Fréttablaðið - 20.03.2009, Page 24
Siðfræðimálstofa verður haldin
á Hólum í Hjaltadal á degi Guð-
mundar góða.
Guðbrandsstofnun og Hólanefnd
bjóða til málstofu um siðfræði á
Hólum í Hjaltadal á morgun frá
klukkan 13.30 til 17.00. Málstofan
verður haldin í Auðunarstofu þar
sem flutt verða tvö erindi og boðið
upp á umræður.
Jón Ásgeir Kalmansson heim-
spekingur flytur erindið Hver eru
tengsl heimspeki og sjálfbærni?
og Ástríður Stefánsdóttir, lækn-
ir og dósent í siðfræði við HÍ,
fjallar um heilbrigðisþjónustu og
alheimsvæðingu.
Að erindum og umræðum lokn-
um spilar Jón Þorsteinn Reynis-
son á harmonikku og síðast verð-
ur veittur styrkur úr áheitasjóði
Guðmundar biskups góða, en
þetta er í þriðja sinn sem hann er
veittur. - eö
Siðfræði
að Hólum
Allir eru velkomnir á málstofuna á
Hólum.
ÍSLANDSMÓT SKÁKFÉLAGA fer fram í Brekku-
skóla á Akureyri í dag og á morgun. Skákmótið er það
fjölmennasta sem haldið hefur verið á Akureyri en
þátttakendur eru um 400.
Áhugasamir geta kynnt sér
starfsemi Waldorfs-skólans á
Lækjarbotnum á morgun.
Opið hús verður í Waldorfskólan-
um Lækjarbotnum á morgun frá
klukkan 12 til 17. Skólinn er í litl-
um dal rétt austan við Rauðavatn
við Suðurlandsveg.
Stuttar kynningar verða á
kennsluaðferðum og námskránni
og gestir fá innsýn inn í bekkjar-
kennslu, handverk og listgreinar.
Einnig verður ævintýraheimur
leikskólans Yls og yngri bekkjar-
stiganna kynntur. Að lokum verð-
ur hægt að skoða húsakynni skól-
ans og fá sér kaffisopa í faðmi
náttúrunnar. - eö
Ævintýraheimur
Lækjarbotna
Börn að leik á Lækjarbotnum.
ior
M
on
ic
a
B
el
lu
cc
i b
y
T
ye
n
LOOSE POWDER FLUID FOUNDATION
NUDE
NATURAL GLOW HYDRATING FOUNDATIONS
FPS 10 SPF
Diorskin uppgötvun: einstakt laust púður
og fl jótandi farði,formúla sem inniheldur
steinefnaríkt lindarvatn og vítamín.
Húðin verður sléttari og áferðarfallegri
og útgeislun eyskt dag frá degi.
Kynning föstudag og laugardag í Sigurboganum
Sérfræðingur frá Dior kynnir nýjan farða og býður uppá
förðun með nýju vorlitunum.
Góð tilboð og freistandi kaupaukar
Laugavegi 80, 101 Reykjavík • sími 561 1330
www.sigurboginn.is