Fréttablaðið - 20.03.2009, Blaðsíða 16
16 20. mars 2009 FÖSTUDAGUR
FRÉTTASKÝRING: Íslensk kannabisverksmiðja upprætt
Hringstigi
1. hæð
2. hæð
BÚNAÐUR Blóm kannabisjurt-
arinnar er sá hluti hennar sem
mesta vímuefnið er í. Ef styrkur
þeirra er mikill er efnið oft drýgt
með laufum jurtarinnar, eins og
sást í plastpokum í verksmiðj-
unni, sem höfðu að geyma efni
tilbúið til sölu.
Þurrkun
Ræktun
Ræktun
Kynntu þér málið hjá sölumönnum Eirvíkur
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Baldursnes 6, Akureyri | Sími 588 0200
Íslenskt stjórnborð - Stórt hurðarop
Íslenskar leiðbeiningar - 20 ára ending
Miele þvottavélar hafa verið framleiddar í yfir hundrað ár.
Miele þvottavélar eru framleiddar til að endast.
Þvottavélar - Verð frá kr. 139.995
Þurrkarar - Verð frá kr. 119.995
TILBOÐ
Sparaðu
með Miele
LÖGREGLUMÁL Á sjöunda hundr-
að plöntur voru í kannabisverk-
smiðjunni sem fíkniefnadeild
lögreglunnar á höfuðborgarsvæð-
inu upprætti í iðnaðarhúsnæðinu
á Esjumelum í fyrrakvöld. Áætla
má að söluverðmæti þeirra hefði
orðið rúmlega 50 milljónir króna
hefðu þær komist á götuna, sam-
kvæmt upplýsingum Fréttablaðs-
ins.
Mennirnir tveir, sem fíkniefna-
lögreglan handtók á staðnum,
voru utandyra þegar hana bar að
garði, samkvæmt upplýsingum
Fréttablaðsins. Viðbrögð þeirra
og framburður á vettvangi þóttu
með þeim hætti að þau styrktu
grun lögreglumanna um að hugs-
anlega væri kannabisræktun í
húsnæðinu. Eftir handtöku þeirra
var því ákveðið að fara í húsleit,
sem bar heldur en ekki árangur.
Í húsnæðinu reyndist vera gríð-
arleg kannabisræktun í gangi á
tveimur hæðum. Um var að ræða
svokallaða vatnsræktun, þar sem
plantan stendur í vatni og notað
er öflugt vatns- og dælukerfi, auk
vikurs og ýmissa bætiefna sem
sett eru í vatnið. Áður hafði verið
notast við mold því á gólfinu voru
stórir hraukar í tonnum af henni.
Verksmiðjan hafði hins vegar
verið þróuð út í vatnsræktun sem
gefur skjótsprottnari plöntur og
blómlegri.
Talið er að búnaður í verksmiðj-
unni hlaupi á milljónum króna að
verðmæti. Á þriðja tug gróður-
húsalampa var á staðnum, sem
flestir höfðu að líkindum verið
keyptir þar sem ekki hafði verið
skorið á snúrur þeirra. Eitt stykki
lampi kostar um fimmtíu þúsund
krónur. Rýmið hafði verið stúkað
sundur með gifsplötum og í verk-
smiðjunni var feikiöflugt loft-
ræstikerfi. Auk þessa voru þarna
blástursofnar, einangrunarplast,
vogir og annar búnaður.
Auk þeirra rúmlega 600 plantna
sem voru í ræktun í húsnæðinu
hengu um 120 plöntur í búntum
til þurrkunar í verksmiðjunni.
Þær voru tilbúnar til niðurskurð-
ar. Á gólfinu var hrúga af þurrk-
uðum kannabislaufum, sem hafa
trúlega verið ætluð til að drýgja
efnið til sölu. Loks voru um 400
grömm af kannabisefni í plast-
pokum tilbúin til sölu.
Húsnæðið sem ræktunin var í
var keypt af öðrum hinna hand-
teknu á árinu 2007. Talið er að frá
hausti það ár hafi kannabisrækt-
unin hafist og staðið síðan.
Ræktunartími kannabisplöntu
er um 12 vikur, sem þýðir fjórar
ræktanir á ári. jss@frettabladid.is
Kannabis að verð-
mæti 50 milljónir
Hefðu þær hundruð kannabisplantna sem teknar voru í verksmiðjunni á
Esjumelum í fyrrakvöld komist í sölu á götunni hefði söluágóði numið ríflega
50 milljónum, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins. Meintur ræktandi
keypti húsnæðið 2007.
BAÐAÐSTAÐAN Mennirnir klæddust
hvítum algöllum þegar þeir sinntu
ræktuninni og fóru í sturtu áður en
haldið var aftur út.
TEKIN NIÐUR Margar hendur voru á lofti við að taka kannabisverksmiðjuna niður
í gær, enda mikið verk. Fjórir lögreglunemar frá jafnmörgum Norðurlöndum, sem
eru í heimsókn hjá íslensku lögreglunni tóku þátt í að hreinsa húsnæðið.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Lögreglan hefur upprætt nokkrar kannabisræktunarstöðvar á Íslandi að
undanförnu.
■ Hvað er kannabis?
Hugtakið kannabis er yfirleitt notað yfir alla hluta kannabisplöntunnar sem
innihalda kannabínóíða, þar á meðal tetrahýdrókannabínól. Helstu flokk-
ar eða tegundir kannabis eru hass og
marijúana (stundum kallað gras) en einnig
hassolía.
Marijúana samanstendur af blóm sprotum
og laufi kannabisplantna sem eru þurrkuð
og grófmulin.
Hass er mulin, sigtuð, pressuð og stund-
um hreinsuð kvoða unnin úr kannabisplönt-
um. Magn kannabínóíða í hassi er mun
meira en í marijúana.
Hassolía er framleidd með því að láta
lífræn leysiefni draga kannabínóíða úr hassi
eða kannabisplöntum. Þannig verður þéttni
eða magn tetrahýdró kannabínóls og annarra kannabínóíða meira en annars
væri hægt að ná fram.
■ Hvernig er þess neytt?
Magn THC í marijúana er oft á bilinu 5-10 mg í einu grammi, í hassi er það
um 30-70 mg/g og í hassolíu 50-120 mg/g. Marijúana er venjulega reykt í
heimatilbúnum sígarettum. Hass er oftast reykt mulið í pípum eða öðrum
reykingartólum, en er stundum blandað í te. Hassolía er oftast notuð þannig
að nokkrir dropar eru settir í tóbak sem síðan er reykt. Kannabis er einnig
stundum neytt við inntöku í ýmsum formum.
Kannabis hefur í árþúsundir víða um heim verið notað sem róandi lyf,
svefnlyf, verkjadeyfandi lyf, flogaveikilyf og vímugjafi. Það var samt ekki
fyrr en árið 1964 að sannað þótti að tetrahýdrókannabínól væri hið vímu-
gefandi efni í kannabis. Enn er því svo farið að minna er vitað um verkanir
tetrahýdrókannabínóls en flestra annarra vímugjafa. Heimild: Vísindavefur HÍ.
FBL-GREINING: KANNABIS
Lyf og vímugjafi