Réttur - 01.10.1970, Blaðsíða 27
Castro. Che Guevara Kristur (málverk Tizans).
Þrjú átrúnaðargoð ýmissa byltingarsinna i rómönsku Ameríku.
Þeir afturhaldsprestar kaþólsku kirkjunnar í Suð-
ur-Ameríku, eem hóta alþýðunni eilífri útskúfun
annars heims, og þe'r lögreglupyndarar, sem gera
líf þess alþýðufólks, sem upp rís, að helvíti kval-
anna hérnamegin — eru að vinna sama verkið i
þjónustu sömu yfirstéttarinnar í Rió og Wall Street
— og hugmyndaheimur afturhaldsklerkanna verður
þá endurspeglun af ríkisvaldi kúgaranna á jörðinni.
Boðskapur þyltingarprestanna í Brasilíu og ann-
arsstaðar í rómönsku Ameriku verður því i jafn
skerandi mótsetningu við hin opinberu afturhalds-
trúarbrögð, eins og pjáturkofar fátækrahverfanna,
sem milljónir alþýðufólks i rómönsku Ameríku hýr-
ast í, eru við glæsiverzlunarhallir og dýrindis kirkj-
ur Fimmtu traðar (Fifth Avenue) i New York.
Sú uppreisnaralda gegn heimsvaldastefnu auð-
mannastéttanna, sem nú fer um viða veröld lætur
ekki kirkjuna — og sérstaklega ekki kaþólsku kirkj-
una ósnortna. Umræður um marxisma og kristin-
dóm hafa mjög verið háðar af hálfu fylgjenda beggja
viða í Evrópu. Ýmsar breytingar hafa orðið á stefnu
kaþólsku kirkjunnar sakir þessa ástands. Forráða-
menn hennar hafa löngum kunnað að haga sér
nokkuð eftir aðstæðum og reyna það einnig nú, en
íhaldssemin er sterk á þessum slóðum. Kaþólskt
trúarrit í Kolumbíu sagði um uppreisnarprestana:
..Þessir prestar ógna tilverugrundvelli kristilegrar
menningar".
I þeirri kúgunarkeðju imperialismans, sem um-
lykur þriðja heiminn, eru æ fleiri hlekkir að bresta
í rómönsku Ameriku. Og þeir geta auðsjáanlega
brostið á hinn ólíkasta máta — og það væri rangt
að binda sig þar við eina aðferð. Hin æfintýralega
djarfa uppreisn Castros og Che Guevara varð að
sigursælli sósíalistabyltingu á Kúbu. Ef til vill er nú
friðsamleg bylting að takast í Chile. Vera má að
valdataka þjóðlegra liðsforingja í Perú varði veginn
þar til þjóðfrelsis og alþýðuvalda. Við þau öfl
alþýðu og þjóðfrelsissinna, sem þegar eru að verki
bætast nú hinir byltingarsinnuðu kristnu klerkar.
Þeir hræðast það ekki að vera kallaðir kommúnistar
og flokkaðir með skæruliðum, er berjast með nafn
Che Guevara á vörunum. Og ef til vill finnst þess-
um hreinhjörtuðu og trúuðu prestum og nunnum
einhver andlegur skyldleiki milli þess uppreisnar-
manns, sem hervaldsleppar bandarískra heims-
valdasinna myrtu fyrir 12 árum, og hins uppreisnar-
mannsins er krossfestur var af hernámsliði róm-
verskra heimsvaldasinna forðum daga fyrir að æsa
upp lýðinn.
Valdakerfi ameríska imperialismans er haldið
uppi með hervaldi, morðum og mútum — og með
forheimskun fólks. En í stoðum þess brakar meir
og meir. Það nálgast sú stund að kúguð alþýða og
arðrændar þjóðir heims sameinast um að höggva
af sér hlekki þess valds.
163