Tíminn - 06.05.1995, Side 17
I
Laugardagur 6. maí 1995
17
IVI eð sínu nefl
Vorið er nú loksins komið til höfuðborgarinnar, þó ekki sé
vorlegt um að litast víða á Norður- og Austurlandi. Talsvert
hefur verið beðið um lag þáttarins í dag, enda er það vinsælt
vorlag. Við látum þetta lag fljóta inn, þrátt fyrir að grunur leiki
á að það hafi komið áður í þættinum á bernskudögum hans
fyrir nokkrum árum. Þetta er lagiö „Vorkvöld í Reykjavík" eftir
Evert Taube, en ljóðið er eftir Sigurð Þórarinsson.
Og þá er bara að skella sér í sönginn, góða skemmtun!
VORKVOLD I REYKJAVIK
G D
Svífur yfir Esjunni sólroðið ský,
G
sindra vesturgluggar sem brenni í húsunum.
G D
Viðmjúk strýkur vangana vorgolan hlý,
G
vaknar ástar þráin í brjóstum á ný.
E7 Am
Kysst á miðju stræti er kona ung og heit,
Em A7 D
keyra „rúntinn" piltar sem eru' í stelpuleit.
C
Akrafjall og Skarösheiði
G
eins og fjólubláir draumar.
C D G
Ekkert er fegurra en vorkvöld í Reykjavík.
2 1 0 0 0 3
D
X C 0 1 3 2
( t
( (1 »
( *
0 2 3 1 4 0
Am
Tjörnin liggur kyrrsæl í kvöldsólarglóð,
kríurnar þótt nöldri og bjástri í hólmanum.
Hjúfra sig á bekkjunum halir og fljóð,
hlustar skáldið Jónas á þrastanna ljóð.
Dulin bjarkarlimi á dúnsins mjúku sæng
dottar andamóðir með höfuð undir væng.
Akrafjall og Skarðsheiði
eins og fjólubláir draumar.
Ekkert er fegurra en vorkvöld í Reykjavík.
Hljótt er kringum Ingólf og tæmt þar hvert tár,
tryggir hvíla rónar hjá galtómum bokkunum.
Svefninn er þeim hóglega siginn á brár.
Sunnanblær fer mildur um vanga og hár.
Ilmur er úr grasi og angan moldu frá,
aftansólin purpura roðar vestursjá.
Akrafjall og Skarðsheiði
eins og fjólubláir draumar.
Ekkert er fegurra en vorkvöld í Reykjavík.
ív
X 0 2 3 1 0
Em
( M »
0 2 3 0 0 0
a7
1 » < > < »
1»
X 0 1 1 13
c
X 3 2 0 1 0
UTBOÐ
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræ&ings er óskaö eftir tilbobum í 53m2
vibbyggingu vib leikskólann Drafnarborg vib Drafnarstíg ásamt breyt-
ingum og endurbótum á eldra húsi.
Útbobsgögn verba afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn
kr. 10.000 skilatryggingu.
Tilbobin verba opnub á sama stab fimmtudaginn 24. maí 1995, kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
(REYKJAVÍK PURCHASING CENTER) Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
í? eAtit boLt
Lamut
batn !
IUMFEROAR
Iráð
r
/fyí'//?
eY/K/aÆ
f
Au'Oúotasaýa.t
Fljótlegur og góður eftirréttur.
4 sneiðar ananas
3 kiwiávextir
Lítill klasi blá vínber
3 appelsínur
2 bananar
50 gr hnetukjarnar
Skerið ananasinn í smábita.
Skrælið kiwiávöxtinn og sker-
ið hann í sneiðar eða þunna
báta. Vínberin klofin og kjarn-
arnir teknir úr. Appelsínurnar
skrældar og allar hvítar himn-
ur fjarlægöar; skornar í lítil
stykki á diski, svo safinn fari
ekki til spillis. Bananarnir
skornir í sneiðar. Sett í fallega
skál, appelsínusafa og ananas-
safa hellt yfir. Muldum hnetu-
kjörnum stráð yfir ávextina.
Látið bíða á köídum stað og
borið fram með þeyttum
rjóma.
Sæns&u/
eptfadeggert
Skrælið 8 epli, takið úr
kjarnana. Leggið eplin í smurt
eldfast mót með sléttu hliðina
niður.
1 1/2 dl sykur, 150 gr saxað-
ar möndlur, 100 gr smjör, 1
1/2 dl hveiti, 4 msk. rjómi.
Þetta er sett í pott og hrært
saman, látið aðeins sjóða.
Hellið þessu yfir eplin í form-
inu. Formið sett í 225“ heitan
ofn í 15-20 mín. eða þar til
eplin eru orðin mjúk og
möndludeigið hefur tekið lit.
Borið fram með þeyttum
rjóma.
(fóS sálUali
r-í&at&rfa
4 egg
125 gr sykur
3 msk. kakó
70 gr kartöflumjöl
3 msk. hveiti
2 tsk. Iyftiduft
Eggin og sykurinn þeytt vel
saman í þykka froðu. Blandið
saman kakói, kartöflumjöli,
hveiti og lyftidufti og sigtið
því varlega saman við eggja-
hræruna. Deigið sett í pappírs-
form (ca. 25x35 sm). Bakað
við 225° í 10 mín. Kökunni
hvolft yfir á sykri stráð bréf,
rakt stykki lagt yfir. Kakan lát-
in kólna, vafin saman með
smjörkremi á, flórsykri, smjöri
og appelsínuhýðisraspi eða
þeyttum rjóma með smátt
söxuðu súkkulaði, muldum
hnetum eða ávöxtum.
Br-ocvni&g
200 gr suðusúkkulaði
4 egg
3-4 dl muldir hnetukjarnar
4 dlsykur
150 gr brætt smjör
4 dl hveiti
2 tsk. lyftiduft
150 gr súkkulaði til aö
bræöa yfir kökurnar
Súkkulaðið brætt. Hneturn-
ar muldar eða saxaðar. Egg og
sykur þeytt saman. Brædda
smjörið hrært saman við
ásamt súkkulaðinu og hnetun-
um. Hveiti og lyftidufti hrært í
síðast. Deigið sett í vel smurt
skúffumót (25x35 sm). Bakað
við 175“ í ca. 25 mín. Kakan
látin kólna, þá skorin í 3 sm
stóra, ferkantaða bita í form-
inu. Bræddu súkkulaði smurt
yfir. Þetta ætti að verða ca. 50
köku stykki.
150 gr suðusúkkulaði
100 gr smjör
4 egg
150 gr sykur
1/2 dl hveiti
Norskum
krúnuskartgrip-
um stoliö í
London
Það var sunnudaginn 5.
febrúar s.l. sem dulbúnir
ræningjar, 3 saman, yfir-
buguðu vaktmenn skart-
gripafyrirtækisins Garrad's
í London, sem hafði um
þær mundir norsku krúnu-
skartgripina til eftirlits og
hreinsunar. Enginn gull-
smibur getur í dag getið sér
til um verömæti þessara
gripa, en vita þó ab tugir
milljóna er vissa.
Það er þó víst að þó
miklu hafi verið stolið í London, þarf Sonja drottning ekki
að mæta skartgripalaus. Sagt er að það séu til full skrín af
demantadjásnum til afnota fyrir hana.
Þessi kóróna, eyrnalokkar og hálsfesti og næla er kennt við
Desideriu, drottningu Svía/Norömanna, og þykja einhverjir
fegurstu skartgripir sem til eru.
1/2 dl kartöflumjöl
1/2 tsk. lyftiduft
Fylling:
2 1/2 dl rjómi
100 gr jarðarberjasulta
Bræðiö súkkulaðib og smjör-
ið saman við vægan hita. Þeyt-
ið eggjarauðurnar með sykrin-
um vel saman. Bætið súkku-
laði/smjörinu saman við. Hrær-
ib hveiti, kartöflumjöli og
lyftidufti varlega saman við.
Eggjahvíturnar stífþeyttar og
þeim blandað varlega saman
við deigið. Deigið sett í vel
smurt form (ca. 20 sm) og bak-
ið það í ca. 40-50 mín. vib 175°.
Kakan látin kólna. Rjóminn
þeyttur og jarðarberjasultunni
blandað saman við hann. Kak-
an klofin í tvö lög og sett sam-
an með rjómanum. Flórsykur
sigtaður Iauslega yfir.
við fægjum
kopar, er best að pússa síð-
ast yfir með dagblöðum —
og allt verður gljáandi og
endist lengi.
cy
W Þegar lifur er steikt,
er ágætt ráð að setja hveit-
ið, saltib og plparinn í plast-
poka og lifrarsneiðarnar líka
og hrista vel. Henda svo
bara pokanum, mjög þægi-
legt og einfalt.
Lítill, fallegur vasa-
klútur er tilvalinn þegar
pakka á inn smágjöf. Binda
svo faliega silkislaufu á.
t* Gott er að nota edik
og salt til að hreinsa kristal-
könnur og -vasa. Hrista það
vel og skola svo úr volgu
vatni.
W Tebollarnir hreinsast
vel með sjóðandi vatni og
sítrónusneið út í. Látið
standa í yfir nótt