Fréttablaðið - 23.03.2009, Side 48

Fréttablaðið - 23.03.2009, Side 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Þórhildar Elínar Elínardóttur Í dag er mánudagurinn 23. mars, 82. dagur ársins. 7.17 13.34 19.53 7.01 13.19 19.39 F í t o n / S Í A með ánægju Þjónusta Express Café Um borð er úrval léttra og góðra rétta. Einnig heitir og kaldir drykkir fyrir unga sem eldri. Veldu þér sæti! Þegar þú bókar flugsæti geturðu á einfaldan og ódýran hátt valið hvar þú situr. Barnabox með ýmsu góðgæti og óvæntum glaðningi fást gegn vægu gjaldi um borð í vélum okkar. Við leggjum mikið upp úr því að ferðalag farþega okkar sé ánægjulegt frá upphafi til enda. Skilvirkt bókunarkerfi, hlýtt viðmót og góð þjónusta um borð tryggja skemmtilegt ferðalag með Iceland Express! Við bjóðum upp á Ferðafélagann, sem er afþreyingarkerfi okkar um borð, og geta farþegar valið á milli fjölda kvikmynda, horft á sjónvarpsþætti, hlustað á tónlist eða spilað tölvuleiki á meðan fluginu stendur. Bókaðu núna á www.icelandexpress.is Opið 07 til 02 Lyfja Lágmúla - Lifið heil www.lyfja.is Enginn þeirra fjármála-spekúlanta sem hérlendis gegndu hæstu stöðum þar til fyrir skemmstu, hafði ímyndunarafl til að forða frá hruni stofnunum og fyrirtækjum sem þeim var trúað fyrir. Fram á þennan dag hanga þeir í kenningum um heilagleika hins frjálsa markaðar. Þrátt fyrir allt. Gjaldþrotið var eiginlega bara óheppni, engum að kenna nema þá einna helst hinum sameiginlega óvini, ríkinu. EINSTAKLINGSFRAMTAKIÐ er þó ekki dautt. Síðustu daga hefur hugmyndaflugið og framtaks- semin verið til sýnis í fréttatímum þar sem heilu verksmiðjurnar sem næstum enginn vissi af hafa komið í ljós. Hér er enginn framleiðslu- kvóti á kannabis. Hin græna orka hefur þó augljóslega fundið sér ábatasaman farveg í innanlands- framleiðslu á þessu dópi sem land- læknir telur að geti stundum gert nokkurt gagn. Gamalt kínverskt máltæki segir eitthvað á þessa leið: Ef þú vilt vera hamingjusam- ur í einn dag skaltu elda gómsæta máltíð. Viljirðu vera hamingju- samur í viku skaltu giftast. En þráirðu hamingju allt lífið skaltu fá þér garð. NÚ hefur ekki komið fram hvort fólkið sem ræktaði garðinn sinn í iðnaðarhúsnæði á Kjalarnesi og í íbúðum víðs vegar er hamingju- samara en við hin, eða kannski bara fégráðugt og óheiðarlegt. Það er hins vegar athyglisvert að eftir margra mánaða upphrópan- ir um svakalegt rannsóknastarf á kerfinu í heild, allt verði uppi á borðum og öllum steinum skuli velt við, hafi bókstaflega ekkert komið upp úr kafinu nema heift- arleg kannabisræktun. Eftir allt gramsið hefur engum fjárglæfra- manni verið stungið í steininn, heldur bara útsjónarsömum dóp- sölum sem komu tómu húsnæði í gagnið. Miðað við fjölda auðra fer- metra á landinu er ekki ólíklegt að mörg fleiri gróðurhús standi nú í fullum blóma. Einmitt á meðan sérlega heimildarlaus saksóknari snýr þumlum. VIÐ gætum náttúrulega ákveð- ið að hætta þessu hálfkáki bara. Gert Ísland að fríríki og ræktað kannabis í öllum tómu húskofun- um. Mokað inn túristum með vas- ana fulla af kræsilegum gjaldeyri sem vilja bara fá að reykja sitt gras í friði. Svo getum við látið eins og árið 2007 hafi aldrei verið til og reynt að gleyma þessu öllu saman yfir friðarpípunni. Fríríkið Ísland

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.