Fréttablaðið - 20.03.2009, Page 12

Fréttablaðið - 20.03.2009, Page 12
 20. mars 2009 FÖSTUDAGUR Taktu þátt í að móta framtíðina Nánari upplýsingar um fundina og félagsstarf Sjálfstæðisflokksins má finna á heimasíðu flokksins, www.xd.is, eða í síma 515 1700. Endurreisn atvinnulífsins - útgáfa bókarinnar Í tilefni af útgáfu bókarinnar býður Sjálfstæðisflokkurinn til útgáfuteitis í Valhöll í dag, föstudaginn 20. mars kl. 17. Allir þeir sem vilja kynna sér tillögur Endurreisnarnefndar Sjálfstæðisflokksins eru hvattir til þess að mæta. Endurreisnarnefnd Sjálfstæðisflokksins Endurreisnarnefnd Sjálfstæðisflokksins hefur á undanförnum vikum mótað tillögur og hugmyndir um uppbyggingu íslensks efnahagslífs. Mörg hundruð sjálfstæðismenn hafa sett sitt mark á tillögurnar og komið að vinnslu bókar sem geymir þessar hugmyndir. Landsfundur Sjálfstæðisflokksins mun svo taka afstöðu til þessara hugmynda og sjálfstæðismenn nota hana sem vegvísi í endurreisninni sem framundan er. AUSTURRÍKI, AP Kviðdómur sakfelldi í gær Josef Fritzl fyrir barnsmorð, að hneppa manneskju í þrældóm, sifjaspell, ítrekaða nauðgun og fleiri brot. Á grundvelli sakfell- ingarinnar var hann dæmdur af dómstól í Sankt Pölten í Austur- ríki til lífstíðarvistunar á réttar- geðdeild fyrir að hafa haldið dótt- ur sinni fanginni í 24 ár og getið með henni sjö börn. Fritzl, sem er 73 ára að aldri, sat hljóður og niðurlútur þegar dóm- urinn var kveðinn upp. Að dóms- uppkvaðningu lokinni tjáði hann réttinum að hann sætti sig við úrskurðinn og gaf frá sér réttinn til áfrýjunar. Þar með var endi bundinn á eitthvert umtalaðasta sakamál sem upp hefur komið í Evrópu á síðari árum. Franz Cutka, talsmaður dóm- stólsins, sagði að Fritzl yrði vist- aður á deild fyrir geðtruflaða afbrotamenn. Barnsmorðið, sem fellur undir „morð fyrir tilstilli aðgerðaleysis“ samkvæmt austurrískum lögum, var alvarlegasta ákæruatriðið sem Fritzl var sakfelldur fyrir, og fyrir það fékk hann hámarksrefsinguna sem lögin heimila. Þetta ákæru- atriði sneri að því að Fritzl hefði borið ábyrgð á andláti eins barn- anna sjö sem dóttir hans Elisa- beth fæddi í prísundinni, þar sem hann sá ekki til þess að það kæm- ist undir læknishendur. Það dó einum og hálfum sólarhring eftir fæðingu. Talsmenn dómsmálayfirvalda í Austurríki segja að Fritzl muni ekki geta farið fram á reynslu- lausn fyrr en í fyrsta lagi eftir fimmtán ár − en þá yrði hann orð- inn 88 ára að aldri. Hvers konar beiðni um breytingar á refsing- unni yrði að bera undir réttargeð- lækna. Honum verður enn fremur gert að bera kostnaðinn af réttar- haldinu. Þeir ellefu mánuðir sem hann hefur þegar varið í gæslu- varðhaldi teljast sem hluti af refsivist hans. Meðal annarra ákæruliða sem hann var sakfelldur fyrir voru frelsissvipting og valdbeiting. Fritzl breytti um afstöðu til ákær- anna á miðvikudag og játaði þá á sig allar sakir. Það var eftir að rétturinn hafði hlýtt á ellefu klukkustunda myndbandsupptöku af vitnisburði dóttur hans, sem hann lokaði inni í kjallara húss síns þegar hún var átján ára. „Ég iðrast af öllu mínu hjarta … ég get ekki bætt fyrir gjörðir mínar,“ tjáði hann réttinum fyrir dómsuppkvaðningu í gær. audunn@frettabladid.is Fritzls bíður lífstíðarvist á réttargeðdeild Austurríkismaðurinn Josef Fritzl var í gær sakfelldur fyrir brot sín gegn dóttur sinni sem hneykslað hafa heimsbyggðina. Hann var dæmdur til lífstíðarvistun- ar á réttargeðdeild. Hann segist iðrast gjörða sinna. DÆMDUR Fritzl færður úr dómsal í Sankt Pölten eftir dómsuppkvaðninguna í gær. Hann játaði á sig allar sakir eftir að rétturinn hlýddi á vitnisburð dóttur hans. FRÉTTABLAÐIÐ/AP VEITINGAHÚS Kaupmannahöfn hefur stigið á lista Michelin-handbókar- innar sem er nýkomin út. Kaup- mannahöfn státar nú af fjórtán stjörnum, fleirum en þekktar sælkeraborgir eins og Róm og Madríd. París vermir efsta sætið yfir evr- ópskar borgir, en borgin státar af alls níutíu og níu Michelin-stjörn- um. Meðal veitingastaða í Kaup- mannahöfn sem hljóta stjörnurn- ar eftirsóttu er Noma, sem leggur mikla áherslu á norræna matar- gerðarlist. Tokýó er sú borg sem hefur flestar stjörnur, tvö hundr- uð tuttugu og sjö talsins. - alþ Borðað í Kaupmannahöfn: Michelin-veitinga- stöðum fjölgar KÓNGSINS KÖBEN Samkvæmt Michelin- handbókinni fjölgar góðum veitinga- stöðum í Kaupmannahöfn.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.