Réttur - 01.10.1970, Side 43
INNLEND SljB ■
VIÐSJÁ
barizt um kjör
LAUNAFÖLKS
Eins og við mátti búast hefur ríkisstjórnin
enn ráðizt að kjörum launafólks, enda er það
stefna hennar að níðast á launafólki og sam-
tökum þess. Enda þótt samið hafi verið um
verðtryggingu launa í sumar hefur sambandi
launa og verðlags nú nánast verið rift. I síð-
asta hefti Réttar gerði undirritaður stefnu
stjórnarinnar að þessu leyti nokkuð að umtals-
efni og vísast til þess hér.
efnahagsráð-
STAFANIR RlKIS-
STJÓRNARINNAR
Efnahagsráðstafanirnar eru fólgnar í því
að ríkisstjórnin ætlar að eyða þeim 6,2 vísi-
tölustigum sem gjaldfalla áttu 1. desember
samkvæmt framfærsluvísitölunni 1. nóvem-
ber. Þessi eyðing vísitölustiga felst í því að
ríkisstjórnin greiðir niður verðlag á landbún-
aðarafurðum, hækkár fjölskyldubætur og síð-
an á launafólk að borga afganginn af þess-
um vísitölustigum: Með því í fyrsta lagi að
fella niður tvö vísitölustig og í öðru lagi með
því að hækkunum á áfengi, tóbaki og iðgjöld-
um almannatrygginga er kippt út úr vísitölu-
grundvellinum, en á grundvelli hans var sam-
ið í vor.
Þessi 6,2 vísitölustig sem hér er um að
ræða áttu auðvitað að koma fram í hækkuðum
launum til launafólks, en ríkisstjórnin losar
sem sé atvinnurekendur við þessi útgjöld sem
hefðu samsvarað 1500 miljónum króná. Þó
verða atvinnurekendur að greiða hækkaðan
launaskatt um \ Vi% þannig að í raun sleppa
þeir við sem svarar 1200—1300 miljónum
króna. Þær aukabyrðar sem launafólk verður
að taka á sig samsvara hins vegar rúmum 700
miljónum króna miðað við ár í skerðingu
launa vegna hinna þriggja vísitölustiga. Síð-
an kemur það fram í greinargerð með frum-
varpi ríkisstjómarinnar að hún ætlar ekki að
bæta verðhækkanir sem verða kunna á tíma-
bilinu til 31. ágúst með kauphækkunum held-
ur með niðurgreiðslum eftir að hækkanirnar
hafa verið reiknaðar út á venjulegum útreikn-
ingstímum framfærsluvísitölunnar.
Stjórnarfrumvarp þetta var samþykkt 18.
nóv. með atkvæðum stjórnarsinna gegn at-
kvæðum stjórnarandstæðinga.
Aðaltalsmenn Alþýðubandalagsins í neðri
deild, þegar rætt var um frumvarpið,
vom þeir Lúðvík Jósepsson og Eðvarð Sig-
urðsson.
Þegar viðreisnarstjórnin hóf feril sinn setti
hún sér það mark að takmarka niðurgreiðslur
og uppbætur. Henni hefur tekizt þetta ætl-
unarverk sitt þannig að nú eru til dæmis nið-
urgreiðslur á smjöri áætlaðar yfir 200 milj-
ónir kr. Smjörkíló kostar í búðum í Reykja-
vík 130 krónur, en þá hefur verið niðurgreitt
sem svarar 204 krónur á kíló! Sýnir þetta
litla dæmi hvernig niðurgreiðsluvitleysan er
komin út í algerar ógöngur.
179