Tíminn - 06.05.1995, Blaðsíða 15
Laugardagur 6. maí 1995
&ímfam
15
Lögfræðingur
deyr
Gutierrez haföi veriö virtur lögfrœöingur
hjá lítillj en öflugri stofu og bar fólk hon-
um vel söguna. Samt höföu menn sérstak-
lega orö á einu: kvensemi unga lögfrœö-
ingsins.
Akstur er aldrei laus við
áhættu í Miami. Miami er
í hópi fjögurra þéttbýl-
ustu bórga í Bandaríkjunum og
því þurfa menn þar aö kunna
fótum sínum og fararskjótum
forráð. En það var ekki umferð-
arþungi eða hraður akstur sem
varð til þess að Ellen White og
Barbara Stone urðu vitni að
hörmulegum atburði á hrað-
brautinni, 16. ágúst 1991. Það
var enda venju fremur lítil um-
ferð, enda komið fram yfr mið-
nætti.
Þetta var dæmigert Miami-
kvöld, heitt og rakt. Konurnar
tvær sátu í bifreið Stones og
voru á leiö norður að Miami.
Stone og White óku bílnum í
lest eftir 154. breiðstræti, þegar
þarnæsti bíll á undan þeim tók
skyndilega beygju út af akbraut-
inni og hafnaði á öryggisgirð-
ingu með hávaða og látum. Á
meðan gaf bíllinn sem ók næst
á undan allt í botn og geystist
með miklum hraða úr sjónmáli.
Ekkert venjulegt
umferbarslys
„Við verðum að hringja á lög-
regluna. Það gæti verið slasað
fólk i bílnum," hrópaði White
og stöbvaði bílinn. Stone stökk
út og hringdi á lögregluna úr
næsta símklefa og skýrði frá
slysinu.
Á meðan stúlkurnar biðu eftir
lögreglunni, löbbubu þær að
bláa Cherokee-bílnum sem
keyrt hafði út af, en þorðu ekki
ab skyggnast inn í hann af ótta
við að ástandið væri alvarlegt í
bílnum. Abeins örfáar mínútur
liðu og þá var lögreglan komin á
staðinn ásamt sjúkrabíl.
Eftir að lögreglumennirnir
litu inn í bílinn, varð svipur
þeirra mjög alvarlegur. Annar
þeirra gekk í átt að stúlkunum
og spurði hvað hefði gerst.
Vitnin tvö sögðu frá því að
bíllinn hefbi skyndilega henst
út af akbrautinni og skolliö á
veggnum. Meira vissu þær ekki.
„Þetta er ekkert venjulegt um-
feröarslys," sagði Iögreglumað-
urinn. Meira sagði hann ekki,
en bað konurnar að halda kyrru
fyrir.
Skotið á ferð
Haft var samband viö John
King, yfirfulltrúa í morðdeild,
og honum falin rannsókn máls-
ins.
Fórnarlambið var Luis Guti-
errez, 31 árs. Hann var látinn
eftir að skotið hafði veriö úr
byssu í höfuð hans.
John King leit inn í bílinn og
sá hvernig skotið hafði verib
inn um afturrúðuna og í höfuð
mannsins aftanvert. Skotsárib
var stórt og gapandi og gaf til
kynna ab mögulega hefði afsög-
ub haglabyssa verið notub til
verksins og hleypt af á stuttu
færi.
King hafði sérstakan áhuga á
ab fá lýsingu á bílnum, sem ók á
brott af vettvangi. Stone og
White sögðu að allt hefði gerst
svo skyndilega að þær hefðu
Cerardo Lee.
SAKAMÁL
ekkert séð, annað en ab bíllinn
var ljóslitaður.
Framburður ungu kvennanna
tveggja varpaði litlu ljósi á gát-
una um hver skaut Gutierrez og
hvers vegna.
Ofbeldi, rán og morb, hefur
færst mjög í vöxt í Flórída á síb-
asta áratug. Stór hluti íbúa er
vopnum búinn og í seinni tíð
verður æ algengara að menn
grípi til skotvopna, ef þeim
finnst aksturslagið eitthvað at-
hugavert hjá nágrannanum.
Helst leit út fyrir aö sú væri
ástæðan í þessu tilfelli.
Kvensamur lög-
fræðingur
Daginn eftir, laugardaginn
17. ágúst, hóf John King könn-
un sína á fórnarlambinu. Hann
talaði við alla vini, aðstandend-
ur, vinnufélaga og abra aðila til
að reyna ab fá einhverja punkta
fram í dagsljósiö.
Gutierrez hafði verið virtur
lögfræðingur hjá Iítilli en öfl-
ugri stofu og báru menn honum
einum rómi vel söguna. Samt
var eitt, sem menn nefndu sér-
staklega. Það var kvensemi unga
lögfræðingsins.
Meðal annars kom í ljós að
Gutierrez hafði haldið við tvær
John King.
samstarfskonur sínar og hafbi
önnur verið gift.
Þegar John King beindi spurn-
ingum sínum til giftu konunn-
ar, Alice Lee, um samband
hennar við fórnarlambið, neit-
aði hún að hafa átt í sambandi
við Gutierrez. Yfirfulltrúinn
hugsaði sitt, en spurði einskis
frekar.
Óleysanlegt mál?
Síöar sama dag kom niður-
staöan úr krufningunni. Það var
eins og menn höfðu búist við.
Skotið hafbi veriö inn um aftur-
gluggann og í hnakka fórnar-
lambsins með haglabyssu af 8-
10 feta færi. Mjög erfitt er að
rekja þessi skotvopn, en eitt var
Luis Cutierrez.
ljóst. Sá sem skaut var annaö
hvort meistaraskytta, eða þá ab
hrein tilviljun haföi ráðið því að
skotið hitti í höfub ökumanns-
ins. Ef tekið er tillit til þess að
bílarnir óku um á rúmlega 100
km hraða þegar árásin var gerð,
er auðvelt að sjá samhengið þar
á milli.
Skothylkið fannst ekki og um
tíma leit út fyrir að hib full-
komna morð hefbi verið fram-
ið. Þaö voru engin fingraför,
ekkert morðvopn, engin skot-
Alice Lee.
hylki, engin mikilvæg vitni,
ekkert sem hægt var að nota.
Þrátt fyrir að lögreglan auglýsti
grimmt í fjölmiðlum eftir upp-
lýsingum, kom ekkert bitastætt
út úr því. Óvenju lítil umferð
hafbi verið þegar morðið var
framiö, og engin íbúa- eba þjón-
ustubyggð á moröstaðnum.
Þetta var m.ö.o. sennilega þaul-
skipulagöur glæpur.
Vonbrigöi og gleöi
Síbasta von yfirfulltrúans,
sem stjórnaöi rannsókninni, var
að eiginmaöur Alice Lee væri
viðribinn málið. Er hann
hringdi í vinnuveitanda hans,
kom í ljós að hann haföi til-
kynnt veikindaforföll, en ekki
spurbist til hans heima heldur.
Um kvöldið heimsótti John
King meinta ástkonu fórnar-
lambsins aftur og nú breytti
hún framburði sínum. Hún vib-
urkenndi ab mabur hennar
hefði komist á snoðir um fram-
hjáhaldið, en ákvebið ab fyrir-
gefa henni. Hún hefði verið
hætt að hitta samstarfsmann
sinn þegar hann lést og málið
væri því úr sögunni.
Eftir að hafa fengið vottab ab
eiginmaöurinn hefði ekki vikib
frá heimilinu morðkvöldið,
hafði John King þó næsta fátt i
höndunum. Hann náði tali af
Gerardo Lee daginn eftir, en
framburður hans var samhljóð-
andi konu hans. Þá var Gerardo
engin skytta, svo vitað væri, og
ekki skráður fyrir vopnum. Þetta
mál varö John King til mikilla
vonbrigða.
Þannig libu tvö ár og King var
að mestu leyti búinn ab sætta
sig við að málið myndi aldrei
leysast. Þá var hringt til hans af
annarri lögreglustöb í Miami.
Gerardo Lee hafði verið hanc'-
tekinn fyrir vopnað rán og við
yfirheyrslur hafði hann játað á
sig glæp tveimur árum áður,
nefnilega morðið á lögfræð-
ingnum Gutierrez.
Játningin
John King yfirheyrði sakborn-
inginn nokkm síðar og þá viður-
kenndi hann ab hafa oröið mjög
afbrýðisamur, er hann komst að
því að konan hélt framhjá meö
samstarfsmanni sínum. Hann
hafði keypt haglabyssu á svört-
um markaði og æft skotfimi sína
án þess að nokkur vissi til. Eina
kvöldstund hleraði hann í gegn-
um símann að Gutierrez yrði á
ferðinni þetta kvöld og ákvað að
elta hann í bíl og bíða lags. Þegar
rétta stundin rann upp, keyrði
hann alveg upp að bíl Gutierrez
og tók síöan í gikinn. Ekki þurfti
meira til. Síbar losaði hann sig
við morövopnið og skýrði fyrir
konunni sinni hvab gerst hafði.
Alice vildi ekki tengjast því
hneykslismáli, sem úr hefði orð-
ib, og veitti honum því f jarvistar-
sönnun um kvöldið.
Tilfinningin, sem fylgdi því aö
deyða, hafði alltaf verið Gerardo
hugstæb eftir morbið. Svo fór að
hann leiddist út í abra glæpi, sem
urbu smám saman alvarlegri. Eft-
ir að konan fór endanlega frá
honum, reyndi hann að ræna
áfengisverslun, en var handtek-
inn á staðnum. Eftir það fannst
honum sem tími væri kominn aö
leggja spilin á borðiö.
Gerardo Lee var dæmdur í 12-
17 ára fangelsi og vildu ýmsir sjá
þyngri refsingu. Alice fékk 2ja ára
fangelsi. John King var þó sáttur
við að málið upplýstist um síölr,
en hvarf ekki í hafsjó óleystra
morðmála í Bandaríkjunum. ■