Fréttablaðið - 20.03.2009, Side 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
Í dag er föstudagurinn 20. mars,
79. dagur ársins.
7.28 13.35 19.44
7.12 13.20 19.29
Nýlega kynntist ég skemmtilegu borðspili sem nefnist Jenga.
Spilið samanstendur af 54 ílöng-
um trékubbum sem er raðað upp
þremur og þremur saman í átján
stæður, sem liggja þvert hver á
aðra. Leikurinn gengur út á að
leikmenn, sem geta verið nokkrir,
skiptast á að fjarlægja einn kubb
úr undirstöðunni og leggja hann
ofan á stæðuna. Markmiðið er að
láta stæðuna ná sem hæst. Hæng-
urinn er sá að eftir því sem blokk-
in hækkar og kubbunum í undir-
stöðunum fækkar verður stæðan
þeim mun óstöðugri og fellur að
lokum um koll.
LEIKURINN endar því ávallt
á einn veg og þar sem hrunið er
óumflýjanlegt stendur í raun-
inni enginn uppi sem sigurvegari;
markmiðið er að vera ekki sá sem
fjarlægir kubbinn sem fellir stæð-
una um koll. Þegar það gerist er
kubbunum raðað aftur saman og
byrjað upp á nýtt. Þetta er spenn-
andi og taugatrekkjandi leikur, ein-
hver heillandi togstreita í honum
þar sem hrunið helst í hendur við
uppbygginguna. Þegar ég spilaði
hann í fyrsta sinn flögraði hins
vegar að mér sú hugsun að ef til
vill hafi Ísland lotið sömu grund-
vallarreglum og Jenga.
HÆGT og bítandi var hverri undir-
stöðunni á fætur annarri kippt
undan samfélaginu og raðað ofan á
stæðuna með það að augnamiði að
ná sem hæst. Og stæðan náði ansi
hátt þegar mest lét. Þeir sem tóku
þátt í leiknum – og þeir voru marg-
ir – gleymdu hins vegar hvernig
leikurinn er dæmdur til að enda.
Grunnurinn hvíldi á sífellt færri
stoðum og þegar loksins fór að
hrikta í þeim gerðu þeir sem spil-
uðu nákvæmlega það sama og í
borðspilinu: fóru sér aðeins hægar
– en héldu leiknum engu að síður
áfram. Drógu næsta kubb var-
lega úr grunninum og lögðu hann
gætilega á toppinn; reyndu eftir
fremsta megni að verða ekki sá
sem fjarlægir kubbinn sem veltir
stæðunni endanlega um koll.
AÐ LOKUM gerðist hið óumflýj-
anlega og blokkin hrundi. Smám
saman erum við farin að safna
kubbunum aftur saman og raða
þeim upp á nýtt. Reynslunni rík-
ari og sannfærð um að láta söguna
ekki endurtaka sig. Það er auðvitað
góðra gjaldra vert að vilja hleypa
nýjum leikmönnum að borðinu,
í stað þeirra sem sátu einir að
veislukostinum meðan leikar stóðu
sem hæst, og það er engin ástæða
til að frýja þá ábyrgð. En það eitt
og sér dugar ekki til. Hrunið er
nefnilega innbyggt í spilið. Við
þurfum fyrst og fremst að finna
annan leik til að spila.
Ekki aftur Jenga
BAKÞANKAR
Bergsteins
Sigurðssonar