Réttur


Réttur - 01.04.1979, Qupperneq 10

Réttur - 01.04.1979, Qupperneq 10
Björn Þorsteinsson: Börn þriðja heimsins á barnaári Miljónir barna í þróunarlöndunum deyja árlega úr hungri og vannæringu án þess að mikið sé að gert eða bumbur barðar. Aðrar miljónir deyja úr allskyns sjúkdómum, sem herja vægðarlaust þar sem ástandið er verst. Ennþá fleiri börn eru dæmd til að lifa í eymd og volæði vegna sköddunar, bæði andlegrar og líkamlegrar, sem þau urðu fyrir í barnæsku. Þegar Sameinuðu þjóðirnar ákváðu að tileinka börnum heimsins árið 1979 var það ekki síst vegna þessara ömurlegn staðreynda. Alþjóðaár barnsins er haldið á 20 ára af'mæli yfirlýsingarinnar um réttindi barnsins. Þann 20. nóv. 1959 samþykkti Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna með öllum greiddum atkvæð- um þessa yfirlýsingu með tilvísun til Mannréttindayfirlýsingar SÞ frá 1948. Yfirlýsingin um réttindi barnsins er sett saman úr formála og tíu stuttum grein- um, sem að hluta er endurtekning á greinum úr Mannréttindayfirlýsingunni um almenn mannréttindi og að hluta er sérstaklega bent á sérþarfir barna s.s. umönnun og öryggi. Það sem vekur mesta athygli er að meirihluti greinanna ljallar um rétt barnsins til lélagslegs ör- yggis m.a. á þeim svæðum, sem nefnd voru hér í upphafi. Og að þessi réttur verði aðeins tryggður í raun í samfélagi, þar sem hin félagslega- og eliiahagslega þróun hefur náð ákveðnu marki. Þegar Allsherjarþingið ákvað árið 1976 að þetta ár skyldi verða Alþjóðaár barnsins, var sérstaklega bent á samheng- ið við hin almennu vandamál þróunar- landanna. Þetta ár á þó ekki eingöngu að snúast um börnin í þróunarlöndun- um. Kjör barnanna í ríku löndunum eru líka til umræðu. En Alþjóðaár barnsins mistekt hrapallega ef fátæku börnin í fátæku löndunum gleymast. Börnin sem aldrei fá tækifæri að ná því minnsta, sem liver einasta manneskja á kröfu á, þ. e. 90

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.