Réttur - 01.04.1979, Side 28
fólkinu og kaupinu af verkalýðnum. -
Almenningur er farinn að sjá í gegnum
svikamylluna og minnka sparifjármynd-
unina og verkalýðurinn svaraði svo kröft-
nglega í kosningunum 1978 að nú voru
ný ráð dýr, nýjar arðránsaðferðir - eða
máske réttara sagt, það verður að reyna
liinar gömlu. Og ef það á að takast, — en
viðhalda samt öllu þeirra gamla afætu-
bákni og illu skipulagningu, - þá verður
nú að láta verkalýðnum blæða bæði með
atvinnuleysi og kaupkúgun. Og það er
það, sem klíkan ætlar að reyna.
Nú bætist ofan á allan þennan áróður
hin sérstaka hagnýting afturhaldsins á
olíuhækkuninni miklu: Annarsvegar
reynir hún að nota þessa hækkun til þess
að slíta viðskiptasamböndunum við Sov-
étríkin, lætur blöð sín ekki linna látum
í blekkingaráróðri sínum, til þess að gera
Island að nýju háð verstu gróðahringum
heims. Hinsvegar reynir svo afturhaldið
auðvitað að koma í veg fyrir að braskara-
valdinu á íslandi verði látið blæða, er
viðskiptakjörin versna. Það á að halda
allri sinni óreiðu, jafnvel græða meir á
henni en nokkru sinni fyr, eins og „syst-
urnar sjö“, olíuhringirnir miklu, sem
aldrei hafa grætt önnur eins ósköp eins
og síðan Arabarnir byrjuðu að hækka olí-
una 1973.
II.
Hótunin um allsherjarverkbann aí
hálfu VSI-klíkunnar er þjóðfélagslegt og
sálfræðilegt rannsóknarefni. Það er
greinilegt að ný kynslóð er heldur sig
„kapítalista", er að taka þarna við af þeim
gömlu, sem eitthvað höfðu þó lært al
lífinu og þekktu íslenska þjóðfélagshætti.
í fyrsta lagi ber þessi hótun mark um
hroka piltanna, sem fæddir eru með silf-
urskeiðina í munninum og finnst sjálf-
sagt að þeir ráði, — alþýðan eigi að þræla
fyrir þá, - ríki og bankar skuli þjóna
þeim. - og ef sýnt er fram á gagnsleysi
þeirra fyrir þjóðfélagið, hroka þeirra og
hæfileikaskort til aðstjórna íslensku efna-
hagslífi, — sannað hvílík byrði þeir og
allt þeirra hafurtask — með örfáum und-
antekningum - séu þjóðfélaginu, — þá
skuli slíkir úthrópaðir í leigujiressu
þeirra, kostaðri af hermangsgróða,
skattsvikum, gjaldeyrissvikum og hvers-
konar öðru arðráni, ef þeim þá ekki tekst
að gera hana að gróðafyrirtækjum með
skattfrjálsum auglýsingum sjálfra sín.
Það grunar marga að Ihaldinu hafi ver-
ið ósárt um 2 mánaða stöðvun farskip-
anna, ef hún aðeins gæti orðið stjórninni
að falli. Miljarðatap fyrir atvinnu-
reksturinn, starfsmenn og þjóðarbúið
- hvað munar þessa háu herra um það.
Þeir heimta bara að þjóðin borgi, — alveg
eins og nú, er þeir 25. júní undirrita
samninga um 3% grunnkaupshækkun -
og heimta að allt fari út í verðlagið! -
Það ergamalt merki um að sú herra-stétt,
sem ekkert getur lært og engu gleymt, sé
feig.
í öðru lagi ber þessi allsherjar-vérk-
bannshótun vott um andlegan tómleika
hinna söddu, sem ekki hafa unnið fyrir
velmegun sinni í krafti verka sinna, „í
sveita síns andlitis". Afstaða þeirra og
hagfræðinga þeirra einkennist af skorti
beirra á sjálfstæði og vilja til að hugsa
fyrir sitt eigið land út frá sérstöðu þess,
- og taka því ómeltar framandi kénning-
ar, sem alls ekki eiga við hér, en eru bún-
ar til sem andlegar ránsklær af hag-
fræðingum þeirra auðhringa, er hremma
vilia sem mestan hluta heimsauðsins und-
ir sig.
108