Réttur - 01.04.1979, Page 43
6. Rannsóknir
Rannsóknarstarfsemi er nokkur, t.d. er
unnið að gerð nýrra anóða úr keramiki,
sem eyðast ekki upp við rafgreiningu
súrálsins eins og kolefnisanóðurnar sem
nú eru notaðar.13 Nýlega gerði Alusuisse
samkomulag við stærsta bjórframleiðanda
Bandaríkjanna, Anheuser-Busch, um að-
gang þess síðarnefnda að nýjustu tækni
við framleiðslu álþynna í bjórdósir.10
Stærð og umsvif
Alusiusse
Árið 1977 var heildarvelta Alusuisse
um 2273 milljónir dollara, starfsmanna-
fjöldi sama ár var um 36 þúsund.17 1975
var fjöldi dótturfyrirtækja meiri en 160
í nálægt 30 löndum.18 \7elta Alusuisse var
það ár um þriðjungi meiri en brúttó-
þjóðarframleiðsla Islendinga.
Markmið op; starfshættir
o
„Alusuisse vill verða arðvænlegt og
traust fyrirtæki. Til að ná því marki
hefur Alusuisse í mörg ár fylgt stefnu
sem felst í markvissri útþenslu ásamt
samræmingu og fjölþættingu (diversi-
fication)".6
Árið 1974 tók Alusuisse yfir efnaiðn-
aðarfyrirtækið Lonza AG.10 I}að var liður
i að styrkja efnaiðnaðardeild Alusuisse,
og varð sú raunin. Lonza átti í Sviss
ljölda orkuvera og fyrirtækja í efnaiðn-
aði og hafði sterka stöðu erlendis.18
Verkfræðideildin var styrkt með því