Fréttablaðið - 20.03.2009, Page 44
24 20. mars 2009 FÖSTUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Sýningin Eterinn eftir leikarann Þóri
Sæmundsson verður frumsýnd á
Smíðaverkstæðinu í kvöld en þetta er
hans fyrsta verk. Það er harla óvenju-
legt og er fólk ekki á eitt sátt um
hvernig eigi að lýsa því. Er um að ræða
fyrirlestur, myndlistarsýningu, rokk-
tónleika eða miðilsfund?
„Þetta er eins konar sögustund flutt
með aðstoð hágæða stafræns búnaðar.
Þetta er ekki leikrit og myndi ég frek-
ar tala um sýningu. Ég stend á svið-
inu sem Þórir en ekki sem leikari og
er sýningin því á mjög persónulegum
nótum,“ segir Þórir, sem hefur gengið
með hugmyndina í maganum um langt
skeið.
Þórir býður áhorfendum upp á raf-
magnaða stund þar sem gestir fá að
kynnast pælingum hans um jafnólíka
hluti og skammtafræði, tímaflakk,
endurholdgun og Andy Warhol. Uppfinn-
ingar Þóris spila stóra rullu í sýningunni
en með heimasmíðuðum vélum og tækj-
um kallar hann fram sjónarspil mynda,
hljóða og hugmynda. „Ég styðst ekki við
neitt handrit og því verður engin sýn-
ing eins. Áhorfendur ættu þó að skynja
einhvern rauðan þráð. Ég bendi þeim
þó ekki á neitt ákveðið eða segi: Takið
sérstaklega eftir þessu, heldur eftirlæt
áhorfendum að túlka sýninguna út frá
eigin forsendum.“ Þórir segir gaman að
sjá hversu misjafnlega áhorfendur, sem
hafa komið á forsýningar, skynja hvað
er um að vera og er upplifun ungra og
þeirra sem eldri eru mjög ólík.
Sýningin gefur áhugasömum kjör-
ið tækifæri til að skyggnast inn í hug-
arheim Þóris. „Það líður alltaf lang-
ur tími á milli þess sem ég upplifi eitt-
hvað sterkt í leikhúsi og öðrum listum.
Ég reyni að kalla fram ekta tilfinningar
án þess að vera með leikhús eða einhver
læti í kringum mig. Það er ekki verið
að drepa neinn, öskra eða fara með há-
fleygan texta. Ætli það megi ekki kalla
þetta nútímalegt verk þar sem ég leyfi
mér að gera eitthvað óvenjulegt og vera
listamaður.
Þórir segir framtakið heiðarlega til-
raun ungs manns til að nálgast sjálfan
sig og þær spurningar tilverunnar sem
brenna á fólki. Hann leitast við að fella
niður veggina á milli lista, vísinda, nátt-
úru og yfirnáttúru í viðleitni sinni til að
deila sýn sinni á Eterinn – hið ósýnilega
efni sem tengir allt saman. „Efniviður-
inn er kannski heimspekilegur og þetta
eru stórar pælingar. Þetta eru þó ekki
bara mínar pælingar heldur hugsanir
sem eru á sveimi í okkur öllum.“
vera@frettabladid.is
ÞÓRIR SÆMUNDSSON LEIKARI: FRUMSÝNIR ETERINN
Skyggnst inn í hugarheim Þóris
Á PERSÓNULEGUM NÓTUM Eterinn er eins konar sögustund flutt með aðstoð stafræns búnaðar. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Innrás Bandaríkjamanna og Breta
auk bandamanna inn í Írak hófst
þennan dag fyrir sex árum. Banda-
ríkjamenn kölluðu stríðið Aðgerð
Íraksfrelsi. Innrásin var umdeild og
hefur meðal annars verið bent á að
ekki hafi verið sátt um innrásina í
öryggisráði Sameinuðu Þjóðanna
eins og var með fyrra Persaflóa-
stríðið árið 1991. Þá réðst Saddam
Hussein inn í Kúvæt vegna deilna
um landamæri og olíuverð. Í fram-
haldinu settu Sameinuðu þjóðirnar
á laggirnar eftirlitsteymi sem átti að finna og eyða
gereyðingarvopnum í Írak.
Gereyðingarvopnin voru ein þeirra ástæðna
sem Bandaríkjamenn settu fram til að réttlæta
innrásina í Írak árið 2003. Einnig áttu félagar í Al-
Kaída hryðjuverkasamtökunum að eiga öruggt
skjól í Írak, þar á meðal Osama
bin Laden sem er talinn standa á
bak við árásirnar 11. september
árið 2001. Þá flugu hryðjuverka-
menn farþegaflugvélum á Tví-
buraturnana á Manhattan og
Pentagon með þeim afleiðingum
að tæplega 3.000 manns fórust.
Davíð Oddsson, þá forsætisráð-
herra, og Halldór Ásgrímsson, þá
utanríkisráðherra, tóku einhliða
ákvörðun um að Ísland styddi
innrásina án samráðs við Alþingi.
Saddam Hussein var tekinn höndum í desem-
ber árið 2003. Hann var dæmdur til dauða og tek-
inn af lífi árið 2006. Osama bin Laden hefur ekki
náðst og ekki hafa fundist gereyðingarvopn í Írak.
Þótt stríðinu eigi að hafa lokið formlega hinn 1.
maí 2003 sér enn ekki fyrir endann á átökunum.
ÞETTA GERÐIST: 20. MARS ÁRIÐ 2003
Bandaríkjamenn ráðast inn í Írak
MERKISATBURÐIR
44 f.Kr.Júlíus Caesar er borinn til
grafar.
1916 Albert Einstein birtir rit-
gerð sína um almennu af-
stæðiskenninguna.
1927 Flutningaskipið Brúarfoss
kemur til landsins.
1952 Friðarsamningarnir við
Japan eru samþykktir í
öldungadeild Bandaríkja-
þings.
1956 Túnis fær sjálfstæði frá
Frakklandi.
1969 John Lennon og Yoko Ono
gifta sig á Gíbraltar.
1990 Hundrað bílar lenda í
árekstrum í Reykjavík
vegna blindbylja sem
ganga yfir.
1991 Stysta ræða í sögu Alþing-
is er flutt. Hún er svohljóð-
andi: „Virðulegi forseti! Ál-
verið rísi!“ Ræðumaður er
Ásgeir Hannes Eiríksson.
Kærar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð, hlýhug og vináttu við and-
lát og útför ástkærs eiginmanns, föður,
tengdaföður og afa,
Þórðar Þorvarðssonar
Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð,
Kópavogi, áður til heimilis að Giljaseli 12.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Sunnuhlíðar fyrir veitta
umhyggju og alúð.
Halla S. Nikulásdóttir
Skúli Eggert Þórðarson Dagmar Elín Sigurðardóttir
Nikulás Þórðarson Elísabet Berta Bjarnadóttir
Guðrún Þórðardóttir Randver Þorláksson
Elísabet Þórðardóttir Einar Gunnarsson
Kjartan Þór Þórðarson Ásbjörg Geirsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður, faðir, stjúpfaðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Valdimar Þórðarson
húsasmíðameistari
Heiðarvegi 4, Selfossi,
lést þriðjudaginn 17. mars sl. á Hjúkrunarheimilinu
Fossheimum Selfossi. Útför hans verður auglýst síðar.
Helga Jóhannesdóttir
Jónína Valdimarsdóttir Guðmundur Baldursson
Björgvin Þ. Valdimarsson Sigríður Magnea
Njálsdóttir
Guðrún Valdimarsdóttir Sigurður Bragason
Magnea Kristín Valdimarsdóttir Sigurður Rúnar
Sigurðsson
Björk Valdimarsdóttir
Oddný Magnúsdóttir Emil Guðjónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæra,
Kristín Kristjánsdóttir
frá Efra-Hóli, Staðarsveit, síðar búsett á
Sauðárkróki,
lést 11. mars sl. á Heilbrigðisstofnuninni á
Sauðárkróki. Jarðsett verður á Staðarstað laugardaginn
21. mars kl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Friðjón Jónsson Hanna Olgeirsdóttir
Jóhann Sigmundsson
Lindargötu 57,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum Landakoti mánudaginn
16. mars. Útför hans fer fram frá Fossvogskapellu
mánudaginn 23. mars kl. 15.00.
Sigríður Jóhannsdóttir Haraldur Hermannsson
Sigurdís Haraldsdóttir
Svava Jóhanna Haraldsdóttir
Jóhann Haraldsson
Vilborg Áslaug Sigurðardóttir
Guðrún Karla Sigurðardóttir
Ingibjörg Sigurðardóttir
Kristjana Ósk Sigurðardóttir
og aðrir aðstandendur.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður og ömmu,
Ólafar Jóhannsdóttur.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á
Hjúkrunarheimilinu Sólvangi fyrir hlýhug og góða
umönnun.
Ingi J. Marinósson
Erla Eiríksdóttir Sigurður Hallgrímsson
og fjölskylda.
WILLIAM HURT ER 59 ÁRA Í DAG
„Mig langar að koma því til
skila að leikarar eru lista-
menn, ekki endilega sjálfs-
dýrkendur.“
Bandaríski leikarinn Willi-
am Hurt hefur leikið í fjölda
kvikmynda. Hann hlaut bæði
Óskars- og BAFTA-verðlaunin
fyrir leik sinn í kvikmyndinni
Kiss of the Spider Woman.
AFMÆLI
LEIKKONAN
HOLLY HUNT-
ER er 52 ára.
GÍSLI RÚNAR
JÓNSSON leik-
ari er 56 ára.
PÉTUR KR.
HAFSTEIN
hæstaréttar-
dómari er 60
ára.
FERNANDO
TORRES fót-
boltamaður er
25 ára.