Réttur - 01.10.1970, Page 7
koma sér saman um að mynda ríkisstjórn sem
síðan hefur forustu um alla þróun landsmála.
Þessi aðferð er á engan hátt sjálfsögð. I Sviss
eru ríkisstjórnir til dæmis kosnar af þinginu
samkvæmt hlutfallskosningaaðferð, án þess
að um sé að ræða samstæðan meirihluta sem
standi að stjórninni og komi vilja hennar
fram á þingi. Þar verða ráðherrar því að
leggja mál sín fyrir þing án þess að hafa fyr-
irfram nokkra örugga vitneskju um fram-
gang þeirra. Þær ákvarðanir sem yfirleitt eru
teknar af ríkisstjórnum eru þannig teknar af
þinginu í Sviss fyrir opnum tjöldum, en rík-
ísstjórnin er aðeins einskonar framkvæmda-
nefnd. Þessu fyrirkomulagi fylgja svo mjög
opin ákvæði um þjóðaratkvæðagreiðslur, svo
að almenningur hefur tök á að hlutast til um
ákvarðanir þingsins hvenær sem er á kjör-
tímabilinu.
Astæða er til að velta því fyrir sér hvort
einhver hliðstæð tilhögun kynni ekki að
henta hinu örsmáa íslenzka þjóðfélagi. Slík
skipan mundi gera þingið að ótvíræðri valda-
stofnun og auka jafnframt lýðræðisleg rétt-
indi almennings. Hún yrði allavegana hreinni
og skýrari en sú aðferð sem nú tíðkast, þeg-
ar samsteypustjórnir komast að niðurstöðu
með leynimakki og tryggja síðan fram-
kvæmdirnar með flokksræði.
143