Réttur - 01.10.1970, Blaðsíða 21
Byltingarsinnaðir prestar í kröfugöngu í Brasilíu.
yfir þeim kristnum prestum, sem þora að feta í
þau fótspor hans að fordæma þá ríku og boða fá-
tækum fagnaðarerindið.
Um alla Suður-Ameríku grípur nú uppreisnarólg-
an gegn ameríska auðvaldinu um sig á öllum svið-
um þjóðlífsins. Það hriktir í þeim stoðum, sem
sterkastar hafa verið fyrir hinn volduga kúgara
þjóðanna: Herinn gerist ótryggur og ungir liðsfor-
ingjar gera jafnvel þjóðlegar byltingar. Og í ka-
þólsku kirkjunni ólgar uppreisnin. Prestar og nunn-
ur boða söfnuðunum baráttu gegn arðráni hinna
ríku, Bandarikjadrottnanna og þjóna þeirra. Sá tími
er liðinn, sem Þorsteinn Erlingsson lýsti svo um
aldamótin:
,,Á prestana og trúna vér treystum þó mest,
að tjóðra og reyra ykkur böndum:
því það eru vopnin sem bíta hér bezt,
í böðla og kúgara höndum."
Nú rísa prestar eins og Camillo Torres í Kolum-
bíu eigi aðeins upp til að boða hinum fátæku og
kúguðu fagnaðarerindi frelsisbaráttunnar, heldur
tekur hann sér vopn í hönd gegn böðlunum og
lætur lifið í skæruhernaðinum. Nú skipuleggur
Fragaso biskup landbúnaðarverkamenn í kirkjuleg
samyrkjubú gegn arðræningjunum. Ráðstefnur
klerka í Suður-Ameríku fordæma ..nýlendustefnuna
nýju" og samþykkja jafnvel valdbeitingu gegn
henni. Háttsettur lögregiustjóri í Argentinu kveður
mestu hættuna þar vera hina vinstri sinnuðu presta.
Viða halda bannaðar seliur kommúnista fundi sína
í kirkjunum. Af 13000 prestum Brasilíu eru yfir 2000
róttækir, sumir svo að þeir grípa gjarnan til vél-
byssanna til að framkvæma fagnaðarboðskapinn í
verki. Séra René Garcia, prestur í Kolumbíu, orðaði
það svo: ,,Við verðum sjálfir að gerast frelsarar, og
frelsunin fyrir rómönsku Ameríku er þyltingin".
Erkibiskupinn Helder Cámara kvað þá prestana
157