Réttur - 01.10.1970, Page 34
EINAR OLGEIRSSON:
STRAUMHVÖRF
SEM K.F.Í. OLLI
Þa5 eru nú liðin 40 ár síðan Kommúnista-
flokkur Islands (K.F.I.) var stofnaður þann 29.
nóv. til 3. des. 1930. Stefna og starf þess flokks
olli straumhvörfum I íslenzkum stjórnmálum. Það
er þjóðinni holt og sérstaklega öilum þeim nauð-
syn, sem I sósíalistískri verkalýðshreyfingu starfa,
að kynna sér þau straumhvörf á hinum ýmsu svið-
um íslenzks þjóðlífs.
VERKALÝÐSFORUSTA
í VINSTRI HREYFINGU
Kommúnistarnir í Alþýðuflokknum og siðan K.F.I.
boðuðu það að verkalýðurinn yrði að verða sjálf-
stætt stjórnmálaafl, er tæki forustuna fyrir öðrum
vinnandi stéttum í markvissri baráttu fyrir sósialist-
ísku þjóðfélagi. I baráttunni fyrir að gera verklýðn-
um þetta forystuhlutverk hans Ijóst, skarst I odda
jafnt við vald Framsóknarflokksins og áhrif for-
ystumanna hans, fyrst og fremst Jónasar frá
Hriflu, á forustuna I Alþýðuflokknum, sem og
við sósialdemókratana sjálfa.
Jónas frá Hriflu hafði í ríkum mæli haft hönd
í bagga við stofnun Alþýðuflokksins 1916 og hafði
í tímamótagrein sinni „Nýr landsmálagrundvöllur"
I Rétti 1918 markað Alþýðuflokknum þann þrönga
bás smávægilegra umbóta, sem hann hugðist halda
flokknum á. Jónas gerði þar sjálfur grein fyrir því
að fyrir „milliflokkinn" sem sé Framsókn, væri
nauðsyn á því að skipuleggja verkamenn á sósíal-
istískum flokksgrundvelli, til þess að hindra að
ihaldið í bæjunum næði tökum á verkamönnum
ósamtaka og óþroskuðum. En jafnhliða var mein-
ingin að hafa slikan „hemil" á þessum verka-
mannaflokki að hagnýta mætti hann i átökunum
við burgeisastétt bæjanna, en hindra sjálfstæða
pólitik hans. Tök Jónasar á Alþýðuflokknum voru
leið að því marki.
Barátta kommúnistanna, stofnun K.F.I. og stefna
þess síðan var þvi að einu leyti einskonar flokks-
leg sjálfstæðisbarátta verklýðsstéttarinnar, upp-
reisn gegn yfirdrottnun Framsóknar yfir Alþýðu-
flokknum og þarmeð þeim borgaralegu áhrifum,
sem fram komu í afstöðu sósialdemókratísku for-
ingjanna. Og þessi uppreisn tókst og bar árang-
ur. Og hún endurtók sig síðan í Alþýðuflokknum
1938, þegar vinstri armur hans reis upp og tók
höndum saman við Kommúnistaflokkinn um mynd-
un Sósíalistaflokksins. Það er engin tilviljun að
bók sú, sem er reikningsskil Héðins Valdimars-
sonar við hægrimennskuna I Alþýðuflokknum, ber
nafnið: „Skuldaskil Jónasar Jónssonar við sósíal-
ismann". Jónas frá Hriflu var I krafti síns mikla
persónuleika og þess valds, er Framsókn var,
hinn sterki maður á bak við afsláttarstefnu hægri
Alþýðuflokksforingjanna. *)
Þessvegna var sameiningin 1938 sigur barátt-
unnar fyrir sjálfstæðri verklýðsstétt og sigurinn
*) Ég hef reynt að skilgreina þessa þróun I
grein í Rétti 1939, er heitir „Valdakerfið á Islandi
1927—39", og er 4. kaflinn þar i sérstaklega um
alla þessa baráttu og heitir „Viðureignin við
verkalýðinn. Alþýðuflokkurinn gerður að annexiu i
Framsókn." Hlutverk Jónasar sem valdsmanns I ís-
lenzku stjórnmálalífi er og nokkuð skilgreint
þarna, hinsvegar ekki hinn mikli og merkilegi
þáttur hans sem brautryðjanda í alþýðuhreyfingum
1911—27.
170