Réttur


Réttur - 01.10.1970, Blaðsíða 30

Réttur - 01.10.1970, Blaðsíða 30
leika alla. Þetta et ung vísii.dagrein sem á eftir að taka út þroska. Nú virðist rofa til fyr- ir henni eftir nokkurn tíma, þegar að mestu var staðið í stað. Fyrir því sjá ný reikni-tæki og nýjar aðferðir, sem hægt er að beita á hin margbrotnu tengsl sem ríkja í náttúrunni. En það verður að flýta fyrir þróun greiiar- innar með bættum vinnuskilyrðum og að- stöðu. Það verður að gera hana sem fyrst að stórverkefni mannsins eigi vel að fara. MÁTTUR MANNSINS — AFLEIÐING Er rýnt er í sögu samskipta mannsins við þá náttúru sem hann er sjálfur bundinn órofa böndum, verður fljótlega ljóst, að framkoma hans hefur alla tíð mótazt af drottnunargirnd og óljósri trú á endalausa möguleika. Og enn í dag líta þjóðfélög vor á þá menn, sem mestu velunnara sína, er sjá um að veita sem mestu af eyðandi efnum út í umhverfið. Fram- leiðsluaukning iðnaðar þýðir raunar, að meira verður af eyðandi úrgangsefnum sem spilla umhverfinu, vatni og lofti og skapa þá ökó- lógísku kreppu, sem stöðugt segir meira til sín. Þetta gerist á sama tíma og gróðri er eytt, lífverum sem veita súrefni í andrúms- loftið. Enn er talað afar gáleysislega um jafnvægi náttúrunnar og sýnir það, a'Ö skiln- ingur á raunverulegnm vanda á langt í land. íslenzkar umræður um framkvæmdir og áætl- anir þeirra eru engin undantekning þar á. Hér verður tíðrætt um þá mengun, sem stafar af iðjuverum og nú er einnig orðin brýnt íslenzkt vandamál og aldrei verður of snemma skilið alvarlega af valdhöfum og stjórnendum. En nauðsynlegt er að dvelja við fleiri dæmigerð einkenni á samskipum manns og náttúru til þessa. Beitarþol lands má kanna, en sé því ofgert er afleiðingin gróður- eyðing og síðan uppblástur, þar sem gróður- inn bindur jarðveginn og heldur í honum 166 raka. í hitabeltinu er þetta áþreifanlegt og náttúrujafnvægi þar mjög viðkvæmt. Naut- griparækt á savannasléttum er harla vafasöm aðallega vegna þess, að þeir nýta aðeins á- kveðnar grastegundir sér til framfæris og breyta því samsetningu flórunnar og veikja styrk hennar. Auk þess þola þeir illa flúor, sem þarna er í vatni og cece fluguna og þá svefnsýki sem hún á þátt í að útbreiða. Líf- fræðingar, sem þetta hafa kannað, leggja því til, að hér fái villt líf að haldast, enda eru opnir möguleikar fyrir manninn að nýta það. Dýr, sem hér eiga sitt eðlilega umhverfi, eru ónæm fyrir sóttum er granda öðrum. Þau þola flúorinn; loks er vert að benda sérstak- lega á, að þau nýta beitargróðurinn betur, þar sem svo að segja hver tegund hefur kom- izt upp með að helga sér ákveðinn hluta hans fyrir tilstilli langrar þróunar. Fróðlegt er að athuga hvað gerist, er land er brotið til akuryrkju eða ræktunar. Þá er einni tegund jurta veitt forréttindi fram yfir aðrar í skjóli tæknikunnáttu. Um leið og þetta er gert er stóraukin hætta á útbreiðslu eyðileggjandi skordýra og sjúkdóma. Þetta gerist vegna þess, að jafnvægi raskast og ó- eðlilega góð skilyrði verða til staðar fyrir þá skaðvalda, sem binda trúss sitt við umræddar nytjaplöntur. Einnig hefur náttúrulegum ó- vinum verið rutt úr vegi. Til að vega upp á móti þessu notar maðurinn eiturefni en afleið- ingum þessa hefur áður verið lýst. Um áhrif stíflugarða og breytinga á vatna- kerfi svæðis er tímabært að ræða. Allar lang- vinnar breytingar á yfirborðsvatnshæð eru af- drifaríkar, því að meginið af því lífi, sem í vatninu þrífst, er einhvern tíma á lífsferlin- um tengt eða háð fjöruborðinu eða grunn- vatni, þar sem skilyrði eru sérstaklega góð m.a. mikið magn næringarefna og súrefnis. Verði þessu breytt við snögg umskipti kann það að þýða keðjubreytingar á öllu lífi í vatn- J

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.