Réttur - 01.10.1970, Blaðsíða 35
í þessu húsi, Bergstaðastræti 72, er var þá eign Júliuönu Sveinsdóttur listmálara, var K.F.I. stofnaður. Hauk-
ur Björnsson hafði þá húsið á leigu og var í þvi stór vinnustofa málara.
1942 — lífskjarabyltingin — ávöxturinn af því að
nú stóð verkalýðurinn á eigin fótum og gat boðið
sameinaðri Framsókn og ihaldi byrginn, — og
þarmeð brotnaði um leið valdakerfi Jónasar frá
Hriflu.
Það urðu hinsvegar hin sorglegu örlög Alþýðu-
flokksins að geta aldrei orðið virkilega sjálfstæður
verklýðsflokkur. Þegar hann loks var búinn að fá
sig fullsaddann á vistinni hjá Framsókn, álpaðist
hann til Ihaldsins og situr þar fastur síðan sem
vel alinn, feitur þjónn. Hægri foringjarnir — sem
sumir voru ,,vinstri“ áður — halda honum þar
föstum,*) hvað sem verkalýðssinnar í Alþýðu-
flokknum segja.
En óháður Framsókn og Ihaldi, hélt Sósíalista-
flokkurinn áfram baráttunni fyrir verklýðsforystu í
vinstri hreyfingu og þé baráttu heyr Alþýðubanda-
lagið nú sem flokkur islenzkra sósíalista.
MARXISTÍSK FORUSTA
í VERKLÝÐSHREYFINGU
Til þess að leiða verkalýðinn og þarmeð aðr-
ar vinnandi stéttir til sigurs í frelsisbaráttu þeirra,
var nauðsynlegt að verklýðshreyfingin, einkum hin
*) Svo föstum hefur honum nú verið hald-
ið þar, að samkvæmt eigin orðum Alþýðuflokks-
manns á Alþýðuflokksfundi fá kjósendur nú eigi
lengur séð mun á þeim stjórnarflokkunum tveim, —
°g afleiðingar þessarar undirgefni eru að íhaldið
er orðið Alþýðuflokknum jafnsterkt eða sterkara
á sjálfu Alþýðusambandsþingi, meðfram af þeim
ástæðum sem annar gamall Alþýðuflokksmaður
orðaði svo, að hann kynni betur við sig á höf-
oðbólinu en hjáleigunni. — Eins skal hér á það
minnt, til þess að sýna sanngirni þeim leiðtog-
um Alþýðuflokksins, er við kommúnistarnir
deildum við, að þá ábyrgðartilfinningu sýndu þeir
þó gagnvart verklýðshreyfingunni að Haraldur
Guðmundsson fór úr rikisstjórn 1938 frekar en
samþykkja gerðardóm á sjómenn, og Stefán Jó-
hann fór úr þjóðstjórn 1942 vegna gerðardómslaga
og var ekki með í ríkisstjórn afturhaldsins 1950
vegna gengislækkana, en núverandi ráðherra-
leiðtogar Alþýðuflokksins gleypa alla gerðardóma
og gengislækkanir með beztu lyst og sitja sem
fastast.
171