Fréttablaðið - 20.03.2009, Síða 53

Fréttablaðið - 20.03.2009, Síða 53
FÖSTUDAGUR 20. mars 2009 33 HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Föstudagur 20. mars ➜ Opið Hús Opið hús verður í Alliance Française við Tryggvagötu 8, fyrir þá sem hafa hug á að kynna sér franska tungu og menningu, milli kl. 10 og 18. Alliance Française, Tryggvagötu 8. ➜ Sýningar Á Háskólatorgi við Sæmundargötu 4 hafa nokkrir nýútskrifaðir myndlistar- menn opnað sýningu. Opið mán.-fös. kl. 7.30-22, lau. kl. 7.30-20 og sun. kl. 10-20. Í Skaftfelli, miðstöð myndlistar á Austur- landi, hefur verið opnuð gluggasýning í rýminu Bókabúðin. Þar sýnir Sandra Mjöll Jónsdóttir verk sem hægt er að skoða á öllum tímum sólarhringsins. Ívar Valgarðsson hefur opnað sýningu í Listasafni ASÍ við Freyjugötu. Opið alla daga nema mánudaga kl. 13-17 og aðgangur er ókeypis. ➜ Tónleikar 12.15 Tríó Reykjavíkur verður með tónleika á Kjarvalsstöðum við Flókagötu þar sem meðal annars verða leikin stef úr Töfraflautu Mozarts og Czardas eftir Monti. Aðgangur er ókeypis. 18.00 Tónskólinn Do Re Mi fagnar 15 ára starfsafmæli sínu með tónleikum í Neskirkju við Hagatorg. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. 22.00 Hljómsveitin U2 project verður á Græna hattinum, Hafnarstræti 96, Akureyri. Húsið opnar kl. 21.00. 22.00 Tríó Robins Nolan verður með tónleika á Café Rósenberg við Klapparstíg. 00.00 Hljómsveitirnar Dikta, Jeff Who og Sing for me Sandra verða á Sódómu Reykjavík við Tryggvagötu. ➜ Hönnun og tíska Norræni tískutvíæringurinn í Norræna húsinu við Sturlugötu 19. mars til 5 apríl. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir. Nánari upplýsingar og dagskrá á www.nordice.is. 12.00 Karl Aspe- lund fatahönnuður og kennari við University of Rhode Island held- ur fyrirlestur. 17.00 Landslagsarki- tekinn Kristine Jensen flytur fyrirlestur. ➜ Dansleikir Hljómsveitin Karma spilar á Players Bæjarlind 4 í Kópavogi. ➜ Kvikmyndir Ítölsk kvikmyndahátíð 20.-22. mars í Regnboganum, Hverfisgötu 54. Sýnd- ar verða kvikmyndir eftir leikstjórann Paolo Sorrentino. Enskur texti. 17.50 L´amico di famiglia 20.10 Le conseguenze dell’amore 22.10 L´uomo in più ➜ Opnanir 13.30 Sýning á myndskreytingum úr íslenskum barnabókum verður opnuð í Galleríi Ormi í Sögusetrinu á Hvolsvelli við Hlíðarveg. Allir velkomnir. Sýningin verður opin um helgar kl. 11-17. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is Á morgun opnar Cinzia D’Am- brosi ljósmyndasýninguna Myrkur sannleikans í Gerðubergi. Frétta- myndaserían Myrkur sannleik- ur: Kolanámumenn í Kína, sem er meginefnið á sýningunni, varp- ar ljósi á vinnuaðstæður í stærsta kolaiðnaði heims, iðnaði sem knýr áfram kínverska „efnahagsundrið“. Áætlað hefur verið að að minnsta kosti 12,3 milljónir manna í heimin- um séu hnepptar í nauðungarvinnu, sem myndar grunn að nútíma- þrælahaldi. Í tengslum við sýninguna ætlar Cinzia, sem er sjálfstætt starfandi blaðaljósmyndari, að bjóða upp á ljósmyndanámskeið fyrir áhuga- sama á aldrinum 17-25 ára ung- menni í samstarfi við Menningar- miðstöðina. Þátttakendur þróa með sér grunnatriði ljósmyndunar og skiln- ing á því hvernig maður finnur viðfangsefni, ljósmyndar þau og skrifar sögu þess þar sem mynd- ir gegna stærra hlutverki en ritað mál. Þátttakendur þróa jafnframt með sér hæfileika í heimildarljós- myndun, rannsóknaraðferðum, klippingu, ritun skýringartexta, ritun markmiðslýsingar og sögu. Námskeiðið stendur yfir í þrjár vikur frá 23. mars til 8. apríl og fer fram í Gerðubergi á mánu- dögum og miðvikudögum frá kl. 16-18. Athugið að námskeiðið fer fram á ensku. Námskeiðið er ókeypis en þátttakendur þurfa að koma með eigin 35 mm SLR-myndavél eða sambærilega stafræna mynda- vél. Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa áhuga á öðru en hefðbund- inni ljósmyndatækni. - pbb Sannleikur og myrkur LJÓSMYNDIR Eitt verka Cinziu á sýning- unni í Gerðubergi. FRÉTTABLAÐIÐ/CINZIA D’AMBROSI Steinunn Sigurðardóttir fatahönn- uður heldur fyrirlestur á Akureyri í dag kl. 14.50. Fyrirlesturinn nefn- ir hún „Persónueinkenni í alþjóða- heimi“ en þar fjallar hún um verk sín og hugmyndir sem hún sækir gjarnan í íslenskan menningar- arf, handverkshefð og náttúru, en vinnur á alþjóðavettvangi. Fyrirlestur Steinunnar er hluti af fyrirlestraröð listnámsbraut- ar VMA, Listasafnsins á Akur- eyri og Menningarmiðstöðvar- innar í Grófargilii. Mun þetta vera níundi vetur fyrirlestraraðarinnar sem hefur það að markmiði að fá átta sérfræðinga úr margvísleg- um geirum menningarlífsins til þess að fjalla um sín sjónarhorn á tilveruna. Steinunn á Akureyri STEINUNN SIGURÐARDÓTTIR Fata- hönnuður sem fékk Menningarverð- laun DV í hönnun 2003.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.