Réttur - 01.04.1979, Qupperneq 32
Frægasta bók Ágústs Bebels:
„Konan og
sósíalisminna
100 ára
Á þessu ári eru liðin 100 ár síöan sú bók Ágústs Bebels, sem frægust og útbreidd-
ust hefur orðið af öllum hans ritum: „Konan og sósíalisminn" kom út. Það var á árum
bannsins á sósíalistaflokknum — og hún var miklu minni en síðar. En hún varð, næst
Kommúnistaávarpinu, víðlesnasta bók, er bar boðskap sósíalismans út um heiminn
og vakti þúsundir til umhugsunar og baráttu fyrir frelsi konunnar og verkamannsins.
Bókin var rituð í fangelsi — eins og
margar aðrar bækur sósíalista á þeim
tíma — því Bebel var árinu áður að af-
plána þriggja ára fangelsisdóm. Hún var
gefin út í Sviss, smyglað inn í Þýska-
land. Síðan eftir að ,,sósíalistalögin“
voru afnumin 1890 og flokkurinn gat
starfað opinberlega, bætti Bebel við bók-
ina, gerði hana að þeirri sígildu bók um
þetta efni, sem hún nú er. Nú hefur hún
verið þýdd á 24 tungumál, hafði þegar
verið þýdd á 15, er Bebel dó 1913, og
50 útgáfur komið út af henni í Þýskalandi
1909.
í „Rétti“ 1975 — á „kvennaárinu —
var sagt nokkuð frá þessari bók1) og jafn-
framt rakin nokkuð framlög þeirra
tveggja kvenna í Þýskalandi sem héldu
áfram merki hans og sönnuðu staðhæf-
ingar lians um að konur væri jafnfærar
karlmönnum til að stjórna. Þessar tvær
konur voru Rúsa Luxemburg, sem í raun
sannaði forustuhæfileika kvenna í stjórn-
málum, — hún var raunverulega við hlið-
ina á Gramsci hesti sósíalistaforingi Vest-
ur-Evrópu, er Lenin leið, - og Clara
Zetkin, einhver hesti leiðtogi þýska
kommúnistaflokksins og um leið sú, sem
112