Fréttablaðið - 20.03.2009, Qupperneq 8
8 20. mars 2009 FÖSTUDAGUR
ÍS
LE
N
SK
A
SI
A.
IS
M
SA
4
53
50
0
3/
09
á 1 lítra
Kókómjólk
Gott
á brúsann!
FUNHEITT TILBOÐ
Stilling hf. • Sími 520 8000 • www.stilling.is • stilling@stilling.is
Hemlar
VIÐSKIPTI Lækkunarferli stýrivaxta
Seðlabanka Íslands hófst í gær með
því að vextir voru færðir niður um
100 punkta, í 17 prósent. Lækkun-
in er kynnt sem varfærið fyrsta
skref í lækkunarferli, en boðaður
var aukavaxtaákvörðunardagur
8. apríl. Verðbólga hefur hjaðnað
hraðar en Seðlabankinn hafði spáð,
frá hámarki í janúar.
Vaxtaákvörðunin nú er sú fyrsta
eftir að lögum um Seðlabankann
var breytt fyrr á árinu og stofn-
uð peningastefnunefnd til að taka
ákvarðanir í peningamálum. Arnór
Sighvatsson aðstoðarbankastjóri og
Svein Harald Øygard, aðalbanka-
stjóri Seðlabankans, auk Þórar-
ins G. Péturssonar aðalhagfræð-
ings kynntu ákvörðunina á fundi í
Seðlabankanum í gær.
Í rökstuðningi peningastefnu-
nefndar kemur fram að hagvísar
bendi til þess að skilyrði séu til þess
að draga úr peningalegu aðhaldi.
Edda Rós Karlsdóttir, hagfræðing-
ur Landsbankans, benti á fundinum
á að vegna verðbólguþróunar væri
með ákvörðuninni ekki í raun dreg-
ið úr aðhaldinu þar sem raunvaxta-
stig væri hér enn hátt. Svein Har-
ald Øygard seðlabankastjóri kvað
hins vegar ljóst í hvaða átt bankinn
stefndi, þótt ekki vildi hann geta
sér til um hversu mikillar vaxta-
lækkunnar væri að vænta í apríl.
„Það er peningastefnunefndarinn-
ar að taka þá ákvörðun og ekki við
hæfi að taka fram fyrir hendurnar
á henni með yfirlýsingum þar um,“
sagði hann.
Seðlabankinn leggur jafn-
framt áherslu á mikilvægi þess að
halda gengi krónunnar stöðugu, í
ljósi þess hve efnahagur heimila,
fyrirtækja og banka sé viðkvæm-
ur gagnvart gengissveiflum. Fyrir
vikið sé óhjákvæmilegt að peninga-
legt aðhald sé meira en annars
væri viðeigandi. Arnór Sighvats-
son bendir á að ákvarðanir bank-
ans séu teknar með það í huga að
höftum verði létt. „Peningastefnu-
nefndin hefur ákveðið að stíga
varlega til jarðar. Við viljum sjá
og endurmeta eftir hverja ákvörð-
un hvaða áhrif hún hefur á gjald-
eyrismarkaðinn og krónuna. Í ljósi
þess tökum við svo næstu skref,“
segir hann, en ekki sé ekki hægt að
segja nákvæmlega til um hvenær í
ferlinu verði hægt að hefja afnám
haftanna.
Peningastefnunefndin bendir á
að á næstu mánuðum verði mikil-
væg skref stigin í endurskipulagn-
ingu fjármálakerfisins. Að henni
lokinni, og hafi dregið úr óvissu
og virkni fjármálamarkaða aukist,
geti peningastefnan í auknum mæli
stutt við efnahagsbata. Áréttað er
að allar ákvarðanir þurfi að taka
með það fyrir augum að „fjárhags-
legt tap einkaaðila í kjölfar fjár-
málakreppunnar falli ekki á hið
opinbera umfram það sem þegar
er orðið“. olikr@markadurinn.is
RÉTT FYRIR FUND Ingólfur Bender, forstöðumaður Greiningar Íslandsbanka, tekur tali
Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóra og Svein Harald Øygard seðlabanka-
stjóra rétt fyrir kynningarfund vegna stýrivaxtaákvörðunar í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Varfærin fyrsta
stýrivaxtalækkun
Stýrivextir Seðlabankans voru í gær lækkaðir um eitt prósentustig, úr 18 pró-
sentum í 17 prósent. Lækkunarferli er hafið. Aukavaxtaákvörðunardagur verð-
ur í byrjun apríl. Dregið verður úr peningalegu aðhaldi, segir seðlabankastjóri.
Lækkun stýri-
vaxta um eitt
prósentustig, í
17 prósent, er
ótrúlega lítil,
segir Vilhjálmur
Egilsson,
framkvæmda-
stjóri Samtaka
atvinnulífsins
(SA). Vilhjálmur
segir að lækka
hefði átt stýrivextina í 10 prósent.
Svo lítil lækkun nú geri ekki annað
en reka fólk inn á atvinnuleysis-
skrá.
„Ég skil ekki hvers vegna verið
var að búa til nýjar aðferðir við
að ákveða vextina, ef gamla
módelið ræður enn ríkjum,“ segir
Vilhjálmur. Miðað við tíðindi gær-
dagsins segist hann ekki vongóður
á frekari vaxtalækkanir á næst-
unni. Háir stýrivextir hafi þegar
valdið miklum skaða. - bj
Vextir ættu að
vera 10 prósent
VILHJÁLMUR
EGILSSON
Þótt það sé
í sjálfu sér
ánægjulegt að
vaxtalækkunar-
ferli Seðlabank-
ans sé komið
í gang áttu
sérfræðingar
Alþýðusam-
bandsins von
á meiri lækkun
strax í upphafi,
segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti
ASÍ.
Lækka hefði átt vextina strax
um í kringum þrjú prósent, og svo
lækka áfram í þéttum skrefum,
segir Gylfi. Hann segir að ASÍ leggi
gríðarlega áherslu á að stýrivextir
lækki hratt áður en algert eigna-
hrun verður hjá heimilum og
fyrirtækjum. Verðbólgan sé ekki
áhyggjuefni á næstu mánuðum,
spár bendi til þess að hún muni
lækka hratt. - bj
Bjóst við stærra
skrefi í upphafi
GYLFI ARN-
BJÖRNSSON
„Það jákvæða
við aðgerðir
Seðlabankans
er að þeir hafa
hafið vaxtalækk-
unarferlið,“ segir
Finnur Oddsson,
framkvæmda-
stjóri Viðskipta-
ráðs Íslands.
„Hins vegar mun
þessi vaxtalækk-
un ekki skipta neinum sköpum
fyrir heilsufar fyrirtækja og heimila
og því vonbrigði að ekki hafi verið
tekið stærra skref.“
Finnur vonast til að hafið sé
hratt vaxtalækkunarferli. „Í þeim
efnum er eðlilegt að bæta við
vaxtaákvörðunardögum, eins og
Seðlabankinn hefur reyndar þegar
gert og ættu þeir að vera tíðari
áfram,“ segir hann því annars hægi
ekki nægilega á óheillaþróun og
gjaldþrotahrinu. - óká
FINNUR
ODDSSON
Vonbrigði hvað
lækkun var lítil
1 Fyrir hvaða franska stjórn-
málaflokk býður Eva Joly sig
fram til Evrópuþingsins?
2 Hvaða fisk veiða Íslendingar
nú af miklum móð við mikla
andstöðu Norðmanna?
3 Hver var markahæstur ís-
lensku leikmannanna í Skopje?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 42
SKIPULAGSMÁL Kristín Einarsdóttir, aðstoðar-
sviðsstjóri framkvæmda- og eignasviðs Reykja-
víkur, segir vatnstank á Hallsteinshöfða í Graf-
arvogi hafa verið rifinn vegna slysahættu.
Kristín segir að í fyrsta lagi hafi börn getað
fallið fram af tankinum. Þá hafi ítrekað verið
brotist inn í tankinn, jafnvel þótt dyr hans væru
logsoðnar aftur. Þar inni hafi fundist sprautu-
nálar.
„Okkur sýndist að þarna inni gæti ýmislegt
misjafnt farið fram,“ segir Kristín sem kveð-
ur markvisst hafa verið unnið að því að tankur-
inn yrði fjarlægður eftir að kvartanirnar tóku
að berast. „Enda blasti ekki annað við en að
við værum alltaf að sjóða hurðina fasta og hún
væri svo jafnharðan brotin upp aftur.“
Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær
telur Dofri Hermannsson, fulltrúi Samfylk-
ingar í hverfisráði Grafarvogs, að Ólafur F.
Magnússon, þáverandi borgarstjóri, hafi lofað
því á íbúafundi í apríl 2008 að láta útbúa útsýn-
ispall ofan á tankinum eins og íbúar hverfis-
ins vildu. Þetta segist Kristín hafa kannað á
skrifstofu borgarstjóra og fengið þau svör að
borgarstjórinn hafi eingöngu sagt á fundinum
að útbúa ætti fallegan útsýnisstað með bekk
við listaverk Hallsteins Sigurðssonar þar á
hæðinni.
Í bókun hverfisráðs Grafarvogs frá í fyrra-
kvöld segir að það hafi fengið loforð um að
tankurinn yrði ekki rifinn og að bygging útsýn-
ispalls yrði útfærð í nánu samráði við hverf-
isráðið. „Á sama tíma og í orði kveðnu átti að
fara fram samráð um þessa framkvæmd var
í raun verið að undirbúa niðurrif tanksins,“
segir ráðið. - gar
Eignasvið borgarinnar segir öryggi barna hafa ráðið örlögum gamals vatnstanks:
Tankurinn var slysagildra sem þurfti að víkja
TANKURINN SEM HVARF Haustið 2007 voru fjarlægðir
úr vatnstankinum á Hallsteinshöfða alls kyns hlutir
sem óviðkomandi maður hafði komið þar fyrir í
geymslu.
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
VEISTU SVARIÐ?