Réttur - 01.04.1979, Blaðsíða 5
Togaraútgerðin Reykjavík.
fara fram úttekt á fjárhagsstöðu borgar-
sjóðs og 4. júlí fól borgarráð Olafi Nils-
syni endurskoðanda stjórn þeirrar út-
tektar. Hann skilaði ýtarlegri skýrslu í
byrjun september.
Fyrir þá, sem voru að taka við stjórn
borgarinnar, var brýnast að fá upplýst
hvernig borgarsjóður gæti á næstunni
mætt þeirn greiðslum, sem á hann mundu
falla. Greinargerð Ólafs gaf það svar, að
handbært fé, eða það sem bókhaldsmenn
kalla kvika veltul jármuni, væru 112
milljónir, en skuldir sem greiða þyrfti
innan skamms tíma væru 2.340 milljón-
ir. Um það bil y3 þessara skannntíma-
skulda eða 1.517 milljónir voru ógreidd-
ir en gjaldfallnir reikningar og gjaldfall-
in laun og launatengd gjöld. Þess háttar
vandræðaskuldir voru (340 milljónir í
byrjun ársins og höfðu því hækkað um
877 milljónir á fyrstu sex mánuðum árs-
ins. Það er því tæpast hægt að halda því
fram, að Sjálfstæðismenn liafi gætt búsins
vel á síðustu búskaparmánuðum sínum í
Reykjavík.
í júlímánuði bætist lítið í sjóð borgar-
85