Fréttablaðið - 20.03.2009, Síða 23

Fréttablaðið - 20.03.2009, Síða 23
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447 „Það fyrsta sem eykur lystina er augað og síðan nefið,“ segir Guðrún Þóra Hjaltadóttir, næringarráðgjafi og heimilisfræðikennari, sem gefur lesendum uppskriftir að bragðgóð- um skyrdrykkjum og gómsætu hafrakexi. Guðrún segir drykkina mikið drukkna á sínu heimili. Sérstaklega sé sonur hennar, 25 ára, hrifinn af slíku „bústi“ til að byggja sig upp fyrir líkamsræktina. Hún segir drykkina vel henta til að fá börn til að borða eitthvað á morgnana enda finnist mörg- um þeirra erfitt að borða fyrst á morgnana. „Þá hafa þau líklega frekar lyst á skyrdrykk en brauði,“ segir Guðrún sem setur haframjöl út í drykkina til að auka hlutfall kolvetna. solveig@frettabladid.is Fallegt útlit eykur lystina Hollur morgunverður eykur orku yfir daginn og er börnum sérstaklega mikilvægur. Guðrún Þóra Hjalta- dóttir, næringarráðgjafi og heimilisfræðikennari, veit hvernig best er að fá börn til að borða á morgnana. Guðrún Þóra Hjaltadóttir, næringarráðgjafi og heimilisfræðikennari, segir skyrdrykkina vinsæla á sínu heimili. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Morgundrykkur Viktors 200 g hreint skyr 100 g af berjum ný eða frosin 1 dl mjólk ½ dl haframjöl 1 lítill banani Allt sett í blandara. Morgundrykkur Söndru 200 g hreint skyr ½ dl kókosmjólk 4 ananashringir 1 dl súrmjólk eða ab mjólk 1 dl haframjöl Allt sett í blandara. Morgunkex 250 g haframjöl 75 g smjör 2 msk. sykur ½ tsk. salt 1 tsk. lyftiduft 1 ½ dl mjólk Blandið öllu saman. Hnoðið deigið. Flatt út frekar þunnt, pikkað og stungið út í karla eða ferhyrninga. Penslað með mjólk og sesamfræjum stráð yfir. Bakað við 200 C. blástur. MORGUNKEX OG SKYRDRYKKIR Með ávöxtum og haframjöli FYRIR 1 SVEPPIR eru góðir í margs konar matargerð. Sveppi sem á að sneiða niður er best að setja bara í eggja- skerann. Þá fást jafnar og fallegar sneiðar. H ri n g b ro t framlengt til 29. mars Veitingahúsið Perlan - Sími 562 0200 - Fax 562 0207 Netfang perlan@perlan.is - Heimasíða www.perlan.is Hinn árvissi 4ra rétta „Allt í steik“ seðill gleður bragðlaukana. Skyldumæting fyrir alla sem unna góðum mat á góðu verði. Tilvalið fyrirárshátíðina! HRÁSKINKA „PROSCIUTTO“ með fíkjum, salati og ferskum parmesanosti RJÓMALÖGUÐ HUMARSÚPA með humarfrauði MARINERAÐUR KÁLFAHRYGGUR Á BEINI með ristuðu grænmeti, kartöflumauki og hunangskryddsósu (4.590 kr.) ÖND með appelsínusósu og kartöfluköku (5.590 kr.) NAUTALUND Béarnaise með grilluðu hvítlauksristuðu spínati og sperglum (6.590 kr.) LOGANDI CRÈME BRÛLÉE með súkkulaði ís 1 2 3 4 VELDU MILLI ÞRIGGJA AÐALRÉTTA Nýr A la Carte hefst 30. mars!

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.