrirvinna finnst ei lengur,
framfcerslan því illa gengur.
Engan kvóta erfir mær.
SMF
Fatasýning
Tískunnar glansmynd aftötmnum bar,
tálfjöðrum kroppamir skarta.
Ég horfi á allt sem að óljótast var,
indael er heimsmyndin bjarta.
Aðalsteinn Ólafsson
Fyrripartur:
Á lífsins vegi leik ég mér
laus við auð ogglingur.
Botn:
Þegar Mammons mikli her
maerðaróðinn syngur.
Strandaglópur
eða:
Já, hér er gott að gamna sér,
glettni hagyrðingur.
Helgi
Botnar og vísur sendist til Tímans
Stakkholti 4
Bolir til að taka sig út
í og bolir til að synda í
Ein vel vaxin meö aukakílóin
á réttum stöðum þarf að fá
fréttir af sundfatatískunni í
sumar. Getur maður látið sjá
sig í tvískiptum sundfötum,
eða er sundbolur algjört möst
og hvernig á hann þá að vera í
laginu? Síðan er nauðsynlegt
að vita hvort hægt sé að láta
sjá sig í sömu sundfötum í
laugunum hérlendis og á sól-
arströndum, svo ekki sé nú tal-
að um bakka hótelsundlaug-
anna þar sem allir eru að glápa
á mann.
Svar: Baðfatatískan í sumar
er þó nokkuð ævintýraleg. Þar
er heilmikil sveifla og mikib af
abstraktsundbolum, sem em
þannig gerðir að maður sér
varla hvort það er bikini eða
sundbolir, heldur eru þeir
marglaga með mörgum bönd-
um. Mér sýnist að konur verði
afskaplega köflóttar, ef þær
em mikið í sólinni með öll
þessi bönd á sér. En þetta em
heilmiklar flíkur.
Það er bæði í tísku þetta
háttskorna upp á mjaðmabein
og svo ber dálítið á þessu
gamla, góða nærbuxnasniði,
ekki svona skorið upp eftir
öllu.
Bikiniin sjást og eru í öllu
formi. Það er enn dálítið um
háttskornar buxur, sem ná
upp í mitti og eru stundum
eins og band í gegnum rassinn
og brjóstahaldararnir við eru
marglaga. Svo sést Iíka dálítið
af þessum gömlu bikinibaðföt-
um með brjóstahöldurum
meb spöngum og dálítið hærri
buxur, svona upp á miðjar
mjabmir. Stundum rauð- og
hvítköflótt eins og Brigitte
Bardot var í í gamla daga.
Spennandi
tískusveifla
Vestur í Ameríku er hönnuð-
urinn Norma Kamali, sem hef-
ur haft talsverða stjórn á sund-
fatatísku upp á síðkastið. Hún
notar bönd mikið og bert á
milli hér og þar, og svo er nýi
franski hönnuðurinn Herve
Leger, sem gerir allt úr rayon-
teygjuböndum og vefur líkam-
ann, líka í sundbolum. Sniðið
á þeim sundbolum minnir dá-
lítið á áratuginn 1950-60.
Tískusveiflan í sundfötum er
óvenjulega spennandi og það
er skemmtilegt að sjá baðfata-
síburnar í nýju tískublöðun-
um og á tískusýningum. Mikiö
er um liti og vel skæra, en föt-
in eru elegant og smart.
í sambandi vib notkun
sundfata hér hlýt ég að segja
að ég sé ekki konur fara í sund-
laugarnar hér í sumum af þess-
um múnderingum. Hér þarf
flíkur sem gott er að synda í,
og það kemur ekki í veg fyrir
að þær séu líka fallegar og fari
vel.
Hér er núna farib að fást eitt
besta merkið í sundbolum,
sem bæði eru fallegir og hent-
ugir. Heitir vörumerkið
O'Neill. Það sést best núna á
fegurðarsamkeppninni þann
24. hvab þeir standa sig vel,
því þetta er annað ef ekki
þribja árið sem stúlkurnar hafa
verið í bolum frá fyrirtækinu.
Þab er svo gott snið á þessu að
þab þarf ekkert að líma bolina
við rassinn, þetta er ekkert að
ferðast neitt þarna niður frá.
Heibar
jónsson,
snyrtir,
svarar
spurningum
lesenda
Hvernig
áég ab
vera?
Þessi föt eru mjög klæðileg og
falleg og hafa þann kost að
vera með gott stærðarkerfi.
Ættu allar konur að geta feng-
ib sundboli vib sitt hæfi frá
þessum framleiðanda, en ég
mæli sterklega með merkinu
fyrir konur sem vilja gera lík-
amanum einhver skil. Svo er
voðalega gott að synda í öllu
sem heitir Speedo.
Sundbolurinn
alltaf glæsilegri
Þegar farið er á sólarstrend-
ur, þá mæli ég með að í far-
angrinum sé glæsilegur sund-
bolur, sem auðvelt er að losa
nibur um sig. Ef konan vill
liggja berbrjósta, þá sé ekkert
ógurlega mikið mál að rúlla
honum niður. Bikinibuxur er
gott að hafa með sér til að vera
í á ströndum þar sem það tíðk-
ast að konur vilja vera topp-
lausar, en það á engin að gera
nema hana langi sjálfa til þess.
Bikini, sem er ekkert annað
en efri toppur og buxur, er
ekkert flatterandi. Þetta er ekki
annab en tvö þverstrik. Ég hef
alltaf séð þessi tvískiptu föt
sem sólbrúnkutæki en ekki
fegurðargyðjutæki. Tísku-
heimurinn segir að sundbolur-
inn sé alltaf glæsilegri flík, ef
konan vill taka sig virkilega
vel út í sólbaði eba sundi.
Þab er möguleiki ab athuga
hvort hún amma geymir ekki
gömlu sundfötin sín einhvers
staðar. Þau má alveg nota
núna, rétt eins og kvöldkjól-
ana og pelsana. Það eina er, að
þegar amma var ung voru efn-
in ekki eins teygjukennd og
núna, þannig að ef stúlka
stingur sér til sunds í. gamla
sundbolnum og hann er ekki
með hlýrum getur hún komið
berbrjósta upp úr aftur. Það er
helsti gallinn við sundbolinn
hennar ömmu.
Voöa
elegant
Á glæsihótelum erlendis sér
maður fínu, ríku konurnar
sitja með pinnaháa hæla og í
glæsisundbolum. Síðan standa
þær upp, fara úr sínum hæl-
um, setja hettu yfir höfuðið og
skella sér í Speedosundbol yfir
hérlegheitin og fá sér sund-
sprett. Þegar þær koma upp á
bakkann aftur, fara þær úr
Speedobolnum og á háu hæl-
ana og eru tilbúnar í drykk.
Þetta er voða elegant.